Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2011

Danir borga 200 milljarða til ESB

Ef Danir stæðu utan Evrópusambandsins, líkt og Noregur, myndu þeir hafa um 200 milljörðum íslenskra króna meira til ráðstöfunar á eigin fjárlögum. Danir borga um 400 milljarða íslenskra króna til Evrópusambandsins en fá um helminginn tilbaka í formi styrkja.

Æ fleiri Dönum finnst peningunum til Brussel illa varið. ,,Utan Evrópusambandsins gætum við ráðstafað peningunum okkar samkvæmt okkar eigin óskum, en ekki eftir forskrift frá Brussel," segir Sören Söndergaard leiðtogi Þjóðarhreyfingarinnar gegn Evrópusambandinu. 

Þegar aðildarþjóðir Evrópusambandsins leita útgöngu biðjast íslenskir samfylkingarráðherrar inngöngu í sambandið. Pólitísk dómgreind er ekki reidd í þverpokum á samfylkingartruntunni.


Umsóknin stefnir samskiptum við ESB í voða

Ísland uppfyllir ekki eitt af grunnskilyrðunum fyrir því að teljast hæft umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Það skilyrði er að afgerandi meirihluti þjóðarinnar styðji við bakið á aðildarumsókn stjórnvalda. Eini flokkurinn sem vildi aðild að Evrópusambandinu, Samfylkingin, fékk 29 prósent atkvæðanna við síðustu þingkosningar.

Pólitísk fjárkúgun á alþingi leiddi til þess að Samfylkingin fékk nauman meirihluta fyrir umsókninni. Þjóðin, aftur á móti, hertist í andstöð sinni við aðild - síðasta mæling sýndi 64,5 andstöðu.

Þjóðum Evrópusambandsins er enginn greiði gerður með því að stjórnvöld á Íslandi haldi dauðri umsókn til streitu. Þegar búið er að hulsa umsóknina er æskilegt að við eigum vinsamleg samskipti við Evrópusambandið.


mbl.is Enginn réttur til aðildarviðræðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evran lifir Evrópusambandið

Gjaldmiðillinn evran er lögeyrir í 17 ríkjum af 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins. Evran mun ekki ,,falla" í þeim skilningi að gjaldmiðillinn gufi upp. Í umræðunni um evru-kreppuna er talað um fall evrunnar í því samhengi að gjaldmiðillinn getur ekki að óbreyttu þjónað öllum 17 ríkjunum sem mynda samstarfið.

Tvær leiðir koma helst til álita úr evru-kreppunni. Í fyrsta lagi að Stór-Evrópa hinna 17 ríkja verði mynduð til að verja evruna og lægja öldur spákaupmennsku sem veðja á ríkisgjaldþrot óreiðuríkja. Í öðru lagi að evru-svæðinu verði skipt upp í Þýskaland og fylgiríki þess s.s. Holland, Finnland og Austurríki annars vegar og hins vegar Suður-Evrópuríki. Þýskaland og fylgiríki tækju upp nýjan gjaldmiðil og evrunni yrði leyft að falla um 20-30 prósent.

Seðlabanki Þýskalands varar sterkt og ákveðið við þriðju leiðinni sem er Þjóðverjar ábyrgist skuldir Suður-Evrópu án þess að efnahagskerfi evru-ríkja verði sett undir sameiginlega stjórn.


mbl.is Telja að evru-svæðið lifi af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krugman, krónan og fullveldið

Lykilatriði við endurreisn Íslands eftir efnahagshrun var krónan. Sjálfstæður gjaldmiðill aðlagar hagkerfið nýjum veruleika og dreifir byrðunum af minni kaupgetu. Án krónunnar hefði orðið að handstýra lækkkun launa og stórfelldari niðurskurður hefði verið á opinberum rekstri.

Paul Krugman hefur fylgst með þróun íslenska hagkerfisins og veit hvað hann syngur þegar hann vekur athygli á samspili þátta sem fullvalda þjóð hefur í hendi sér til að bregðast við áföllum.

Fullveldið er forsenda þess að við getum tekist á við efnahagsþrengingar, hvort heldur þeir séu heimagerðar eða stafa af ytri orsökum. 


mbl.is Krugman: Ísland gerði rétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri grænum hefnist fyrir ESB-umsóknina

Vinstrihreyfingin græn framboð er með 14 prósent fylgi og hefur ekki mælst minna fylgi við flokkinn frá því fyrir hrunið 2007. Undir forystu Steingríms J. Sigfússonar gekk flokkurinn fyrir björg með stuðningi við þingsályktun Samfylkingarinnar um að sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Stuðningslið Vinstri grænna á landsbyggðinni er ýmist komið í Framsóknarflokkinn eða hefur tekið sér frí frá stjórnmálum. Á SV-horninu þynnist hópurinn sömuleiðis eins og best sást á dauflegum flokksstjórnarfundi um síðustu helgi þar sem illa var mætt.

Það fer hver að verða síðastur fyrir forystu Vinstri grænna að gyrða sig í brók og leiðrétta mistökin frá 16. júlí 2009. 


mbl.is Stuðningur við flokka breytist lítið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvissan í ESB og umsóknin

Evrópusambandið bregst við evru-kreppunni með því að auka miðstýringuna. Aðildarþjóðir evru-samstarfsins verða að bera fjárlög sín undir embættismenn í Brussel. Fyrirsjánalega verður um frekari framsal valdheimilda að ræða í því skyni að bjarga evru-samstarfinu.

Við þessar aðstæður er einboðið að alþingi Íslendinga leggi aðildarumsóknina til hliðar.

Við næstu þingkosningar fær þjóðin tækifæri til að segja álit sitt á þeim stjórnmálalfokkum sem berjast fyrir aðild landsins að Evrópusambandsins - ef þeir flokkar þá finnast.


mbl.is Vilja að fallið verði frá aðildarumsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 394
  • Frá upphafi: 1121185

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 357
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband