Leita í fréttum mbl.is

Ríkisstjórnin hefur stuttan tíma til stefnu

styrmirRíkisstjórnarflokkarnir lofuðu að afturkalla umsóknina um aðild að ESB. Þeir enduðu hins vegar með því að selja framkvæmdastjórn ESB sjálfdæmi um að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið ef aðildarsinnuð ríkisstjórn kæmist til valda á Íslandi á ný. Stjórnarflokkarnir hafa enn nokkra mánuði til að standa við gefin fyrirheit.

Svo segir Styrmir Gunnarsson. Hann segir:

Eins og skoðanakannanir um fylgi flokka standa er ekki hægt að útiloka, að ný ríkisstjórn að kosningum loknum muni ýmist hafa það á stefnuskrá sinni að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið eða vera veik fyrir því að svo verði gert.

Af þeim sökum er óhjákvæmilegt að núverandi stjórnarflokkar horfist í augu við eigin verk í þeim efnum. Þeir lofuðu að afturkalla aðildarumsóknina en enduðu með því að selja framkvæmdastjórn ESB sjálfdæmi um að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið ef aðildarsinnuð ríkisstjórn kæmist til valda á Íslandi á ný.

Ljóst er orðið að Evrópusambandið sjálft gerir greinarmun á því að fjarlægja nöfn umsóknarríkja af listum yfir slík ríki og að viðkomandi ríki afturkalli aðildarumsóknina með skýrum hætti. Þessi greinarmunur hefur verið staðfestur í umræðum í svissneska þinginu.

Stjórnarflokkarnir skulda stuðningsmönnum sínum skýringar á því hvers vegna þeir hafa ekki staðið við gefin fyrirheit.

Þeir hafa enn nokkra mánuði til þess að ljúka þessu verki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ríkisstjórnarflokkarnir skulda aðallega landsmönnum og þar með talið stórum hluta þeirra sam kusu þá af hverju þeir sviku loforðið um að kjósa um áframhaldandi aðildarviðræður í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það að afturkalla umsóknina núna væri ekki bara gróft svik á kosningaloforði heldur gróf aðför að lýðræði í landinu.

Sigurður M Grétarsson, 15.4.2016 kl. 07:02

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Yrði afgerandi afturköllun umsóknarinnar ekki einfaldlega til þess að koma málinu í lýðræðislegan farveg?
En það er rétt hjá SMG, núverandi ríkisstjórnarflokkar skulda kjósendum sínum vissulega þessa afturköllun.

Kolbrún Hilmars, 15.4.2016 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 89
  • Sl. sólarhring: 276
  • Sl. viku: 2334
  • Frá upphafi: 1112119

Annað

  • Innlit í dag: 74
  • Innlit sl. viku: 2085
  • Gestir í dag: 73
  • IP-tölur í dag: 71

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband