Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

Grísk óvissa sogar Ítalíu í brimrótið

Tilkynning forsætisráðherra Grikkja, Papandreou, að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um björgunarpakka Evrópusambandsins skók fjármálamarkaði í gær. Hlutbréf féllu á mörkuðum í Evrópu, Ameríku og Asíu.

Hlutabréfaverð hoppar og skoppar daglega og má ekki lesa of mikið í þær verðbreytingar. Tvær aðrar breytur eru hættulegri framtíð evrunnar og Evrópusambandsins. Sú fyrri er að stuðningur frá Kína og öðrum stöndugum ríkjum við evrulöndin mun verða dreginn tilbaka á meðan óvissa er um Grikkland. Þá mun Ítalía með ónýta ríkisstjórn verða illilega fyrir barðinu á tortryggni  fjármálamarkaðarins.

Evran er komin fram á bjargbrúnina.


Engin rök fyrir ESB-aðild Íslands

„Við ræddum í okkar hóp um aðildarumsókn Íslands áður en við hittum þig hér í dag og veltum fyrir okkur spurningunni: Hvað hefur Ísland að sækja til ESB? Við stöldruðum að lokum aðeins við efnahagsmál og komumst síðan að sameiginlegri niðurstöðu: Ísland hefur engan efnahagslegan hag af því að ganga í Evrópusambandið. Þess vegna mælir ekkert með því að Ísland gerist aðili að ESB,“var boðskapur hópur fræðimanna í Berlín á fyrsta fundi mínum hér í höfuðborg Þýskalands í dag hjá SWP, Stiftung Wissenchaft und Politik.

Tilvitnunin hér að ofan er tekin úr pistli Björns Bjarnasonar fyrrverandi dómsmálaráðherra sem birtist á Evrópuvaktinni. Björn hefur verið á ferð í Brussel og Berlín undanfarið og hitt embættismenn og sérfræðinga sem fást við málefni Evrópusambandsins.

Hlutlæg rök fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu eru einfaldlega ekki fyrir hendi. Flokkshagsmunir Samfylkingarinnar réðu því að aðildarumsókn var send til Brussel. Er ekki mál að linni?


« Fyrri síða

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 145
  • Sl. viku: 896
  • Frá upphafi: 1118784

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 802
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband