Leita í fréttum mbl.is

Virtur franskur banki varar við ójafnvægi innan evrusvæðisins

"Í nýrri skýrslu frá franska bankanum BNP Paribas er varað við vaxandi spennu innan evrusvæðisins á milli norður- og suðurhluta þess. Í skýrslunni segir m.a. að slakt efnahagsástand í suðurhluta evrusvæðisins undanfarinn áratug hafi gert það að verkum að hann sé ekki samkeppnishæfur við norðurhlutann.

Uppsveifla á húsnæðismörkuðum vegna lágra stýrivaxta hafi til þessa falið vandann en fyrir vikið hafi vandamálin hrannast upp. Ertu Spánn og Ítalía sérstaklega nefnd í þessu sambandi. Frá þessu var greint í breska dagblaðinu Daily Telegraph í gær.

„Þó hægt sé að fela spennuna í efnahagsuppsveiflu mun hún leita upp á yfirborðið í niðursveiflu. Það er engin tilviljun að öll misheppnuð myntbandalög hafa verið lögð niður á tímum spennu í efnahagslífinu,” segir í skýrslunni sem ber heitið 'EMU Concerns'.

Bankinn segir að miðstýrt peningamálakerfi evrusvæðisins sé ótraust í grundvallaratriðum en gekk ekki svo langt að spá því að svæðið myndi líða undir lok. Peningamálastefna evrusvæðinsins gæti ekki leyst úr málum eins og staðan væri nú og myndi aðeins gera þau erfiðari viðfangs.

„Því meira sem hagkerfin þróast í mismunandi áttir, því óhagstæðari verður peningamálstefnan. Það sem kann að vera of þröngt fyrir suma kann að vera of vítt fyrir aðra innan Myntbandalags Evrópu sem aftur leiðir til þess að mismunurinn á milli hagkerfa eykst enn meira,” segir ennfremur í skýrslunni.

Fram kemur í frétt Daily Telegraph að enginn banki á evrusvæðinu hafi spáð endalokum evrusvæðisins en hins vegar hafi bankar utan þess velt þeim möguleika fyrir sér t.a.m. breski bankinn HSBC og bandaríski fjárfestingabankinn Morgan Stanley."

Heimildir:
Jafnvægi evrusvæðisins ógnað? (Vb.is 09/01/08)
Spain and Italy threaten EMU stability (Telegraph.co.uk 09/01/08)

Annað:
Markets 'too complacent about break-up of eurozone' (Telegraph.co.uk 20/04/05)
Ditching euro 'could benefit Italy' (Telegraph.co.uk 12/07/05)
BNP Paribas


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ekkert ríki innan evrusvæðisins hefur leitt hugann að því að ganga úr því.Hinsvega eru háværar raddir hér á landi um að leggja niður þann gjaldmiðil sem er hér á landi og taka upp evru eða annan gjaldmiðil.Til þess að það sé hægt þurfum við að ganga í Evrópusambandið, eða í ríkjasamband við eitthvert það ríki sem hefur gjaldmiðil sem er nothæfur.Til dæmis Noreg.

Sigurgeir Jónsson, 10.1.2008 kl. 23:16

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

"Ekkert ríki innan evrusvæðisins hefur leitt hugann að því að ganga úr því."

Ýmsir sérfræðingar eru þó þeirrar skoðunar að slíkt kunni aðeins að vera tímaspursmál. 

Hjörtur J. Guðmundsson, 11.1.2008 kl. 01:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.12.): 44
  • Sl. sólarhring: 77
  • Sl. viku: 2007
  • Frá upphafi: 1176861

Annað

  • Innlit í dag: 39
  • Innlit sl. viku: 1827
  • Gestir í dag: 39
  • IP-tölur í dag: 38

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband