Leita í fréttum mbl.is

ESB-marineruðum kerfiskrötum líkar ekki lýðræðið!

arniPOkkur andstæðingum aðildar Íslands að ESB hefur verið legið á hálsi fyrir að hafa haldið því fram að ríki gæti ekki sagt sig úr ESB eftir að það er einu sinni komið inn. Þetta er ekki alls kostar rétt. Samþykktir ESB hafa verið misjafnar í gegnum tíðina hvað þetta varðar en eftir samþykkt Lissabonsáttmálans voru sett inn ákvæði um úrsögn í margrumræddri 50. grein.

Vissulega gengu Grænlendingar úr sambandinu eftir að Danir höfðu ákveðið að ganga þangað inn. En útgönguferlið var Grænlendingum þungt og langdregið. Og nú hafa Bretar samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu að nýta sér téða 50. grein til útgöngu. En þá rísa upp ESB-marineraðir kerfiskratar og íhaldsmenn í Bretlandi og víðar og segja að nú verði þingið að taka málið til sín. Það sé ekki hægt að láta þjóðina ákveða í einfaldri atkvæðagreiðslu svona stórt og flókið mál. Þessir aðilar, sem eru t.d. virkir í Verkamannaflokknum, segja nú m.a. að ekki hafi verið búið að samþykkja lög og móta þá leið sem fara eigi við útgöngu! 

Í svipaðan streng tók Árni Páll Árnason,fyrrverandi formaður Samylkingarinnar, í viðfestri grein úr mbl.is. 

Hvað er að þessu fólki? Árni Páll og ýmsir breskir kratar virðast telja vafasamt að láta þjóðir kjósa um jafn stóir mál og aðild að ESB eða úrsögn úr því eftir atvikum. Þessir ESB-marineruðu kerfiskratar vilja að aðeins stjórnmálamenn og embættismenn sem hafa hlotið hæfilega Brussel-skólun fái að vega og meta kosti og galla ESB-aðildar og ákveða leiðir.

Það hefur lengi verið talað um lýðræðishallann í ESB út frá ýmsum forsendum. Síðustu daga hefur lýðræðishallinn náð nýjum hæðum í huga Árna Páls og annarra ESB-krata.

 


mbl.is Breska þjóðaratkvæðið „furðuflipp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Væri það lýðræði og rétt ef höfuðborgarsvæðið í krafti meirihluta atkvæðamagns kysu að landsbyggðarfólk borgaði tvöfalda skatta og væru varahlutir til líffæragjafar? Er lýðræðislega fengin niðurstaða ætíð rétt? Má allt ef maður nær meirihlutanum með sér?

Jós.T. (IP-tala skráð) 30.6.2016 kl. 16:17

2 Smámynd:   Heimssýn

Jós.T.: Finnst þér sem sagt að Bretland megi ekki fara úr ESB jafnvel þótt meirihlutinn hafi ákveðið það? Finnst þér meira lýðræði í því að þingmenn ákveði, eins og í tilviki Bretlands á sínum tíma, að koma Bretlandi inn í ESB?

Heimssýn, 30.6.2016 kl. 18:03

3 identicon

Mér finnst að Bretland megi gera hvað sem þeim langar við aðild sína að ESB. Ég er bara ekki sannfærður um að lýðræði gefi ætíð gáfulegustu og bestu niðurstöðu. Að magnmæling þín á lýðræði sé einhver gæðastimpill á útkomuna.

Jós.T. (IP-tala skráð) 30.6.2016 kl. 19:22

4 Smámynd:   Heimssýn

Fólk getur haft sína skoðun á því hversu gáfulegir hlutir eru en kosningar eru ekki til þess að mæla gáfur heldur afstöðu til ákveðinna valkosta. Yfirleitt eru valkostirnir ákveðnir að vandlega íhuguðu máli, gjarnan með aðstoð sérfræðinga, þannig að það er nú líklega fremur varasamt að tala um heimskulega niðurstöðu í kosningu sem reynsluboltar eða snillingar hafa lagt upp með - eða hvað?

Heimssýn, 30.6.2016 kl. 21:23

5 identicon

Niðurstaðan ræðst ekki af því hverjir leggja upp kosninguna. Og í flestum kosningum er ekki verið að kjósa um jafn góða kosti. Þegar fólkið krefst þess að fá að kjósa um það hvort það eigi að skjóta upp í loft eða í hausinn á sér þá geta sérfræðingar, reynsluboltar og snillingar lítið gert til að afstýra röngu vali. Sérfræðingar, reynsluboltar og snillingar verða bara að vona að fólk láti ekki flipp stundarinnar ráða. Sérfræðingar, reynsluboltar og snillingar verða oft fyrir vonbrigðum.

Gallinn við lýðræðislegar kosningar um mál er að það verður ekki aftur snúið. Mistök, þó allir sjái þau, verða að fá að renna sitt skeið. Allir eru bundnir af ákvörðun meirihlutans. En ákvarðanir stjórnvalda og ráðamanna er auðveldara að leiðrétta svo til samstundis reynist þær rangar.

Jós.T. (IP-tala skráð) 30.6.2016 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 19
  • Sl. sólarhring: 190
  • Sl. viku: 984
  • Frá upphafi: 1117907

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 876
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband