Stjórnarmyndun sem veigur væri í
Tölulega gæti þrenns konar mynstur skilað meirihlutastjórn eftir úrslitin. 1) Hægristjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins með þátttöku Framsóknar, Miðflokks og Viðreisnar og styddist sú við 35 þingmenn. 2) Vinstri stjórn fjögurra flokka undir forystu VG með aðild Samfylkingar, Framsóknar og Pírata hefði aðeins 32 þingmenn til að styðjast við og því þyrfti fimmti flokkur að koma til sem varahjól. 3) Blandað þriggja flokka stjórnarmynstur frá hægri til vinstri með þátttöku VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefði 35 þingmenn við að styðjast og væri á vetur setjandi. Að loknum kosningum fyrir ári taldi ég að mynda ætti slíka stjórn og skoðun mín er óbreytt, enda sýni viðkomandi flokkar sveigjanleika sem dygði til að koma á slíku samstarfi. Vænlegast er að slíkt samstarf væri undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur og félli þá fjármálaráðuneytið í skaut Bjarna Benediktssonar og utanríkismálin yrðu á hendi Lilju Daggar Alfreðsdóttur. Kjör hennar á þing, þrátt fyrir klofningsframboð Sigmundar Davíðs, felur í sér ánægjulegustu tíðindi þessara kosninga. Stjórn af þessum toga sem styddist við flokka með rótfestu í flestum kjördæmum gæti orðið trygging fyrir stöðugleika í stjórn landsins.Brýnustu framtíðarverkefnin
Málefnaumræðan í aðdraganda kosninganna var óvenjulega einsleit þar sem flestir flokkar töldu heilbrigðis-, mennta- og húsnæðismál vera brýnustu úrlausnarefnin. Ekki skal dregið úr því að slíkir undirstöðuþættir kalla í senn á stefnumörkun og fjármuni og ættu stöðugt að vera á dagskrá stjórnvalda. Að mínu mati lágu hins vegar önnur vegvísandi stefnumál í láginni, þótt vitað sé þar um mikinn ágreining milli flokka eða vinna að þeim hefur verið vanrækt af opinberri hálfu. Þar eru mér efst í huga frambúðarsamskipti Íslands við Evrópusambandið og stefnumörkun í umhverfismálum og náttúruvernd. Ólík sýn stjórnmálaflokka hérlendis á tengsl Íslands við ESB hefur verið kraumandi í stjórnmálaumræðunni í fullan aldarfjórðung og flokkar tekið hamskiptum eða farið kollhnís í afstöðu sinni. Umsókn naums meirihluta á Alþingi um aðild Íslands að ESB sumarið 2009 er stærsta óheillaskref síðari ára og endaði 2013 í útideyfu og ráðleysi upphafsmanna. Meirihluti hefur aldrei reynst vera fyrir slíkri aðild samkvæmt skoðanakönnunum og andstaðan hefur farið vaxandi. Í aðdraganda fullveldisafmælis er eðlilegt að hreinsa burt þessa óværu og taka síðan EES-samninginn til endurskoðunar í ljósi fenginnar reynslu og með hliðsjón af Brexit-útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Nýrri ríkisstjórn ofangreindra þriggja flokka ætti að vera treystandi til að hafa forystu í þessu grundvallarmáli.Náttúru- og umhverfisvernd í forgang
Undarlega hljótt var fyrir kosningar um stefnu og verkefni í umhverfis- og náttúruverndarmálum. Af einhverjum óútskýrðum ástæðum hafði flokkurinn sem tengir nafn sitt við grænt framboð þau örlagaríku mál nánast í þagnargildi. Ásamt kjarnorkuógninni er þó ekkert jafn skýrt letrað á vegginn varðandi framtíð síðmenningar okkar og afleiðingar óbreyttrar siglingar í umgengni við móður jörð. Parísarsamkomulagið í loftslagsmálum er óskuldbindandi óskalisti og óútfærður af Íslands hálfu. Aðrir þættir sem snúa að meðferð náttúruauðlinda og umgengni við landið eru víða í miklum ólestri. Vatnsaflsvirkjanir 10 MW og meira að afli lúta rammaáætlun, en fjöldi smærri virkjana er í undirbúningi eftirlitslítið í hagnaðarskyni. Menn fagna tekjum af ferðamannastraumi en víða er hætta á örtröð nema við verði brugðist. Hér reynir á skipulag og samþætt tök ríkis og sveitarfélaga. Að vori er kosið til sveitarstjórna og fyrir þann tíma þurfa Alþingi og ríkisstjórn, að gefa leiðsögn og svör um sinn þátt. Fráfarandi umhverfisráðherra sýndi góða viðleitni, en flokkur hennar hljóp frá verkunum. Ný ríkisstjórn þarf að taka umhverfimálin föstum tökum og auka til muna fjármagn til þeirra, m.a. í landvörslu. Þar á hún vísan hugmyndalegan hljómgrunn hjá æskufólki sem í vaxandi mæli setur spurningarmerki við þau óheillavænlegu vistspor sem nútíma neyslusamfélag skilur eftir sig. Þennan hljómbotn þarf að nýta og þar á Alþingi allt að sameinast um að gefa tóninn.Höfundur er náttúrufræðingur.
Athugasemdir
Eitt er víst að ríkisstjórn sem nú verður mynduð bíður ærin verkefni.Vonandi nær hún að afkasta heilmiklu,verði stjórnarandstaðan spök.Altént er heilmikið sem þarfnast lagfæringa og allir virtust sammála um að væri aðkallandi. --Ég sé fyrir mér að Það létti heilmikið að þurfa ekki að karpa um ESB inn eða út;Enda minna gamlir Kratar á að hún er "lokuð búðin í Haukadal"
Helga Kristjánsdóttir, 2.11.2017 kl. 01:14
Geturðu séð það fyrir þér, kæra Helga, að stjórnarandstaðan verði spök? Jafnvel þótt hún yrði að kyngja ósigri sínum, myndi DDRúv hamast í hlustendum Ríkisútvarpsins og egna þá upp á móti nýju ríkisstjórninni, unz þessir fallriddarar vinstri stjórnar væru komnir á fulla ferð aftur með Rúvurum og ESB-innlimunar-genginu!
En haldi þetta syndróm áfram hjá DDRúv-genginu, þá eru þau að búa til kjöraðstæður til að láta (loksins!) til skarar skríða gegn vinnusvikum þeirra og brotum á hlutleysisreglum Rúv.
Eins og Páll Vilhjálmsson blaðamaður (sem lét Steingrím J. gabba sig til að kjós VG 2009!!) segir í nýlegum pistli sínum:
Á fréttastofu RÚV er ráðandi pólitísk vinstrimenning sem er faglegum metnaði yfirsterkari.
Og þetta gengur náttúrlega ekki lengur, að þeir (ríkisstofnun!) steypi sjálfum forsætisráðherra landsins af stóli með langtíma-aðgerð og ætli sér svo að gera ný og ný áhlaup á Stjórnarráðið, meðan það er þeim og Brusselvinum þeirra ekki þókknanlegt. En við getum breytt þessu. 1. áhlaup, löngu tímabært, væri að draga um 25% úr fjárveitingum til Rúv og neyða það þannig til uppsagna, þ.m.t. langsætinna vinstri manna á fréttastofunni.
Jón Valur Jensson, 2.11.2017 kl. 15:24
Getiði átt von á öðru, en Píratar og Logi reyni að koma ESB-umræðunni af stað og heimti nýja stjórnarskrá og gengið verði til kosninga um áframhaldandi viðræður um ESB-aðild, og Kata verði til í það, og reyni jafnvel að kúa Framsóknarflokkana til að gangast inn á það líkt og Jóhanna gerði gagnvart VG? Ég á alveg eins von á því, og treysti engu í þeim efnum. Þau Sigurður Ingi og Lilja, og sömuleiðis Sigmundur Davíð, verða að standa fast á sínu í þessum efnum og segja hreinlega, að þau hætti að tala við þau, ef þau ætli að sitja við sama heygarðshornið í þessum efnum og ganga hreinlega út. Mér líst illa á þessa ríkisstjórn, sem er verið að reyna að lemja saman, enda verður Kata litla ekki í öðru en að smala saman köttum allan tímann, eins og áherslurnar eru ólíkar hjá þessum flokkum. Þetta var versta stjórnin, sem hugsast gat, og ég treysti því ekki, að hún haldi í langan tíma. Þetta verður Rúv-stjórnin, og sannkölluð sem slík. Ef þessi Sovétfréttastofa Rúv ætlar svo að halda svona áfram eins og hún hefur gert og skipta sér svona mikið af stjórnmálum, þá tel ég fullveldið nú í hættu að vissu leyti, enda Rúv orðið eins og ríki í ríkinu, og vill öllu stjórna hér á landi, smáu sem stóru. Það verður að fara að gera eitthvað í því máli, áður en þetta fer alveg úr böndunum. Ég er alls ekkert bjartsýn á þessar tilraunir Kötu til að mynda ríkisstjórn, og hef fyrirvara á öllu, sem frá þessu fólki kemur, enda verður aldrei flóafriður fyrir ESB-ruglinu, meðan Píratar og Logi eru þarna, og ekki batnar það, ef þau reyna að fá Viðreisn með sína vitleysu til liðs við sig. Þá verður fyrst hætta á, að við glötum fullveldinu. Ég vona því, að þetta takist ekki hjá þeim.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2017 kl. 18:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.