Mánudagur, 28. febrúar 2022
Evrópusambandið og fallbyssufóðrið
Flestum er í fersku minni þegar umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu var samþykkt á Alþingi 16. júlí 2009. Þar voru í fararbroddi stjórnmálahreyfingar sem hafa löngum talið sér skylt að veita friðar- og afvopnunarmálum brautargengi. Ekki vildu allir á þeim bæjum horfast í augu við hið hernaðarlega eðli Evrópusambandins og mösuðu þess í stað í sífellu um að þeir hefðu oft komið til Evrópu og aldrei séð Evrópusambandshermann.
Nú, rúmum áratug síðar stingur Evrópusambandið sér á bólakaf í blóðuga styrjöld í Evrópu. Sambandið kaupir og afhendir vopnin. Ekki er þörf á að kaupa menn til að bera þau, því einn styrjaldaraðila útvegar þá með því að afnema ferðafrelsi og þvinga menn nauðuga í veg fyrir byssukjaftana. Það er gamall evrópskur siður sem Evrópusambandið kippir sér lítið upp við, og kannski ekki heldur vinir þess á Íslandi.
https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/statement_22_1441
Nýjustu færslur
- Jólakveðja
- Friðarganga og Evrópusamband
- Nokkur hundruð milljarðar út um gluggann
- Við bíðum enn, Þorsteinn
- Skyggnigáfa Össurar?
- Villugjarnt á Kögunarhóli
- Tollabandalag eða tollfrelsi á grundvelli fríverslunarsamninga
- Nýtt örlagatímabil fer nú í hönd. Hver vinnur að þessu sinni?
- Eruð þið ekki örugglega staðföst í Flokki fólksins?
- Alltaf sama blíðan í Eyjum eða hvað?
- Mýtan um vexti
- Hörmungarsagan
- Vont, og versnar líklega
- Gott fyrir svefninn
- Lokuð leið
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 2
- Sl. sólarhring: 96
- Sl. viku: 1741
- Frá upphafi: 1176914
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 1579
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Með fullri virðingu.
Hefur rússneska sendiráðið yfirtekið þessa síðu Sjálfstæðisfólks þjóðarinnar??
Þó margir í okkar hópi afneiti lofslagsbreytingum vegna brennslu jarðeldsneytis, og þeir eigi sniðmengi með fólki sem afneitar alvarleik drepsóttarinnar sem kennt er við kóvid, þá er það hliðarspor viðkomandi sem vissulega skaðar okkur hin sem teljumst vera með fulli fimm, en slík hliðarspor hafa ætíð verið utan þessa ágæta bloggs sem Heimsýn hefur staðið fyrir.
Færslan hér að ofan er svo heimsk, að það er ekki einu sinni hægt að gráta hana, hún er misnotkun á þeim málstað sem þessi bloggsíða stendur fyrir, og hún er árás á heilbrigða skynsemi fólks.
Pótintátar rússneska sendiráðsins munu líklegast svara með þrautæfðum þvættingi, en ef ræturnar má rekja til þeirra forheimsku sem Útvarp Saga stendur fyrir, með fyrri rótum á afneitun Kóvid faraldursins eða áhrifa gróðurshúsloftslagslofttegunda á loftslag og hitastig jarðar, þá verður svarið við þessari athugasemd þögnin ein.
Því heimskt fólk er sjaldan svo heimskt að það hefur ekki vit að þegja þegar bent er á heimsku þess.
Og vettvangurinn er ekki á Útvarpi Sögu, Fréttin.is eða á öðrum síðum forheimskunnar.
Það afsakar samt ekki skömmina sem Heimsýn er flækt í.
Hafið þið ekki fattað það.
Skammist ykkar.
En samt með vinsamlegri kveðju að austan.
Ómar Geirsson, 28.2.2022 kl. 16:48
1.3.2022 (í dag):
Meirihluti Finna vill að Finnland fái aðild að NATO
13.9.2015:
Meirihluti Svía vill að Svíþjóð fái aðild að NATO
Þorsteinn Briem, 1.3.2022 kl. 12:58
Allt er heimska hjá mega heimsreglunni eða hvað? Það opinberar óvart Krea Rudik með mynd af sér og vopni í höndum;
"Erum ekki aðeins að berjast fyrir Úkraínu,heldur líka fyrir nýju heimsreglunni.
Helga Kristjánsdóttir, 1.3.2022 kl. 15:31
Blessuð Helga.
Þannig séð er það sök sér að aðhyllast Vúdú sem og aðra hjátrú á gamals aldri, að vera kennari þekkingar og heilbrigðar skynsemi gerir bábiljuna aðeins krúttlegri.
En þú ert móðir og amma Helga, bullið varðandi New order er bein atlaga að framtíð þess lífs sem þú á sínum tíma sórst að vernda.
Samt ekki nærri eins skaðlegt en sú heimska að tala um fallstykki Evrópu, svona í ljósi þess að Evrópa fann ekki upp stríð um yfirráð, eðli málsins vegna því ísaldarjökulinn fór seinna frá okkur en sunnar við Miðjarðarhaf.
Eða það ógeð, sem fékk mig til að setja inn þessa athugasemd, að hæðast að því að þegar smærri þjóð sem sætir innrás, skuli bregðast við með herkvaðningu bardagafæra manna.
Það óeðli vansæmir þann málstað sem Heimssýn stendur fyrir.
Enda þegir kjúklingurinn sem hélt að hann væri í skjóli, vansæmdin fyrir hina sem bendla nafn sitt við Heimssýn, minnkar samt ekki við þá þögn.
Þetta er eins og að vega að fjöregginu sjálfu.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 1.3.2022 kl. 16:39
Og langamma drengur (ekki kennari)sem metur ekki færslu Heimsýnar sem háð í garð Úkraínsku þjóðarinnar.Upphaf færslunnar er ádeila á stjórnmálahreyfinguna sem í fararbroddi áorkaði eftir hrun að fá samþykkta umsókn í ESB. Ætla ekki að endurrita neitt sem þar/hér er skrifað en allan þann tíma síðan hef ég fylgst með þeim sem samþykktu umsókninni og veit ekki betur en þú og ELLE mín elskuleg hafi verið stótyrt af hneykslun vegna þeirrar samþykktar.
Aðeins um þjóð;hversu oft hefur þetta samband fyrirlitið merkinguna þjóð? Engin landamæri! Um fátt hefur verið meira barist en einmitt þau sem veita skjól og varnir. Oftast er undanfarinn augljós er samþjappað lið er orðið gráðugt í lóðir og auðlindir. Bíð öllum hér góða nótt.
Helga Kristjánsdóttir, 1.3.2022 kl. 23:35
Blessuð Helga.
Evrópusambandið er eins og það er og hvað mig varðar þá held ég að óbeit mín á þessu frjálshyggjubandalagi stórfyrirtækja hafi aukist með árunum.
Það kemur þessu máli bara ekkert við og það er sjaldgæf lágkúra að tengja sjálfstæðisbaráttu okkar við það sem er að gerast í Úkraínu eins og höfundur færslunnar gerir í þessum pistli.
Þetta er ekki stríð tveggja ríkja um yfirráð yfir landsvæðum, heldur sætir annað ríkið miskunnarlausri árás þar sem reynt er að brjóta sjálfstæði þess á bak aftur.
Fórnarlömbin eru venjulegt fólk eins og ég og þú, börn þess og barnabörn.
Það er hráskinsleikur að gefa eitthvað annað í skyn.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 2.3.2022 kl. 08:24
Pútín er sem sagt ekki að ráðast á Úkraínu vegna þess að Úkraína vill fá aðild að Evrópusambandinu og NATO, þar sem öll ríkin eru fullvalda og sjálfstæð ríki.
Með aðildinni að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) er Ísland de facto í Evrópusambandinu, enda fylgir íslenska ríkið Evrópusambandinu og NATO í einu og öllu.
Og enginn stjórnmálaflokkur, sem á sæti á Alþingi, vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn.
Þorsteinn Briem, 2.3.2022 kl. 08:58
Evrópusambandið er sem sagt frjálshyggjubandalag en undirritaður hélt að mörlenskir frjálshyggjumenn væru á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu vegna þess að það væri vinstrisinnað bandalag.
Þorsteinn Briem, 2.3.2022 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.