Leita í fréttum mbl.is

Svarið liggur fyrir

Morgunbladid010918Hópur, sem flestir líta á sem auðtrúa sérvitringa, vill fyrir alla muni færa ríkisvaldið til útlanda.  Hópurinn býður fram í næstkomandi Alþingiskosningum. 

Einn þeirra skrifar í Vísi og vill “útkljá vafamál” og “fá svör við spurningum” í svokölluðum viðræðum við Evrópusambandið. 

Svarið liggur fyrir.  Það er að Evrópusambandið ræður innan Evrópusambandsins.  Sambandið er í langvinnu samrunaferli og það er í besta falli barnalegt að halda að einhver “vafamál” hvort heldur er í nútíð eða framtíð verði útkljáð í inngönguferli.  Formlegar valdheimildir Evrópusambandsins og aðferðir sem það getur beitt gagnvart erfiðum hreppum eru slíkar að textar í gömlum samningum vega létt. Tíminn vinnur fljótt á svoleiðis samningum.  Hverjum datt t.d. í hug árið 1994, að eftir aldarfjórðung fengi Evrópusambandið í skjóli EES að skikka Íslendinga til að heimila innflutning á ófrosnu kjöti og að framselja dómsvald í orkumálum?

https://www.visir.is/g/20212141447d/um-spaenska-togara-og-hraedsluarodur

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

 Það er sorglegt að fólk sem vill láta taka sig alvarlega skuli ekki þekkja ESB betur en fram kemur í viðhengdri grein. Umsóknarríki að esb verður að aðlaga sig að lögum þess. Annað er fullkominn ómöguleiki fyrir sambandið. Því er ekkert um að semja, einungis aðild með öllum kostum og göllum sem því fylgja.

Menn geta hins vegar deilt um þá kosti og galla, en því miður er málflutningur esb sinna ekki á þann hátt. Þeir þykjast geta samið.

Sá er þessa athugasemd ritar er ekki í vafa um að fyrir lítið eyland, langt frá meginlandi Evrópu, eru gallar yfirþyrmandi umfram kosti aðildar. Auðvitað má finna einhverja kosti við aðild, en þeir eru léttvægir.

Gunnar Heiðarsson, 11.8.2021 kl. 23:30

2 Smámynd: Halldór Jónsson

 Hversvegna veiddu spánskir og franskir togarar við Skotland? Hver leyfði þeim það?

Halldór Jónsson, 12.8.2021 kl. 07:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 256
  • Sl. sólarhring: 377
  • Sl. viku: 2665
  • Frá upphafi: 1166039

Annað

  • Innlit í dag: 209
  • Innlit sl. viku: 2300
  • Gestir í dag: 200
  • IP-tölur í dag: 199

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband