Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2013

AGS hvetur ESB til að auka aðstoð við Ítalíu

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur hvatt Seðlabanka Evrópu eindregið til þess að efla aðstoð sína við að draga úr hinni djúpu efnahagskreppu sem Ítalía á við að glíma vegna evruvandans. Aðstoðin gæti falist í ódýru lánsfé til banka og ennfremur í sérstakri aðstoð fyrir lítil fyrirtæki.

Þetta kemur fram í Financial Times í gær.

Tilmæli um þetta komu fram um leið og AGS birti versnandi horfur fyrir ítalskt efnahagslíf. Nú er gert ráð fyrir því að framleiðsla skreppi saman um tæp tvö prósent á Ítalíu í ár, en kreppa hefur verið viðvarandi í landinu síðustu tvö ár.

Meira en sjö hundruð þúsund manns hafa misst vinnuna á Ítalíu frá lokum árs 2007, þar af flestir á síðasta ári.


Logi Bergmann óhress með bragðlítið ESB

LogireidurESBSjónvarpsmaðurinn góðkunni Logi Bergmann er heldur óhress með reglugerðarfargan Evrópusambandsins sem veldur því að hann fær ekki að kaupa morgunkornið sitt.

Þetta kemur fram á visir.is:

Logi Bergmann ber Evrópusambandinu ekki fagra söguna á Twitter síðu sinni, en hann biður sambandið um að „fokka sér." Ástæðan er sú að sambandið er með reglugerðum sínum búið að „tortíma" góðu morgunkorni, sem er miður að mati Loga.

Logi segist vera mikill Froot Loops maður í samtali við fréttastofu, en það er af sem áður var og morgunkorn er ekki lengur gott. „Þetta er eins og mold þessi óþverri," segir Logi um evrópska Froot Loopsið.

„Froot Loops er búið að vera í miklu uppáhaldi hjá mér lengi og ég keypti þessa evrópsku útgáfu þar sem var búið að taka út öll þessi hræðilegu litarefni og bragðið líka. Þetta er bara eitthvað djók. Svo stend ég hérna á kassanum og get ekki fengið litarefnin mín og konan á næsta kassa er að kaupa þrjá kassa af Winston. Er ekki verið að gera grín að mér?" bætir hann við.

„Ég er búinn að fá nóg af þessu, ég vil fá að borða litarefnin mín og hafa bragð af þessu," segir Logi svo að lokum.

Frægt er orðið að Jón Gerald Sullenberger stóð í stappi við matvælayfirvöld vegna reglugerða sambandsins um morgunkorn þegar honum var meinað að selja Cocoa-Puffs sem var framleitt í Bandaríkjunum. Jón hafði sigur í því máli þegar í ljós kom að reglugerðirnar höfðu verið ranglega túlkaðar, og íslendingar geta enn sem komið er gætt sér á „góðu" Cocoa-puffsi.


Grikkir enn í standandi vandræðum

Fréttir frá Grikklandi bera enn með sér að þeir séu í standandi vandræðum. Það er líka óróleiki á Ítalíu og í Portúgal.  

Viðskiptavefur dagblaðsins Berlingske segir að tillögur Grikkja verði að liggja fyrir á föstudaginn því fjármálaráðherrar evrulandanna þurfi að fara yfir þær og ræða á fundi á mánudaginn kemur.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Grikkir verða að hafa hraðar hendur til að forða þjóðargjaldþroti en nú þarf gríski ríkissjóðurinn að fá neyðarlán upp á 8,1 milljarða evra til að geta meðal annars endurfjármagnað lán upp á 2,2 milljarða sem er á gjalddaga í ágúst.

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn gæti neyðst til að hætta lánveitingum til Grikkja ef Grikkjum tekst ekki að sýna fram á fjármögnun reksturs ríkissjóðs næstu 12 mánuði en lánareglur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins kveða á um að slík áætlun verði að liggja fyrir.

Ofangreint kemur fram á fréttavefnum Eyjan.is 


Nú sambandið er sett á ís af Sigmundi og Bjarna

ísÍs er vinsæll þessa sumardaga. Frægur er ísbíltúr forsætisráðherra fyrir kosningar. ESB-umsóknin er kominn í ís. Fljótlega eftir stjórnarskiptin var tilkynnt um 17 ný umferðarmerki, en þar á meðal er merki sem vísar á staði þar sem ís er framleiddur og seldur.

Í raun hafði fyrri ríkisstjórn sett umsóknina í kælingu og ekkert tekið á erfiðustu málunum, enda leist fólki líklega ekkert á þróun ESB í átt til stórríkis, þróun sem verður æ skýrari með degi hverjum.

Þá er spurning hvort ekki sé við hæfi þessi fyrripartur, sem einhver lesandi gæti kannski verið svo góður að botna:

Nú sambandið er sett á ís,
af Sigmundi og Bjarna.
...........
...........

Í gær var fyrriparti kastað fram um atvinnuleysið í ESB og komu tveir lesendur með seinnipart:

Atvinnu í e ess bé,
enga er að fá.
Samt mun ómælt styrktarfé
streyma þaðan frá.


Atvinnu í e ess bé,
enga er að fá.
Ungir eiga ekkert fé
og aldnir fara frá.


Getur einhver botnað fyrripart um atvinnu í e ess bé?

Það eru engar nýjar fréttir að atvinnuleysið sé að aukast í ESB. Um 25 milljónir manna eru án atvinnu, eða ríflega 12% af vinnuaflinu. Verst er ástandið meðal ungs fólks.

Það er því spurning hvort þessi fyrripartur eigi ekki við - og spurning hvort einhver geti botnað?

Atvinnu í e ess bé,
enga er að fá.

............

...............


mbl.is 24,4 milljónir án vinnu innan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 341
  • Sl. sólarhring: 346
  • Sl. viku: 1091
  • Frá upphafi: 1119468

Annað

  • Innlit í dag: 294
  • Innlit sl. viku: 937
  • Gestir í dag: 284
  • IP-tölur í dag: 281

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband