Leita í fréttum mbl.is

Fundur í dag um valdsækni ESB í orkumálum

ÖrebechOpinn fundur um aukið vald Evrópusambandsins í orkumálum hér á landi verður haldinn í dag klukkan 17.15 í stofu HT-102, Háskólatorgi í Háskóla Íslands við Sæmundargötu 4 í Reykjavík. Fyrsti frummælandi á fundinum er Peter T. Örebech, lögfræðiprófessor við Háskólann í Tromsö í Noregi, en hann hefur bent á að ESB muni fá verulega aukið vald yfir orkumálum hér á landi við samþykkt svokallaðs þriðja orkumálapakka Evrópusambandsins. Aðrir frummælendur á fundinum verða Vigdís Hauksdóttir lögfræðingur og Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur.

Á fundinum verður fjallað um stefnu Evrópusambandsins í orkumálum og hvaða áhrif hún getur haft á þennan málaflokk hér á landi. Fjallað verður um eftirtaldar spurningar:

- Hvaða vald fær orkustofa Evrópusambandsins og landsreglarinn og hvernig munu þessir aðilar beita því?

- Hver er stefna Evrópusambandsins í orkumálum og er skynsamlegt að Íslendingar undirgangist hana?

- Munu íslensk stjórnvöld missa vald til að ákveða hvort sæstrengur verður lagður eða ekki?

- Er best fyrir Íslendinga að afþakka orkulöggjöfina? Hvernig mun Evrópusambandið bregðast við höfnun?

 

Að loknum erindum frummælendanna, Peters, Vigdísar og Bjarna, verða almennar umræður.

Fundarstjóri verður Haraldur Ólafsson, prófessor og formaður Heimssýnar. 

Fundurinn er opinn og allir eru velkomnir. Fundarboðendur eru Ísafold, Herjan og Heimssýn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessi fundur. efni hans og erindi við þjóðina er enn ein sönnun þess að innganga okkar í EES var skýlaust afsal fullveldis.

Og þar með brot á stjórnarskránni.

Árni Gunnarsson, 22.10.2018 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 166
  • Sl. sólarhring: 166
  • Sl. viku: 991
  • Frá upphafi: 1117883

Annað

  • Innlit í dag: 153
  • Innlit sl. viku: 880
  • Gestir í dag: 148
  • IP-tölur í dag: 148

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband