Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, ágúst 2007

75 milljörđum króna variđ í áróđur fyrir auknum samruna

Samkvćmt fjárlögum Evrópusambandsins fyrir áriđ 2008 mun sem samsvarar rúmlega 75 milljörđum króna verđa variđ í ýmis konar áróđur fyrir auknum samruna innan ţess eđa eins og ţađ er orđađ í fjárlögunum "til ađ styrkja evrópskar stofnanir og félagasamtök sem vinna ađ auknum evrópskum samruna." Um 600 milljónum króna verđur ennfremur variđ í áróđur međ ţađ ađ markmiđi ađ reyna ađ fá ríki utan Evrópusambandsins til ađ ganga í ţađ. Ţá verđur rúmum 17 milljörđum variđ í ýmis almannategslaverkefni til ađ bćta ímynd sambandsins á međan vel yfir 32 milljarđar fara í kostnađ vegna ferđalaga og skemmtunar fyrir embćttismenn ţess.

Ađ lokum má geta ţess ađ 17 milljarđar eru eyrnamerktir sameiginlegri utanríkis- og öryggisstefnu Evrópusambandsins jafnvel ţó hún taki ekki gildi nema fyrirhuguđ stjórnarskrá sambandsins nái fram ađ ganga. Nokkuđ sem ekki liggur endanlega fyrir hvort muni verđa raunin.

Heimild:
Britain will spend millions on EU opt-outs (The Sunday Telegraph 26/08/07)


"Algjört brjálćđi ađ ganga í ESB"

Gabriel Stein, ađalhagfrćđingur alţjóđahagfrćđisviđs Lombard Street Research, hélt erindi á ráđstefnu sem fram fór 23. ágúst sl. á vegum Rannsóknamiđstöđvar um samfélags- og efnahagsmál (RSE) ţar sem hann fjallađi um ţá möguleika sem hann telur Íslendinga standa frammi fyrir ţegar kemur ađ framtíđar fyrirkomulagi peningamála hér á landi. Talsverđa athygli vakti ađ bćđi á ráđstefnunni sem og í samtali viđ Blađiđ daginn eftir varađi Stein sérstaklega viđ ţví ađ Íslendingar gengju í Evrópusambandiđ, enda myndi ţađ m.a. ganga af íslenskum sjávarútvegi dauđum.

"Ţegar kemur ađ Íslandi er ţađ mitt persónulega mat ađ ţađ vćri algjört brjálćđi fyrir ykkur ađ ganga í Evrópusambandiđ. Ef ţiđ gangiđ í sambandiđ verđur ađ sjálfsögđu fyrirvari um ađ enginn komi nálćgt fiskveiđilögsögunni. Innan tveggja eđa ţriggja ára verđur Ísland dregiđ fyrir Evrópudómstólinn af spánskum sjómanni. Ađ sjálfsögđu mun dómstóllinn úrskurđa ađ svona misrćmi gangi ekki upp og innan tíu mínútna verđur spánski og portúgalski flotinn kominn til ađ ryksuga upp miđin," sagđi Stein viđ Blađiđ. Á ráđstefnunni sagđi Stein ennfremur ađ gengi Ísland í Evrópusambandiđ á einhverjum tímapunti ţá gćtum viđ ekki sagt ađ viđ hefđum ekki veriđ vöruđ viđ ţví.


Órofa hluti af Evrópusambandinu

Í blađinu í gćr föstudag birtist grein eftir Eirík Bergmann Einarsson, stjórnmálafrćđing og einn ötulasta talsmann Evrópusambandssinna á Íslandi, ţar sem hann gagnrýndi ţađ sjónarmiđ ađ hćgt sé ađ taka upp evru án ţess ađ ganga fyrst í Evrópusambandiđ. Tilefniđ var ráđstefna um gjaldmiđla og alţjóđavćđingu sem fram fór sl. fimmtudag á vegum Rannsóknamiđstöđvar um samfélags- og efnahagsmál (RSE).

Ţađ vakti nokkra athygli ađ í grein sinni talar Eiríkur um ađ Ísland sé nú "órofa hluti af hinu evrópska hagkerfi" og á ţá vćntanlega viđ ađild Íslands ađ Evrópska efnahagssvćđinu (EES) ţó full langt sé gengiđ ađ tala um eitt hagkerfi í ţví sambandi. Ekki er annars hćgt ađ skilja orđ Eiríks öđruvísi en svo ađ hann telji ađ fyrst Íslendingar séu einu sinni orđnir ađilar ađ EES-samningnum sé ekki aftur snúiđ í ţeim efnum. Nokkuđ sem raunar er ekki rétt, enda gert ráđ fyrir ţví í samningnum ađ hćgt sé ađ segja honum upp.

Hitt er svo annađ mál ađ ef fariđ vćri ađ ráđum Eiríks og skođanabrćđra hans og Ísland gengi í Evrópusambandiđ er ljóst ađ ekki vćri aftur snúiđ enda er einfaldlega ekki gert ráđ fyrir ţví af hálfu sambandsins ađ ríki sem einu sinni eru komin ţar inn geti gengiđ úr ţví aftur.


Ráđherrum verđur bannađ ađ vinna ađ hagsmunum eigin ríkja

Fjallađ var um ţađ í breska dagblađinu Daily Mail í gćr ađ Gisela Stuart, ţingmađur Verkamannaflokksins, hafi varađ viđ ţví ađ samkvćmt fyrirhugađri stjórnarskrá Evrópusambandsins verđi ráđherrar ađildarríkja ţess í fyrsta skipti neyddir til ađ taka ákvarđanir á vettvangi ráđherraráđsins í samrćmi viđ hagsmuni sambandsins í stađ hagsmuna sinna eigin ríkja. Ţeir verđi skyldađir til ađ "leggja áherslu á gildi Evrópusambandsins, vinna ađ markmiđum sambandsins og ţjóna hagsmunum ţess." Stuart, sem var einn af höfundum stjórnarskrárinnar, segir ađ áđur hafi ráđherraráđiđ veriđ vettvangur forystumanna ađildarríkja Evrópusambandsins til ađ hittast og samrćma hagsmuni ríkjanna, en ráđherrar ađildarríkjanna verđi samkvćmt nýja fyrirkomulaginu skuldbundnir til ađ vinna ađ hagsmunum sambandsins í stađ ađildarríkjanna áđur.

Einnig kemur fram í umfjöllun blađsins ađ bresk stjórnvöld hafi nú viđurkennt ađ stjórnarskráin fyrirhugađa muni hafa í för međ sér ađ neitunarvald ađildarríkja Evrópusambandsins í 50 málaflokkum verđur afnumiđ.

Heimild:
Euro treaty is a threat to Britain, warns Labour MP who wrote it (The Daily Mail 070807)


Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Júlí 2025
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.7.): 39
  • Sl. sólarhring: 189
  • Sl. viku: 743
  • Frá upphafi: 1232971

Annađ

  • Innlit í dag: 38
  • Innlit sl. viku: 634
  • Gestir í dag: 38
  • IP-tölur í dag: 37

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband