Bloggfærslur mánaðarins, mars 2024
Sunnudagur, 31. mars 2024
Siggi flytur viðvörun frá Bretlandi
Sigurður Þórðarson heitir sægarpur sem var á varðskipi þegar landhelgisdeilurnar stóðu sem hæst við Breta. Hann segir frá ýmsu í fróðlegu viðtali í Mannlífi sem mæla má með. Eitt ráð flytur hann Íslendingum frá enskum stórútgerðarmanni:
Látið ekki Evrópusambandið læsa klónum í ykkur. Út úr því koma ekkert nema vandræði og tap.
Það verður páskakveðja Heimssýnar til landsmanna allra að þessu sinni.
Laugardagur, 30. mars 2024
Kannski er lýðskrumið ástæðan
Forsenda þess að tekin verði skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið er eðli málsins samkvæmt þingmeirihluti fyrir málinu, kjörinn af íslenzkum kjósendum, og ríkisstjórn samstíga um að það verði gert.
Þetta segir Hjörtur J. Guðmundsson, réttilega í nýrri grein.
Þetta ætti svosem að vera augljóst, en engu að siður hamast einn og einn stjórnmálamaður og einn smáflokkur á því að Íslendingar eigi að sækja um aðild aftur. Þar eru menn í örvæntingarfullri leit að fylgi einhverra sem ekki hafa tíma eða aðstöðu til að kynna sér málin. Það er ekki undarlegt að menn verði þreyttir á svona málflutningi.
Kannski er það ástæða þess að fylgi eina stjórnmálaflokksins sem leggur áherslu á innlimun Íslands í Evropusambandið er harla lítið.
https://www.fullveldi.is/?p=40979
Föstudagur, 29. mars 2024
Varðmaður talar
Á sama tíma og Alþingi setur lög, samkvæmt pöntun frá Evrópusambandinu, sem opna fyrir skerðingu á málfrelsi, ritfrelsi og fjölmiðlafrelsi birtir Arnar Þór Jónsson, forsetaframbjóðandi yfirlýsingu. Sú yfirlýsing ber vott um að hann horfist í augu við stöðu mála af raunsæi, en um leið er hún til vitnis um að hann ber í sér þann kraft sem þarf til að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar í víðum skilningi. Arnar Þór segir m.a.:
Ég tel að ýmsar ógnir steðji að málfrelsi okkar og um leið lýðræði. Fyrir vikið er lýðveldið veikara en ella og brestir eru komnir í fullveldi þjóðarinnar vegna ásælni og íhlutunar erlendis frá. Við þurfum að setja forsetann, þennan eina embættismann þjóðarinnar sem kosinn er milliliðalaust í beinu lýðræðislegu kjöri, til verka. Ekki eingöngu til að vera andlit þjóðarinnar og samnefnari, heldur líka varðmaður um réttindi hennar.
Yfirlýsingin í heild sinni er hér:
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 27. mars 2024
Blekið rennur hraðar, hraðar
Blekið rennur hratt úr penna Hjartar J. Guðmundssonar þessa dagana. Greinar hans eru ljósrák í húmi hversdagsleikans. Þær eru innihaldsríkar og bera vott um skýra sýn á stöðu og þróun stjórnmála og samskipta ríkja og þjóða. Hjörtur heldur utan um greinarnar á vefsíðunni fullveldi.is, en frumbirting er oftast í Vísi eða í Morgunblaðinu.
Nú síðast kannaði Hjörtur stöðuna í Noregi. Þar fjarar hratt undan EES-samningnum og stefna sífellt fleiri er í átt að víðtækum fríverslunarsamningi milli Evrópusambandsins og Noregs.
Páskalesningin:
Mánudagur, 25. mars 2024
Undirgefni í von um þægilega innivinnu
Víða um lönd, ekki síst í Noregi er áberandi að viðhorf almennings og stjórnmálastéttarinnar eru ekki alltaf þau sömu, þótt um lýðræðisríki sé að ræða. Þannig er stjórnmálastéttin oft hallari undir vald Evrópusambandsins en almenningur. Kannski er það vegna þess að almenningur sér bara fleiri reikninga þar sem stjórnmálastéttin sér atvinnutækifæri. Sums staðar þykir dónalegt að tala á þessum nótum, óháð því hvað sé satt eða rétt í málinu. Arnar Þór Jónsson er á hinn bóginn ekki þjakaður af sjálfsritskoðun, eins og menn heyra á 44. mínútu í þessu annars ágæta viðtali.
https://share.transistor.fm/s/70bd9c4b
Laugardagur, 23. mars 2024
Ætli Baldur viti það?
Smám saman skýrast línur í framboði til embættis forseta Íslands. Að öðrum frambjóðendum ólöstuðum virðast þrír hafa mest fylgi, Arnar Þór, Baldur og Halla. Arnar Þór er einarður lyðræðis- og fullveldissinni, en Baldur og Halla hafa mikinn skilning á því að það sé best að afhenda stjórnvaldið til vanda- og umboðslausra í Evrópusambandinu.
Viðbúið er að frambjóðendur sem stundum eru kallaðir Evrópusinnar muni reyna að þvo af sér þann stimpil eða gera lítið úr fyrri baráttu fyrir innlimun Íslands í stórríki gömlu nýlenduveldanna. Í svoleiðis hreingerningu gerist oft eitthvað spaugilegt. Það hefur nú þegar gerst að Baldur hefur talað um að vísa skerðingu á tjáningarfrelsi til þjóðaratkvæðis, fái hann að verða forseti. Nú vill svo til að Evrópusambandið vinnur einmitt að því hörðum höndum að þagga niður í þeim sem því finnst leiðinlegir. Fjölmiðlar sem evrópskum yfirvöldum finnst vondir eru bannaðir og ný evrópsk löggjöf um eftirlit með dreifingu á vondu efni tók gildi í fyrra. Það er með öðrum orðum hrópandi mótsögn í því að vilja vernda fjölmiðla- og tjáningarfrelsi og að ganga í Evrópusambandið.
Þjóðaratkvæði um tjáningarfrelsi í landi þar sem Evrópulög gilda skiptir engu máli. Það sem skiptir máli er að sjá til þess að Evrópulögin gildi ekki, heldur lög sem íbúarnir sjálfir setja sér. Það heitir lýðræði.
Menn geta svo velt því fyrir sér hvort sé verra, að Baldur viti þetta og láti eins og hann viti það ekki eða viti það bara ekki.
Föstudagur, 22. mars 2024
Alvörumál
Þegar ljóst var að hvorki Noregur né Ísland væru á leið inn í Evrópusambandið eftir hefðbundinni leið kom mikill kraftur í að koma þessum þjóðum inn sambandið bakdyramegin. Sú leið felst í skapandi túlkun á EES-samningnum, sem öll miðar að tilfærslu á valdi frá kjörnum fulltrúm í þjóðlöndunum til embættiskerfis Evrópusambandsins.
Arnar Þór Jónsson ræðir þessi mál í þarfri ádrepu. Hann segir m.a.:
Hvað þýðir þetta fyrir Íslendinga? Svar: Samhliða því að stöðugt fleiri málaflokkar eru felldir undir EES samninginn mun ákvörðunarvald í stórum málaflokkum flytjast frá Alþingi til ESB, eins og þegar liggur fyrir á sviði orkumála. Þetta mun hafa þau áhrif að við missum ekki aðeins frá okkur lögin, heldur einnig völdin. Í framkvæmd mun þetta auka hættu á að Íslendingar missi úr sínum höndum eignarhald og yfirráð yfir landinu, vatninu, rafmagninu og sjávarútveginum. Í stuttu máli þýðir þetta að við munum missa frá okkur frelsið og sjálfsákvörðunarréttinn.
Ádrepa Arnars Þórs er hér:
https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2300544/
Þeir sem vilja mæla með Arnari Þór til að stíga í stærsta ræðustól landsins eiga erindi hingað:
https://island.is/umsoknir/maela-med-frambodi/?candidate=1000007
Miðvikudagur, 20. mars 2024
Það fjarar undan
EES-samningnum. Þeir Norðmenn sem kynna sér málin virðast komast að því að víðtækur fríverslunarsamningur sé rétta leiðin til til framhaldssamlífs með löndum Evrópusambandsins.
Og eins og Hjörtur bendir skilmerkilega á er það leið sem farin var í samskiptum við Breta, og ekki er að sjá annað en að hún gefist vel.
https://www.fullveldi.is/?p=39192
Mánudagur, 18. mars 2024
Áheyrilegt
viðtal er við Arnar Þór Jónsson, forsetaframbjóðanda á Útvarpi sögu. Arnar Þór fer um víðan völl eins og von er, en öll er sú vallarreið innihaldsrík og umhugsunarverð.
Á 11. mínútu segir hann frá manni sem trúað hafði þjóðsögunni um að fullveldissinnar væru sjálfkrafa einangrunarsinnar, en það er líklega eitt mesta afrek þeirra sem leiðir eru á lýðræðinu að ná að telja fólki trú um að fullveldis- og lýðræðissinnar séu á móti samskiptum við aðrar þjóðir.
Á 23. mínútu er rætt um að forsetinn þurfi að standa vörð um stjórnarskrá, lýðræði og lýðveldið. En það er ekki nóg að ætla sér það. Forsetinn þarf að geta við vissar aðstæður viðhaft fumlaus vinnubrögð. Til þess að geta það þarf djúpstæða þekkingu og skynsemi, til viðbótar við þann einlæga ásetning að standa fyrrnefnda varðstöðu. Arnar Þór er, að öðrum ólöstuðum, líklegri en flestir ef ekki allir aðrir til að sýna einmitt þannig fumleysi.
https://share.transistor.fm/s/70bd9c4b
Sunnudagur, 17. mars 2024
Barátta að hefjast - forvitnileg "netkönnun"
Smám saman fjölgar í hópi frambjóðenda til embættis forseta Íslands.
Af þeim fjórum sem flesta smelli fá í neðangreindum kosningaleik DV (sjá tengil hér að neðan) er einn sem gerir sér mjög skýra grein fyrir mikilvægi þess að standa vörð um fullveldið. Það er Arnar Þór Jónsson. Þeir tveir, sem flest "atkvæði" hafa fengið, hafa barist fyrir því að fullveldinu verði fargað. Það er vægast sagt umhugsunarvert.
Enn geta menn smellt við það nafn sem menn vilja helst sjá á dyrabjöllunni á Bessastöðum.
https://www.dv.is/eyjan/2024/3/17/thridja-forsetakonnunin-hvern-vilt-thu-sja-bessastodum/
Nýjustu færslur
- Uppskrift að eitri allra tíma
- Jólakveðja
- Friðarganga og Evrópusamband
- Nokkur hundruð milljarðar út um gluggann
- Við bíðum enn, Þorsteinn
- Skyggnigáfa Össurar?
- Villugjarnt á Kögunarhóli
- Tollabandalag eða tollfrelsi á grundvelli fríverslunarsamninga
- Nýtt örlagatímabil fer nú í hönd. Hver vinnur að þessu sinni?
- Eruð þið ekki örugglega staðföst í Flokki fólksins?
- Alltaf sama blíðan í Eyjum eða hvað?
- Mýtan um vexti
- Hörmungarsagan
- Vont, og versnar líklega
- Gott fyrir svefninn
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 198
- Sl. sólarhring: 252
- Sl. viku: 1937
- Frá upphafi: 1177110
Annað
- Innlit í dag: 180
- Innlit sl. viku: 1757
- Gestir í dag: 177
- IP-tölur í dag: 174
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar