Leita í fréttum mbl.is

Alvörumál

Þegar ljóst var að hvorki Noregur né Ísland væru á leið inn í Evrópusambandið eftir hefðbundinni leið kom mikill kraftur í að koma þessum þjóðum inn sambandið bakdyramegin.  Sú leið felst í skapandi túlkun á EES-samningnum, sem öll miðar að tilfærslu á valdi frá kjörnum fulltrúm í þjóðlöndunum til embættiskerfis Evrópusambandsins. 

Arnar Þór Jónsson ræðir þessi mál í þarfri ádrepu.  Hann segir m.a.:

Hvað þýðir þetta fyrir Íslendinga? Svar: Samhliða því að stöðugt fleiri málaflokkar eru felldir undir EES samninginn mun ákvörðunarvald í stórum málaflokkum flytjast frá Alþingi til ESB, eins og þegar liggur fyrir á sviði orkumála. Þetta mun hafa þau áhrif að við missum ekki aðeins frá okkur lögin, heldur einnig völdin. Í framkvæmd mun þetta auka hættu á að Íslendingar missi úr sínum höndum eignarhald og yfirráð yfir landinu, vatninu, rafmagninu og sjávarútveginum. Í stuttu máli þýðir þetta að við munum missa frá okkur frelsið og sjálfsákvörðunarréttinn.

 

Ádrepa Arnars Þórs er hér:

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2300544/

 

Þeir sem vilja mæla með Arnari Þór til að stíga í stærsta ræðustól landsins eiga erindi hingað: 

https://island.is/umsoknir/maela-med-frambodi/?candidate=1000007

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Allir þeir sem vilja Ísland áfram sem fullvalda ríki ættu að styðja við framboð Arnars Þórs

Júlíus Valsson, 22.3.2024 kl. 08:29

2 identicon

Arnar Þór er sá einasti, sem ég treysti til þess að vera forseti, og styð hann fyllilega. ARNAR ÞÓR Á BESSASTAÐI!!! Ég vona, að svo verði, og fólk verði svo skynsamt að kjósa hann í embætti forseta, því að hann stendur upp úr af öllum þeim frambjóðendum, sem hafa komið fram til þessa, og sá allra hæfasti, hvað sem hver segir.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.3.2024 kl. 10:51

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Ekki spurning með Arnar Þór sem forseta.

Hinsvegar er nokkuð ljóst á allri fréttamennsku

að RUV er búið að velja sinn frambjóðanda og munu

fréttir þaðan litast af því.

ICESAFE frambjóðandi hefur engvan áhuga að standa

með sinni þjóð.

Sigurður Kristján Hjaltested, 22.3.2024 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 5
  • Sl. sólarhring: 125
  • Sl. viku: 660
  • Frá upphafi: 1133180

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 597
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband