Leita í fréttum mbl.is

Ástamál smáþjóða

Þegar ríkisstjórn Íslands óskaði eftir innlimun Íslands í Evrópusambandið apaði hver Evróputungan eftir annarri að Evrópusambandinu þætti svo ósköp vænt um smáþjóðir að íslenska yrði vitaskuld opinbert tungumál í sölum Evrópusambandsins. 

Tæpir fjórir áratugir eru síðan Katalónar, Baskar og Galisíumenn urðu þegnar í Evrópusambandinu, en tungumál þessara þjóða eru ekki til hjá Evrópusambandinu, nema sem rannsóknaverkefni sérfræðinga. 

Slík er ást Evrópusambandsins á smáþjóðum. 

Nú hafa spænsk stjórnvöld beðið um að vegur þessara tungumála verði aukinn.  Og Evrópusambandið mun hugsa sig um. 

Þrjátíu og sjö ár var greinilega of knappur tími til þess.

https://www.ft.com/content/5de62c76-6db1-4f47-a53f-37c03d696b73


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Þið elskið að tala um innlimun. Á meðan innlimun rússa á Úkraínu er það sem raunveruleg innlimun er með valdi.

Ríki ganga frjáls í Evrópusambandið og síðan ganga þau frjáls úr Evrópusambandinu (Bretland en það er ekki að ganga vel að ganga í Evrópusambandinu og leggja allt í rús í leiðinni).

Þessi heilabilun og þvættingur hjá ykkur er talsvert þreyttur og endurnýttur. Enda er ljóst að andstæðingar ESB á Íslandi hafa ekki nein mótrök gegn inngöngu Íslands í ESB og hafa aldrei nokkurntímann haft.

Þetta er bara samsæristal í ykkur, byggt á áróðri og þvælu. Hefur aldrei verið neitt annað.

Jón Frímann Jónsson, 30.8.2023 kl. 23:38

2 Smámynd:   Heimssýn

Ekki er tilefni til að leggja þá merkingu í orðið "innlimun" að hún sé alfarið gegn vilja stjórnvalda í því landi sem innlimað er. 

Heimssýn, 31.8.2023 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 344
  • Sl. sólarhring: 363
  • Sl. viku: 1807
  • Frá upphafi: 1120438

Annað

  • Innlit í dag: 327
  • Innlit sl. viku: 1545
  • Gestir í dag: 312
  • IP-tölur í dag: 302

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband