Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2015

Stórtíðinda að vænta frá Gunnari Braga?

Það verður fróðlegt að heyra hvað Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur sagt í dag á fundi í Slóvakíu með utanríkisráðherrum Evrópulanda.

Mun hann tilkynna um einhliða afturköllun umsóknar um inngöngu í ESB?

Evrópuvaktin vekur athygli á þessu. 


Eru menn eitthvað að hangsa?

jon_bjarnason_1198010Nú fer að líða sá frestur sem ríkisstjórnin hefur til að leggja fyrir yfirstandandi Alþingi tillögu til þingsályktunar um að draga til baka umsókn um inngöngu í ESB. Jón Bjarnason, formaður Heimssýnar, bendir í bloggi sínu á að 26. mars er síðasti dagurinn til að leggja mál fyrir þingið sem eiga að afgreiðast á þessu voru.

Formenn beggja ríkisstjórnarflokkanna hafa lýst því yfir að tillaga komi fyrir þingið um formlega afturköllun umsóknarinnar um inngöngu í Evrópusambandið, segir Jón. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru með skýrar landsfundarsamþykktir að baki sér um afturköllun umsóknarinnar.

Þá segir Jón:

Ísland er formlegt umsóknarríki meðan umsóknin stendur inni og alþingi hefur ekki afturkallað hana. Hún stendur sem stefna þings og ríkisstjórnar á opinberum vettvangi þangað til að hún hefur verið afturkölluð af þeim sömu stjórnsýsluaðilum og samþykktu að senda hana inn.

26. mars nálgast. Fyrir þann tíma hafa bæði formenn ríkisstjórnarflokkanna og utanríkisráðherra lofað að tillagan um afturköllun komi fyrir þingið.

Brostinn er verulegur flótti í lið hörðustu ESB sinnanna. Fyrir stjórnarflokkana er að fylgja eftir samþykktum sínum.

 


Linnulausar erfiðleikafréttir af ESB og evrunni

Fréttir af ýmsum erfiðleikamálum ESB og evrunnar berast nú í stríðum straumi. Hér eru aðeins nokkur dæmi:

- Grikkir eru í stöðugu strögli út af samvinnu við ESB um efnahagsaðgerðir.

- Ráðherra í Grikklandi hótar að selflytja alla flóttamenn sem koma til Grikklands beint til Þýskalands ef Þjóðverjar halda áfram að standa í vegi fyrir Grikkjum.

- Grikkir hóta að láta almenning í landinu taka ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu um til hvaða efnahagsaðgerða verði gripið. Grískur almenningur myndi láta sjónarmið ESB-forystunnar að miklu leyti lönd og leið.

- Juncker vill stofna ESB-her. Lengi vel sögðu friðarsinnar í ESB að það kæmi aldrei til greina.

- Bændum í Finnlandi fækkar vegna inngöngu Finna í ESB og framleiðsla leggst af að einhverju leyti.

- Á Íslandi segir Guðfaðir ESB-umsóknarinnar að ESB-málið á Íslandi sé dautt.

- Einn helsti talsmaður ESB-aðildar úr háskólasamfélaginu segir að ESB-málið þvælist fyrir velferðarvinnu vinstri flokkanna.

- Árni Páll segir ESB vera efnahagslega í tómu tjóni.

 

- Er ekki nóg komið? Tími til að afturkalla umsóknina formlega?


mbl.is Vill sameiginlegan her innan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigrún Magnúsdóttir ryður nýja EES-braut

SigrunMagnusdottirSegja má að Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra hafi rutt nýja braut þegar kemur að vinnslu EES-reglna hér á landi með ummælum sínum um þýðingu reglna yfir á íslensku. Nú eru flestir orðnir sammála um að mun meira svigrúm sé við innleiðingu reglnanna en áður var talið.

Hallur Magnússon er einn þeirra. Stjórnvöld þurfa greinilega að endurskoða innleiðingarferlið, allt frá túlkun til þýðingar og framkvæmdar.


Árni efast enn og aftur um ESB

Ýmsir þeir sem fremst hafa farið fyrir þeim sem hafa stutt inngöngu Íslands í ESB efast nú um að stefna þeirra sé rétt. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir á fésbókinni sinni í gær sem Evrópuvaktin vitnar í: ,,Ef menn velta ekki fyrir sér stöðunni í ljósi hrikalegs vanda margra ríkja á evrusvæðinu, ...., Icesavemálsins ....og minna svigrúms evruríkja til að reka útgjaldasama ríkisfjármálastefnu á erfiðleikatímum - ja þá held ég alla vega að þeir séu ekki alveg í jarðsambandi."

Árni er ekki sá eini sem efast, því Jón Baldvin hefur haft uppi svipuð orð sem og Stefán Ólafsson. Svo segir Össur Skarphéðinsson frá því að hann hafi ákveðið að segja brandara á Iðnþingi í stað þess að tala um ESB. Og honum líði bara snöggtum betur!


Árni Páll ítrekar í viðtali efasemdir um ESB

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, ítrekar efasemdir sínar um Evrópusambandið og evruna og er tilbúinn til að skoða aðra kosti til að auka hagsæld og lífsgæði Íslendinga.

Þetta kom fram í máli Árna Páls í viðtali við Pál Magnússon á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gær, en greint er frá efni viðtalsins á vef stöðvarinnar.

Sjá einnig á Eyjunni.

 


mbl.is Árni Páll efast um ESB og evruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíar treysta ekki þingmönnum ESB

Traust Svía í garð stjórnmálamanna í ESB er einna minnst í sambandinu. Aðeins 6 prósent Svía treysta stjórnmálamönnum ESB sem er nokkru lægra hlutfall en almennt gildir í ESB-löndunum. 

Aftonbladet og fleiri sænskir miðlar greina frá þessu í dag.


Árni Páll segir gamaldags pólitík í ESB

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir hér í viðtali við Moggann að gamaldags niðurskurðarpólitík ráði för í ESB og að hún sé rekin áfram af ranghugmyndum Þjóðverja. Árni Páll viðurkennir sem sagt skipbrot efnahagsstefnu Evrópusambandsins síðustu árin.

Svo tekur Árni PáarniPll heljarstökk aftur bak og fullyrðir að það eina sem bjargi ESB úr kreppunni sé pólitískur samruni allra ESB-ríkja. Árni Páll gengur svo langt að fullyrða að allir í Evrópu séu sammála um það að ef Evrópa snúi baki við pólitískum samruna muni blasa við fasismi, lýðskrum og upplausn!

Það tekur greinilega á fyrir Árna Pál að bregðast við þeim ummælum Jóns Baldvins, guðföður Samfylkingarinnar og ESB-umsóknarinnar, á dögunum að Evrópa sé í djúpri kreppu og að Íslendingar séu ekkert á leiðinni þangað inn.

Árni gleymir því í viðtalinu að Íslendingar höfnuðu, ekki hvað síst að kröfu þjóðarinnar sjálfrar, að taka á sig auknar byrðar bankakerfisins en það var krafa fulltrúa og forystumanna ESB-ríkjanna hvar sem þeir komu því við í samskiptum við íslensk stjórnvöld.

Það væri nú ágætt ef Árni Páll upplýsti um slík mál í heild sinni.


mbl.is Jón Baldvin ekki orðinn afhuga ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páll Magnússon vill hvorki ESB né áframhaldandi viðræður

Pall_MagnussonPáll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri, og núverandi þáttagerðarmaður á nýju sjónvarpsstöðinni Hringbraut segist bæði vera á móti aðild að ESB og áframhaldandi viðræðum.

Um þetta segir Páll í pistli á vefnum hringbraut.is:

 -- Best að segja það strax

… að ef kosið yrði um það í dag hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið myndi ég segja nei. Ef kosið yrði um það hvort núverandi ríkisstjórn ætti að halda áfram þeim aðildarviðræðum sem síðasta ríkisstjórn hóf myndi ég líka segja nei. Ef ég væri spurður hvort Alþingi ætti að slíta formlega þeim viðræðum sem nú liggja á klaka myndi ég segja nei í þriðja sinn.

Og af hverju er best að segja þetta allt strax? Kannski bara af því að ég má það; ég hef nefnilega lengst af verið í störfum þar sem þykir óæskilegt að menn séu mikið að viðra skoðanir sínar. En líka til að fyrirbyggja þann misskilning að allir sem skrifa hér á Hringbraut eða stjórna hér sjónvarpsþáttum séu „gargandi aðildarsinnar“.

Ég á raunar erfitt með að skilja tilfinningahitann í þessu máli. Mér finnst þetta vera ískalt efnahagslegt og pólitískt álitaefni - með rökum með og á móti. Þeir sem eru hlynntir aðild eru ekki landráðamenn og þeir sem eru andvígir aðild eru ekki einangrunarsinnar.

En af hverju þessi þrjú nei?

Nei 1: Ég tel hagsmunum Íslendinga betur borgið utan ESB en innan, einkum og sér í lagi á meðan EES samningurinn heldur gildi sínu. Við njótum þá helstu kostanna sem fylgja aðild en erum laus við gallana.

Nei 2: Aðildaviðræðum verður að fylgja vilji til að ganga inn og hann er ekki fyrir hendi; hvorki hjá ríkisstjórninni, meirihluta Alþingis né meirihluta þjóðarinnar. Við slíkar aðstæður eru aðildarviðræður í besta falli bjánalegar.

Nei 3: Döpur reynsla síðustu ríkisstjórnar af þeim mistökum að hefja aðildarviðræður án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu ætti að kenna núverandi ríkisstjórn að taka engar grundvallarákvarðanir í þessu máli án þess að spyrja þjóðina fyrst. Það ætti sem sagt hvorki að halda þessum viðræðum áfram né hætta formlega við þær án þjóðaratkvæðagreiðslu – og gildir þá einu þótt til þeirra hafi verið stofnað án slíkrar. Tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta mál var og er enn skynsamlegasta leiðin. --

 

Svo mörg voru orð Páls Magnússonar að þessu sinni


Stefán Ólafsson: ESB ekki baráttunnar virði

StefanOlafssonStefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði, segir að klofningur á milli og innan vinstri flokkanna í afstöðu til ESB geri þá áhrifalausa. Þess vegna sé baráttan fyrir aðild að ESB ekki hennar virði.

Stefán segir í bloggi sínu:

Hér á landi er sérstaklega brýn sú spurning, fyrir þá sem eru á miðjunni og vinstri vængnum, hvort ESB-aðild sé þess virði að kljúfa miðjuna og vinstrið í herðar niður og gera hvern og einn flokkanna sem þar eru nær áhrifalausa?

Enn fremur segir Stefán:

ESB er ekki gallalaust og óheft flæði fjármagns og fólks milli aðildarríkja skapar ný alvarleg vandamál (fjármálavæðingu, aukinn ójöfnuð og innflytjendavandamál). Þessi nýi veruleiki skilur eftir sig þá tilfinningu hjá venjulegum kjósendum að þeir séu afskiptir, hjá þeim flokkum sem fylgja algerri opnun samfélagsins með ESB-aðild og öðru alþjóðasamstarfi um óhefta markaðshætti.

ESB-sinnar eru hver á fætur öðrum að átta sig á göllum ESB og því að það er ekki þess virði fyrir þá að berjast áfram fyrir ESB-aðild. Jón Baldvin Hannibalsson hefur ítrekað viðrað skoðanir í þessa veru. Stefán Ólafsson bætist nú í þann hóp. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 452
  • Sl. sólarhring: 467
  • Sl. viku: 2014
  • Frá upphafi: 1231392

Annað

  • Innlit í dag: 420
  • Innlit sl. viku: 1788
  • Gestir í dag: 406
  • IP-tölur í dag: 400

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband