Leita í fréttum mbl.is

Hver tekur mark á bænaskjalinu?

Til eru þeir sem telja fullveldi fánýtt og úrelt.  Lög og reglur sé best að fá frá útlöndum vegna þess að þar viti fólk svo mikið og sé gott í að skrifa reglur.

Hugsum okkur að útlendingarnir vilji efla flugöryggi og ákveði að bannað verði að fljúga nær eldgosi en 30 km og skipti þá engu máli hvert öskuna leggur, eða hvort einhver aska kemur upp í gosinu. 

Eldgos hefst svo í grennd við Grindavík.  Keflavíkurflugvöllur lokast, sé miðað við fyrrgreinda skáldaða reglu, og opnast völlurinn ekki aftur fyrr en gosi lýkur.  Flugrekendur senda bænaskjal til stjórnvalda og benda á að það sé engin aska í lofti, eða að flesta daga fjúki askan í átt frá flugvellinum og auðvelt sé fyrir flugmenn að forðast hana. 

Hvort ætli sé líklegra til árangurs að senda bænaskjal til stjórnvalda á Íslandi sem eru kosin af fólkinu í landinu eða til stjórnvalda í erlendri stórborg þar sem mönnum er í raun slétt sama um flug á Íslandi, nú eða nokkuð annað sem á Íslandi gerist ef út í það er farið?

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það þarf að setja þetta lið á skólabekk og fræða þau um þann tíma, sem við vorum undir Dani seld, og hversu þægilegt það var nú eða skemmtilegt. Ef þetta fólk getur þá skilið það. Menn kvörtuðu sáran undan fjarlægðinni við valdið á þeim öldum, sem við vorum undir Dani seld, eins og bæði Færeyingar og Grænlendingar gera núna. Það er eins og þetta fólk skilji það ekki, loki bæði augum, eyrum og heilanum fyrir augljósum staðreyndum. Þetta er eins og ungbörn, hvað þessi mál varðar, og virðast varla hafa þroskann til að skilja þetta. Það er mikil raun af þessu. Ég get ekki sagt annað.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 14.11.2023 kl. 07:34

2 identicon

Fullveldi Íslands var aðeins blekking frá upphafi.

Ein milljón dollara " lán " árið 1939.

Frá banka sem útdeildi svokallaðri Marshall aðstoð.

Snilldin fólst í að láta breta hernema Ísland og láta Bandaríkin taka við því hernámi þar semBandaríkjum var bannað beinum afskiptum af bandaríska þinginu.

Fáir vita að Bandaríkin eru mesti áhrifavaldur að núverandi evrópubandalag varð að veruleika.

Ellegar Kannski (IP-tala skráð) 14.11.2023 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 124
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 106
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband