Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2025
Þriðjudagur, 18. febrúar 2025
Stríðsmenning Evrópumanna
Ursula v d Leyen, foringi í Evrópusambandinu segir að Evrópusambandið þurfi að kaupa meiri vopn, ekki seinna en strax. Og borga miklu meira til hermála. Þá meinar hún að þegnar Evrópusambandsins þurfi að tæma vasana sína til að smyrja stríðsvélarnar.
Ekki fylgir sögunni að Frakkar og Þjóðverjar einir eyða meiri peningum til hermála en Rússar, og eru þá engir aðrir í Evrópusambandinu taldir með og heldur ekki Bretar.
https://www.statista.com/statistics/262742/countries-with-the-highest-military-spending/
Tvennt er ágætt að rifja upp í þessu samhengi.
Í fyrsta lagi eru Íslendingar, ólíkt þjóðunum í Evrópusambandinu og Bretlandi almennt lítið fyrir það að kaupa sprengjur og fallstykki. Aðeins um 20% Íslendinga er í sama liði og 60% Evrópusambandsmanna.
https://gegnstridi.blog.is/blog/gegnstridi/entry/2308125/
https://gegnstridi.blog.is/blog/gegnstridi/entry/2309391/
Í öðru lagi er ekkert eins gott fyrir þjóðhöfðingja sem eru valtir í sessi og ærlegt stríð við einhverja útlendinga.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17. febrúar 2025
Evrópa skömmuð
Frést hefur af því að valdamaður í Bandaríkjunum hafi hundskammað Evrópubúa fyrir mannréttindabrot á borð við víðtæk brot á tjáningarfrelsi. Brotin virðast ekki dregin í efa, en valdamenn í Evrópu bregðast við með því að biðja Ameríkumanninn um að snauta heim til sín og þegja.
Ekki virðist vera deilt um að mjög sé þrengt að tjáningarfrelsi í Evrópusambandinu, enda er það svo. Lokun á vefmiðlum sem evrópskum stjórnvöldum líkar ekki er áberandi dæmi um hvert komið er.
Þögn almennings í Evrópusambandinu er þó enn eftirtektarverðari.
Það verður sífellt skýrara hversu varhugavert það er að fela gömlu evrópsku nýlenduveldunum völd yfir Íslandi.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 16. febrúar 2025
Er Macron að segja að ESB hangi nú í köðlunum þegar kemur að öryggismálum?
Á undanförnum dögum hefur komið glöggt í ljós að Evrópusambandið (ESB) er háð Bandaríkjunum í öryggismálum. Nýjustu vendingar sýna aftur hversu ófært ESB er um að standa saman og axla ábyrgð á eigin öryggi. Á sama tíma og Frakklandsforseti Emmanuel Macron reynir að kalla saman Evrópuþjóðir til neyðarfundar vegna Úkraínustríðsins, hafa Bandaríkin undir stjórn Donalds Trumps tekið frumkvæðið og hafið samningaviðræður við Rússland – án Evrópu. Þessi staða er niðurlægjandi fyrir ESB og sýnir glögglega veikleika þess.
Ný skjöl, sem Reuters hefur birt, sýna að Bandaríkin hafa sent Evrópuríkjum spurningar um hvaða stuðning þau þurfi frá Washington til að tryggja öryggi Úkraínu. Með öðrum orðum: Bandaríkin spyrja Evrópu hvað þau þurfi til að taka ábyrgð á sínu eigin öryggi! Þetta er ekkert annað en viðurkenning á því að ESB er ekki tilbúið að leiða sjálft – heldur bíður eftir leiðsögn frá Bandaríkjunum.
Evrópa er klofin í þessum málum. Þó sum ríki, eins og Bretland og Pólland, vilji halda fast í stuðninginn við Úkraínu, þá eru önnur ríkis sem óttast aukna þátttöku í átökunum. Þessi tvískipting lampar getu Evrópusambandsins til að koma fram af krafti og taka afgerandi ákvarðanir. Macron reynir að mynda sameinaða stefnu með fundinum sínum í París, en í raun er það enn eitt dæmið um hvernig Evrópa er sífellt í viðbragðsstöðu, í stað þess að vera leiðandi afl.
Á fundinum í París munu meðal annars taka þátt: Þýskalandskanslari Olaf Scholz, forsætisráðherra Bretlands Keir Starmer, forsætisráðherra Póllands Donald Tusk, forsætisráðherra Ítalíu Giorgia Meloni, forsætisráðherra Spánar Pedro Sánchez, forsætisráðherra Danmerkur Mette Frederiksen, forseti Evrópuráðsins Charles Michel, forseti framkvæmdastjórnar ESB Ursula von der Leyen og framkvæmdastjóri NATO Jens Stoltenberg. Þessi hópur endurspeglar enn og aftur að Evrópa reynir að finna sameiginlega rödd en stendur frammi fyrir klofinni afstöðu og skorti á sjálfstæðum aðgerðum. Þetta er gert aðeins tveim dögum eftir að sérstakri ráðstefnu um öryggismál í München, lauk.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, sagði á öryggisráðstefnunni í München eitthvað á þá leið að vináttusambönd þurfi að laga sig að nýjum aðstæðum. Þessi orð eiga sérstaklega vel við í ljósi þess hvernig Evrópa hefur reitt sig á Bandaríkin í öryggismálum. En er ESB tilbúið að laga sig að breyttum heimi, þar sem Bandaríkin eru síður áreiðanlegur bandamaður en áður? Það er lítið sem bendir til þess.
Staðan í dag sýnir að Evrópa er veikburða í öryggismálum. Þrátt fyrir hástemmd orð um "evrópskt varnarsamstarf" er það ljóst að á meðan ESB getur ekki tekið sameiginlegar ákvarðanir án stuðnings Bandaríkjanna. Það er kominn tími til að Evrópa standi á eigin fótum - eða viðurkenni ella hún er aðeins fylgihlutur í stefnu Bandaríkjanna.
Laugardagur, 15. febrúar 2025
Ilt er að gánga með steinbarn Þorgerður!
Viðskiptaþing fór fram með pompi og pragt í Borgarleikhúsinu fimmtudaginn 13. febrúar. Fyrsti fyrirlesarinn þar var Johan Norberg sem er sænskur rithöfundur og fræðimaður (e. senior fellow) hjá Cato Institute. Johan er þekktur fyrir skrif sín um framfarir og efnahagslegt frelsi og hefur verið áhrifamikill í umræðu um efnahagsmál á heimsvísu undanfarið.
Johan var tíðrætt um hvernig ESB hefur dregist aftur úr Bandaríkjunum og fleiri heimshlutum eins og Kína í efnahagslegu tilliti. Meðal annars dró hann fram að landsframleiðsla á mann jókst mun hægar í ESB en Bandaríkjunum á 15 ára tímabili, 2008 – 2023.
Árið 2008 var landsframleiðsla á mann í ESB um $37,044, en lækkaði í kjölfar fjármálakreppunnar og náði $34,357 árið 2020. Eftir það hefur verið hægfara bati, með GDP á mann í ESB um $40,824 árið 2023.
Í Bandaríkjunum var landsframleiðsla á mann árið 2008 um $48,471. Þrátt fyrir áhrif fjármálakreppunnar hélt hún áfram að vaxa og náði um $82,769 árið 2023
Frá árinu 2008 til 2023 hefur landsframleiðsla á mann (GDP per capita) í Bandaríkjunum hækkað um 70,76%, en í Evrópusambandinu (ESB) hefur hún aðeins hækkað um 10,20%. Þarf að segja eitthvað frekar um muninn á efnahagsþróun þessara tveggja svæða yfir þetta tímabil?
Hann fór einnig yfir hvernig regluverk ESB hefur hamlað nýsköpun og að nýjum fyrirtækjum með mikla veltu fjölgar mun hraðar í Bandaríkjunum en í ESB. Einmitt þetta er kjarninn í skýrslu Mario Drahgi sem kom út í fyrra.
Það liggur við að hugmyndum Þorgerðar Katrínar og félaga hennar um að Ísland verði aðili að ESB megi helst líkja við að unglingur sæki um á elliheimili fremur en sókn til framtíðar.
Já, það er ilt að gánga með steinbarn Þorgerður!
Föstudagur, 14. febrúar 2025
EES-samningurinn: Frjáls viðskipti eða pólitísk forræðishyggja?
Evrópska efnahagssvæðið (EES) var upphaflega hannað sem samningur um aðgang að innri markaði Evrópusambandsins. Markmiðið var að tryggja frjáls viðskipti og jafnrétti í viðskiptum milli ESB og aðildarríkja EES, þar á meðal Íslands. Hins vegar hafa mörg dæmi sýnt að EES-samningurinn hefur þróast úr efnahagslegu samstarfi yfir í að verða pólitískt stefnumótandi afl sem hefur áhrif á íslensk lög og reglugerðir án beinnar þátttöku þjóðarinnar í ákvarðanatökunni.
Um þetta er fjallað í grein sem norski hagfræðingurinn Christian Anton Smedshaug skrifar um þróun EES samningsins í Klassekampen 13. febrúar.
Árið 2020 samþykkti Evrópuþingið Græna sáttmálann (Green Deal) sem markmið um að gera Evrópu kolefnishlutlausa fyrir árið 2050. Þó Ísland sé ekki hluti af ESB, fellur stór hluti af þessum stefnum í gegnum EES-samninginn og hefur bein áhrif á íslenskt samfélag. Þannig eru íslensk stjórnvöld skuldbundin til að innleiða nýjar reglur, jafnvel þegar þær eiga ekki beint við um íslenskan raunveruleika.
Sérstaklega er fjallað um orkumál og loftslagsaðgerðir í þessu samhengi. Í greiningu norsku gagnrýnenda EES-samningsins kemur fram að reglugerðir sem upphaflega voru hugsaðar fyrir innri markað Evrópu hafi breyst í pólitísk tæki til að þvinga lönd eins og Noreg og Ísland til að fylgja stefnum sem þau hefðu að öðrum kosti ekki tekið upp.
Ógnin við fullveldi?
Eitt helsta gagnrýnisatriðið er að reglugerðir sem fjalla um loftslagsmál og orkuviðskipti hafa lítið sem ekkert með viðskipti að gera. Samt eru þær teknar upp í gegnum EES-samninginn. Af hverju ættu reglur um skipulag bygginga eða dreifingu raforku, sem eru hannaðar fyrir stærri lönd með annars konar orkuþörf, að hafa bein áhrif á íslenskt samfélag?
Samningurinn hefur einnig áhrif á það hvernig Ísland getur hagað sér í alþjóðlegum viðskiptum. Þar sem EES-samningurinn tryggir opinn markað við ESB, er Ísland að hluta bundið af reglum sem geta torveldað tvíhliða samninga við önnur stór ríki eins og Bandaríkin eða Kína.
Er kominn tími á endurskoðun?
Mörg lönd utan ESB, eins og Sviss, hafa valið að þróa sérsniðna samninga í stað þess að taka upp reglur frá Brussel í heild sinni. Þetta má segja að eigi einnig við um Bretland sem fetar nú sömu vegi eftir BREXIT. Gagnrýnendur EES vilja að Ísland taki svipaða stefnu – að viðurkenna að frjáls viðskipti séu mikilvæg en að það þurfi ekki að kosta fullveldi landsins.
Er Ísland tilbúið til að íhuga nýja leið, eða erum við föst í samningi sem hefur þróast langt út fyrir upphaflegt markmið sitt?
Fimmtudagur, 13. febrúar 2025
Satt segir Sigmundur
Í umræðum á Alþingi þann 11. febrúar gagnrýndi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson harðlega að bókun 35 væri sett á dagskrá nýrrar ríkisstjórnar án þess að þingmenn hefðu fengið aðgang að lykilgögnum málsins. Hann benti á að varnir Íslands í málinu hefðu verið afhentar utanríkismálanefnd í trúnaði og veifaði um leið svartri möppu. Þetta þýddi að þeir þingmenn sem höfðu séð þau mættu ekki tjá sig um efni þeirra opinberlega. Það væri því krafa um að þingmenn samþykktu breytingar sem snertu fullveldi Íslands án þess að fá að kynna sér öll gögnin. Hann taldi þetta fyrirkomulag algjörlega óásættanlegt og fordæmalaust í jafn stóru máli.
Sigmundur Davíð lagði ríka áherslu á að viðhald fullveldis fælist ekki aðeins í formlegu sjálfstæði Íslands heldur líka í því hvernig landið nýtti rétt sinn til að setja eigin lög og taka sjálfstæðar ákvarðanir. Með því að samþykkja bókun 35 væri verið að grafa undan þeim rétti með því að skuldbinda Ísland til að láta Evrópureglur vega þyngra en íslensk lög. Ef stjórnvöld gengju sífellt til móts við Evrópusambandið án þess að nýta möguleika EES-samningsins til að standa fast á íslenskum hagsmunum, væri verið að veikja fullveldið í reynd. Hann líkti þessu við svokallaða salamitaktík, þar sem sneið eftir sneið væri tekin af sjálfstæðinu, þar til ekkert stæði eftir.
Hann benti einnig á fáránleikann í þeirri röksemdafærslu að innleiðing bókunar 35 væri nauðsynleg til að bæta neytendavernd. Ef íslensk lög væru ekki nægilega sterk til að vernda neytendur væri lausnin einföld: að breyta þeim með lýðræðislegri umræðu á Alþingi, en ekki að færa Evrópusambandinu aukið vald yfir íslenskri löggjöf. "Fullveldi snýst um það að íslensk stjórnvöld taki sjálfstæðar ákvarðanir byggðar á hagsmunum landsins, ekki að samþykkja erlendar reglur sjálfkrafa," sagði Sigmundur Davíð.
Sigmundur Davíð gerði jafnframt formlega athugasemd við að umræðan færi fram án þess að þingmenn hefðu fengið öll gögn málsins í hendur. Að ræða svo stórt fullveldisatriði í blindni væri óásættanlegt, og hann skoraði á forseta Alþingis að tryggja að 2. umræða málsins færi ekki fram fyrr en þingmenn hefðu fengið fullnægjandi upplýsingar.
Fullveldi og fásinnan um neytendavernd í innleiðingu bókunar 35 verða ekki rædd án þess að þingmenn fái öll gögn á borð til sín eins og Sigmundur Davíð benti skilmerkilega á. Það er erfitt að sjá hvernig hægt er að réttlæta innleiðingu bókunar 35 á forsendum neytendaverndar, þegar hún í raun skerðir rétt Íslands til að setja eigin lög og taka sjálfstæðar ákvarðanir. Ef við sem þjóð ætlum að standa vörð um fullveldi Íslands, verður það að birtast í raunverulegum aðgerðum, ekki aðeins í orðum.
FULLVELDIÐ ER SÍVIRK AUÐLIND
Miðvikudagur, 12. febrúar 2025
Skrýtnasta málið og vonin um að Eyjólfur hressist
Bókun 35 er komin á fleygiferð á Alþingi. Sagt er að mikið liggi á að samþykkja hana svo fullveldissinnaðir Sjálfstæðismenn, sem er allur þorri Sjálfstæðismanna, fari ekki að ræða málið á fyrirhuguðum landsfundi.
Í ljós kom í haust, að 72% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins eru andvíg bókun 35. Það er því að vonum, og ánægjulegt, að Diljá Mist Einarsdóttir skuli segja að það sé best að láta málið eiga sig. Vonandi tekst henni að sannfæra þingflokkinn um að það sé best.
Meirihluti Íslendinga, sem afstöðu taka, er andvígur bókun 35 samkvæmt síðustu skoðanakönnun um málið. Ákafamenn um framsal stjórnvalds til Evrópusambandsins tala í sífellu um að þjóðin eigi að ráða. Alveg þangað til byrjað er að ræða bókun 35. Þá er ekki lengur mikilvægt að þjóðin fái að ráða.
Sagt er að það þurfi að bæta rétt manna í einhverjum málum með því að samþykkja bókun 35. Ef Alþingi vill bæta rétt einhverja í einhverjum málum setur það lög þar að lútandi. Það samþykkir ekki opið valdaframsal sem enginn veit hvaða afleiðingar mun hafa.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hélt þrumuræðu um bókun 35 á Alþingi 11. febrúar 2025. Þar kom réttilega fram að í bókuninni fælist valdaframsal til Evrópusambandsins. Þar kom líka fram að gögn sem tengjast málinu séu leyndarmál. Já, leyndarmál! Hvernig ætli verði rætt um slíkt í nefnd? Með lokaðan munn?
Margir verða til þess að rifja upp að einn ráðherra Flokks fólksins útskýrði fyrir skömmu að bókun 35 gengi gegn stjórnarskrá lýðveldisins. Sá hlýtur að hressast og muna skyldur alþingismanna við stjórnarskrána, ef til atkvæðagreiðslu kemur um bókunina. Í leiðinni rifjast eflaust upp að yfirgnæfandi meirihluti stuðningsmanna Flokks fólksins er andvígur bókun 35. Er það ekki örugglega eitthvað meira en bara fólk flokksins?
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/10/07/fleiri_a_moti_bokun_35_en_med/
https://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20250211T154602
https://utvarpsaga.is/eyjolfur-bokun-35-gengur-thvert-a-stjornarskra-islands/
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 11. febrúar 2025
Hefur evran áhrif á atvinnuleysi?
Það er áhugavert að skoða hvort atvinnuleysi sé meira meðal evru-ríkja eða þeirra sem standa utan hennar. Þessi spurning var var skoðuð með aðstoð gervigreindar (Chatgpt 4o).
Atvinnuleysi í ESB
Samkvæmt nýjustu gögnum frá Eurostat var atvinnuleysi í Evrópusambandinu í lok árs 2023:
- Evru-svæðið (20 lönd með 341 milljón íbúa): 6,4%
- Önnur ESB-lönd (7 lönd með 106 milljónir íbúa): 5,7%
M.ö.o. þetta bendir til að atvinnuleysi sé almennt aðeins hærra í löndum sem nota evru. Einnig er meiri breytileiki í atvinnuleysistölum meðal evru landanna þeirra sem ekki gera það.
Staðan meðal evru-ríkjanna
Þar sem löndin sem nota evru deila sameiginlegri peningastefnu, sem stjórnað er af Evrópska seðlabankanum (ECB), hafa þau takmarkaða getu til að aðlaga stýrivexti eða gengisstefnu að sínum efnahagsaðstæðum. Þetta veldur misjöfnum áhrifum á atvinnuleysi:
- Lægsta atvinnuleysi: Holland (~3,7%) og Þýskaland (~4,0%).
- Hæsta atvinnuleysi: Grikkland (~9,4%) og Spánn (~14%).
Þetta sýnir einfaldlega að sameiginlegur gjaldmiðill og peningastefna evru svæðisins tryggja síður en svo svipað atvinnuleysi.
Lönd utan evru eru stöðugari
Lönd sem ekki nota evru, svo sem Tékkland og Pólland, hafa almennt séð minni sveiflur í atvinnuleysi. Þau hafa sveigjanleika til að aðlaga stýrivexti eða leyfa gengissveiflur til að viðhalda samkeppnishæfni:
- Tékkland: 4,3%
- Pólland: 5,1%
Þessi ríki hafa notað sjálfstæða peningastefnu m.a. til að viðhalda lægra atvinnuleysi og brugðist hraðar við efnahagsáföllum, svo sem í Covid-19 faraldrinum.
Ísland og sveigjanleiki gjaldmiðilsins.
Ísland hefur sömu tækifæri og lönd utan evru hvað varðar sjálfstæða peningastefnu. Með eigin gjaldmiðil getur Ísland brugðist við efnahagsáföllum með gengisaðlögun, sem hefur reynst lykilatriði í viðspyrnu eftir efnahagskreppur. Þótt gengissveiflur hafi sínar áskoranir hefur þessi sveigjanleiki hjálpað Íslandi að viðhalda hagkerfislegum stöðugleika.
Niðurstaða
Gögn benda til þess að meiri breytileiki sé í atvinnuleysi innan evru-svæðisins en í löndum sem ekki nota evru. Atvinnuleysi er einnig meira að meðaltali meðal evru landanna en hinna. Þrátt fyrir sameiginlegan gjaldmiðil eru miklar sveiflur í atvinnuleysi milli evru landanna, á meðan ESB-lönd með eigin gjaldmiðil virðast hafa stöðugri vinnumarkað.
Fyrir Ísland hefur verið hagstætt að standa utan evrunnar, þar sem sveigjanleiki í gengisstefnu hefur hjálpað til við að viðhalda atvinnustigi og hagkerfislegum stöðugleika.
Mánudagur, 10. febrúar 2025
Gervigreindin þarf ekki sæstreng
Rannsóknir benda til að raforkunotkun evrópskra gagnavera gæti næstum þrefaldast fyrir árið 2030, úr um 62 teravattstundum (TWh) í yfir 150 TWh árlega. Þetta myndi hækka hlutdeild gagnavera í heildarorkunotkun Evrópu úr 2% í um 5%. Þessi 150 TWh eru margföld heildar raforkuframleiðsla á Íslandi í dag.
Gervigreind er mjög orkufrek. Til dæmis notar AI-spjallmenni eins og ChatGPT allt að 25 sinnum meiri orku en einföld Google-leit.
Það þarf því augljóslega ekki sæstreng til að flytja raforku frá Íslandi til ESB, ljósleiðari í gagnaver framtíðarinnar er ígildi útflutnings á grænni orku frá Íslandi.
Sunnudagur, 9. febrúar 2025
Sigríður og Jón opinbera ruglið
Ríkisstjórnin segist vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram með verkefni sem að mörgu leyti er óljóst, eins og fram kom í ágætu viðtali við Sigríði Á Andersen og hér er tengill á:
Svo skiptir líka máli að allt þetta Evrópubrölt á árunum eftir hrun gekk á svig við stjórnarskrá. Umsóknin var ekki borin upp í ríkisráði, eins og skylda er og umsóknin sem send var til Evrópusambandsins var alls ekki í samræmi við það sem Alþingi samþykkti naumlega. Jón Bjarnason fer yfir það mál hér:
https://jonbjarnason.blog.is/blog/jonbjarnason/entry/2310875/
Semsagt: Tómt rugl og svindl
Og því vilja sumir halda áfram!
Fullveldissinnar á X-inu:
https://x.com/i/communities/1863919744635523503
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Hver er vondi karlinn?
- Kjúklingar og refur
- Að kremjast ekki
- Þær leita þangað sem þær eru fyrir
- Perlur á bandi
- Stóridómur Ragnars fallinn
- Stefna sósíalista
- Sýnikennsla
- Mulningsvélin
- Umsögn til Alþingis um bókun 35
- Er þetta nokkuð svo flókið?
- Feitur reikningur og vafasamur heiður
- Hafa ekkert með gjaldmiðilinn að gera
- Stríðsmenning Evrópumanna
- Evrópa skömmuð
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.3.): 247
- Sl. sólarhring: 440
- Sl. viku: 2696
- Frá upphafi: 1202091
Annað
- Innlit í dag: 230
- Innlit sl. viku: 2413
- Gestir í dag: 227
- IP-tölur í dag: 225
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar