Mánudagur, 4. júlí 2016
Útganga Bretlands úr ESB getur haft víðtæk áhrif í norðanverðri Evrópu
Það kanna svo að fara að innan tíðar opnist nýjar leiðir um efnahgagssamstarf milli Norðurlandanna allra og Bretlands, segir í grein eftir Hjörleif Guttormsson, fyrrverandi þingmannog ráðherra, í Morgunblaðinu 30. júní síðastliðinn.
Greinin er birt í heild sinni hér:
Útganga Bretlands úr ESB getur h aft víðtæk áhrif í norðanverðri Evrópu.
Árið 1994 var stofnuð á Bretlandi stjórnmálahreyfing sem bar nafnið Referendum Party, sem setti á oddinn aðeins eitt baráttumál, þ.e. þjóðaratkvæðagreiðslu um tengsl Stóra-Bretlands við Evrópusambandið. Að baki þessum hópi stóðu gagnrýnin öfl á þróun ESB í kjölfar Maastricht-sáttmálans, fremstur í flokki James Goldsmidt (1993-1997), óvenjulegur athafna- og hugsjónamaður sem dó fyrir aldur fram. Flokkurinn bauð fram í þingkosningum á Bretlandi 1997 og fékk um 800 þús. atkvæði, en vegna kosningakerfisins dugði það ekki til þingsætis. Undirritaður sat þing Referendum Party í Brighton haustið 1996 ásamt með liðsoddum frá öðrum Norðurlöndum sem barist höfðu gegn aðild að Evrópusambandinu, þeirra á meðal Kristen Nygaard sem fór fyrir Nei til EU, fjöldahreyfingunni í Noregi sem átti mestan þátt í að fella aðildarsamning Noregs við ESB 1994. Um svipað leyti kom fram á sjónarsviðið í Bretlandi Sjálfstæðisflokkurinn UKIP (UK Independence Party) sem lengi vel fór lítið fyrir, en undir forystu Nigel Farage frá og með 2009 hefur hann sótt fram hröðum skrefum, fékk 27,5% og 24 þingmenn í kosningum til Evrópuþingsins 2014, og er á þeim vettvangi orðinn stærri en gömlu og grónu stjórnmálaflokkarnir.
Atburðurinn sem ekki átti að geta gerst
Þetta er rifjað upp hér þegar fyrir liggur niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Bretlandi frá 23. júní sl. sem leiddi í ljós meirihluta fyrir því að Bretland segði sig úr Evrópusambandinu. Minnt skal á að sumar skoðanakannanir dagana fyrir þessar kosningar sýndu meirihlutafylgi við úrsögn, en svo rótfast var það sjónarmið að þetta hvorki ætti né mætti gerast að niðurstaðan úr atkvæðagreiðslunni varð óvænasti stjórnmálaviðburður í sögu ESB til þessa. Forysta Evrópusambandsins hefur alla tíð hatast við þjóðaratkvæðagreiðslur. Í þau fáu skipti sem þær hafa farið fram í aðildarríkjunum, hefur niðurstaðan gengið gegn tillögum frá Brussel, nú síðast í Hollandi í apríl í ár þegar 64% greiddu atkvæði gegn samningi ESB um nánari tengsl við Úkraínu. Ráð Brusselforystunnar og hlýðinna ESB-sinna við slíkum úrslitum hefur að jafnaði verið að láta endurtaka atkvæðagreiðslur eftir lítilsháttar breytingar. Kröfur um slíkt eru þegar komnar fram í Bretlandi, en í þetta sinn verður tæpast á þær hlustað. Útganga Bretlands er orðin staðreynd. Leitað er logandi ljósi að skýringum á niðurstöðunni, m.a. fullyrt að kjósendur hafi verið blekktir, en hinu er ekki haldið á loft hvernig ráðamenn austanhafs og vestan, með Obama forseta og Stoltenberg framkvæmdastjóra Nató í fararbroddi, kröfðust þess að Bretar sýndu ESB áfram hollustu. Segja má að mestallur heimurinn að frátöldum þeim Trump og Pútín hafi lagst í víking gegn Brexit!
ESB sem ólýðræðisleg valdablokk
Bresku kosningarnar hafa staðfest það rækilega sem öllum mátti vera ljóst, að Evrópusambandið er ólýðræðisleg valdablokk fjármagns og stórfyrirtækja sem færir völd og áhrif burt frá þjóðríkjunum í hendur yfirþjóðlegra stofnana, þar sem raunveruleg völd eru í höndum gömlu meginlandsríkjanna. Þetta sýndu ljóslega fyrstu viðbrögðin við úrsögn Breta þegar kvaddur var saman leiðtogafundur Þjóðverja, Frakka og Ítala en hin aðildarríkin 24 máttu standa álengdar og bíða frétta. Evrópusambandið átti í miklum erfiðleikum fyrir, einkum ríkin 16 sem búa við evruna sem sameiginlega mynt. Viðbrögð við vanda myntsambandsins hafa birst í kröfum um hertan samruna, m.a. um sameiginlega fjármálastjórn aðildarríkjanna. Slíkar hugmyndir eru nú fjær því að hljóta brautargengi en áður. Engin sameinandi leið hefur verið mörkuð um viðbrögð við flóttamannastraumnum og Schengen samstarfið er í miklu uppnámi. Leynimakkið kringum TTIP-viðskiptasamning ESB og Bandaríkjanna hefur sætt mikilli gagnrýni og enn aukið á tortryggni almennings. Það eru því framundan afar erfiðir tímar innanvert í ESB í aðdraganda þess að ganga þarf formlega frá útgöngu Breta í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar og semja um framtíðarsamskipti.
Fjölgar í hópi EFTA-ríkjanna?
En óvissa er ekki aðeins bundin við þróun innan ESB. Hún hvílir einnig yfir Bretlandi í kjölfar kosninganna. Báðar hefðbundnu stjórnmálablokkirnar, Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn eru í sárum eftir úrslitin og tekist verður á um forystu í þeim báðum á næstunni. Samhliða blasir við það stóra verkefni að finna þessu gamla efnahagsveldi nýjan stað í samskiptum við umheiminn. Bretar sögðu skilið við fríverslunarsamtökin EFTA og gengu í þáverandi Evrópubandalag 1973, sama árið og Danmörk. Nú er eftir að sjá hvort Bretland hallar sér að EFTA á nýjan leik sem jafnframt gæti leitt til endurskoðunar EES-samningsins, sem telja verður óboðlegt samskiptaform til lengri tíma litið. Vaxandi óánægja er með ESB-aðild Í Danmörku, Svíðþjóð og Finnlandi. Það kann því svo að fara að innan tíðar opnist nýjar leiðir um efnahagssamstarf milli Norðurlandanna allra og Bretlands í kjölfar aðskilnaðar á síðasta þriðjungi 20. aldar.
Hjörleifur Guttormsson
Nýjustu færslur
- Uppskrift að eitri allra tíma
- Jólakveðja
- Friðarganga og Evrópusamband
- Nokkur hundruð milljarðar út um gluggann
- Við bíðum enn, Þorsteinn
- Skyggnigáfa Össurar?
- Villugjarnt á Kögunarhóli
- Tollabandalag eða tollfrelsi á grundvelli fríverslunarsamninga
- Nýtt örlagatímabil fer nú í hönd. Hver vinnur að þessu sinni?
- Eruð þið ekki örugglega staðföst í Flokki fólksins?
- Alltaf sama blíðan í Eyjum eða hvað?
- Mýtan um vexti
- Hörmungarsagan
- Vont, og versnar líklega
- Gott fyrir svefninn
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 205
- Sl. sólarhring: 256
- Sl. viku: 1944
- Frá upphafi: 1177117
Annað
- Innlit í dag: 187
- Innlit sl. viku: 1764
- Gestir í dag: 183
- IP-tölur í dag: 180
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.