Leita í fréttum mbl.is

Skynsemi og rómantík hönd í hönd

heimssyn-jon-sigurdsson

Sautjánda júní minnumst viđ stofnun lýđveldis á Íslandi.  Í augum margra var ţađ lokahnykkur á aldarlangri sjálfstćđisbaráttu sem var merk fyrir margra hluta sakir.  Í augum okkar nútímamanna er óvenjulegt ađ fátćkustu hreppar ríkis vilji ađskilnađ, ţví ţannig er ţađ ekki í dag.  Ţađ eru Bretar, en ekki Portúgalir, sem vilja yfirgefa Evrópusambandiđ, Katalónar en ekki Andalúsíumenn sem vilja yfirgefa spćnska ríkiđ og svo mćtti áfram telja.  Ísland var vissulega fátćkara en flestar, ef ekki allar sveitir Danmerkur, en engu ađ síđur vildu Íslendingar sjálfstćđi og fengu ţađ um síđir.  Kannski hefđi fariđ á annan veg ef meira af ţeim auđi sem fór í hallir Danakóngs, eđa graut handa ţeim sem höfđu fyrir starfa ađ höggva Svía eđa Prússa, hefđi fariđ í ađ smíđa skip til ađ draga fisk viđ strendur Íslands.  Ţađ er ţó ekki víst, ţví ţjóđernisrómantíkin var sterk á 19. öld.

Ţađ var ţó síst rómantík sem stjórnađi penna Jóns Sigurđssonar.  Jóni var tamara ađ skrifa um frjálsa verslun, lög og rétt en sunnangolu og foldarskart.  Jón taldi ađ ţađ vćri einfaldlega skynsamlegt ađ Íslendingar settu sér lög sjálfir, ţví ţannig fengjust best lög.  Í ţví fólst engin anduđ á Dönum.

Persónudýrkun er međ minnsta móti á Íslandi.  Hún er líka ólík ţví sem tíđkast víđa um heim ţar sem minningu manna er ţví meira haldiđ á lofti sem ţeir hafa drepiđ fleiri.  Engan drap Jón forseti.  Jón varđi ćvi sinni til ađ berjast fyrir hagsmunum og réttindum Íslendinga og ţví ţótti viđeigandi ađ stofna lýđveldi á fćđingardegi Jóns.  Hefđi Jón fćđst í desember hefđu lýđveldismenn ţó varla valiđ ţann dag.  Ţađ hentar illa ađ halda ţjóđhátíđ í myrkri og hríđ, en ţađ gćti hentađ vel til ađ koma ţjóđhátíđardegi fyrir kattarnef.

Ţótt ţađ fyrirkomulag ađ reka sjálfstćtt lýđveldi hafi margsannađ sig eru enn menn sem efast.  Ţeir vilja flytja löggjafarvaldiđ úr landi, og helst sem mest af framkvćmda- og dómsvaldinu í leiđinni.  Ef ţađ gengur ekki ađ gera ţađ í einu lagi, ţá skal reyna ţađ í bútum.  Engan skyldi undra ađ ţessum mönnum leiđist 17. júní og finnist hvimleitt ađ hafa Jón Sigurđsson yfir sér í hvert sinn sem ţeir eiga leiđ um Austurvöll.  Viđ hin reynum hvađ viđ getum ađ sýna ţessum furđufuglum umburđarlyndi, höldum upp á afmćli Jóns, lýđveldisins og stjórnarskrárinnar og göngum glöđ út í sumariđ.  

https://www.frettabladid.is/frettir/haettum-ad-hygla-joni-sem-hetju-og-holdum-thjodhatid-i-desember/


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ţorsteinn Briem

Heimssýnarmenn hafa ađ sjálfsögđu ekki tekiđ eftir ţví ađ haldiđ er upp á ţjóđhátíđardaga í Evrópusambandsríkjunum, sem öll eru sjálfstćđ ríki. cool

Og Heimssýn ćtti nú ađ hringja í Viktor Orbán, forsćtisráđherra Ungverjalands, og tilkynna karlinum ađ Ungverjaland, sem er í Evrópusambandinu, sé ekki fullvalda og sjálfstćtt ríki.

8.6.2021:

Viktor Orbán: Hungary Supports European Union Membership of Albania

En ţjóđhátíđardagar til ađ mynda Dana, Svía, Finna og Frakka, Bastilludagurinn, og styttur sjálfstćđishetja úti um allar koppagrundir í ríkjum Evrópusambandsins hafa greinilega alveg fariđ framhjá "Heimssýn".
cool

Ţjóđhátíđardagar Norđurlandanna - Vísindavefurinn

En engan skyldi undra ađ Heimssýnarmönnum "leiđist 17. júní og finnist hvimleitt ađ hafa Jón Sigurđsson yfir sér í hvert sinn sem ţeir eiga leiđ um Austurvöll". cool

"Frjáls verslun.

Jón [Sigurđsson forseti] lagđi sig fram um ađ kynna sér allt sem hann gat viđvíkjandi verslunar- og hagsögu Íslands.

Jón benti á ađ verslunarfrelsi vćri undirstađa ţjóđfrelsis. cool

Hann hamrađi sífellt á ţví ađ einokunarverslunin hefđi haft afgerandi áhrif til ills fyrir ţjóđina.

Öflug forysta hans hafđi úrslitaáhrif á ađ verslun viđ Ísland var gefin öllum ţjóđum frjáls 1. apríl 1855." cool

"Í sjálfstćđisbaráttunni lagđi Jón mikla áherslu á ađ meginréttindi Íslands byggđust á Gamla sáttmála frá 1262-1264, en samkvćmt honum gekk Ísland í samband viđ Noreg sem frjálst land međ ákveđnum skyldum og réttindum."

"Jón benti međal annars á ađ međ Gamla sáttmála 1262 og einveldishyllingunni 1662 hafi Íslendingar einvörđungu gengiđ Danakonungi á hönd."

"Ný félagsrit voru málgagn Jóns. Í skrifum sínum ţar barđist hann fyrir stjórnfrelsi, kjörfrelsi, málfrelsi, verslunarfrelsi og atvinnufrelsi til handa Íslendingum og birti ótal hvatningargreinar til Íslendinga um hvađeina sem verđa mátti landinu til viđreisnar.

Jón taldi ţó ađ frelsi án banda, án takmörkunar, vćri ekki frelsi, heldur agaleysi og óstjórn." cool

Hver var Jón Sigurđsson? - Vísindavefurinn

Ţorsteinn Briem, 18.6.2021 kl. 10:12

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 33
  • Sl. sólarhring: 41
  • Sl. viku: 939
  • Frá upphafi: 1117711

Annađ

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 838
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband