Föstudagur, 20. desember 2013
Framleiðsla á mann hér um 15% meiri en að meðaltali í Evrópu
Þrátt fyrir fjarlægð frá mörkuðum, dreifða byggð og fámennið hér á landi er framleiðsla á mann með því mesta í heiminum. Framleiðsla á mann er að meðaltali um 15% meiri en í Evrópu.
VB.is segir svo frá:
Árið 2012 var verg landsframleiðsla (VLF) á mann í Lúxemborg, mælt á jafnvirðisgengi, tvisvar sinnum hærri en meðal landsframleiðslan á mann í Evrópu.
Sker landið sig talsvert mikið úr hvað varðar landsframleiðsluna, en í næstu sætum á eftir má finna Noreg, þar sem VLF á mann mældist 95% hærri en í Evrópu að meðaltali, og Sviss þar sem hún var tæplega 60% hærri en í öðrum löndum Evrópu. Samkvæmt útreikningum Eurostat var landsframleiðsla á mann á Íslandi í fyrra um 15% hærri en meðaltal Evrópulandanna segir til um, sem er óbreytt niðurstaða frá því í fyrra og árið 2010.
Ísland er þvi í 11. sæti á lista yfir mestu landsframleiðsluna á mann í Evrópu, og deilir sætinu með Finnlandi. Svíþjóð og Danmörk deila sjöunda sætinu á listanum, þar sem framleiðsla á mann mælist rúmlega fjórðungi hærri en að meðaltali á mann í Evrópu.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 20. desember 2013
Sundrung í ESB dregur úr lánshæfi sambandsins
Samstaða um aðgerðir innan ESB er ekki nægileg að mati lánshæfismatsfyrirtækja til að viðhalda góðri einkunn sambandsins. Enn fremur dregur umræða um úrsögn Bretlands úr styrk ESB.
Mbl.is greinir frá þessu:
Matsfyrirtækið Standard and Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn Evrópusambandsins úr AAA í AA+. Ástæðan er meiri sundrung, þar á meðal þjóðaratkvæðagreiðsla Breta um aðild og fjárlagagerð.
Samkvæmt tilkynningu S&P eru horfur hins vegar stöðugar og einkunnir einstakra ríkja óbreyttir.
Undanfarin fimm ár hefur ESB og evruríkin sautján þurft að koma einstökum ríkjum ESB til bjargar og eins hafa róttækar breytingar verið gerðar á stofnunum ESB til þess að koma í veg fyrir upplausn innan sambandsins.
![]() |
Lánshæfiseinkunn ESB lækkuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. desember 2013
ESB sleit viðræðunum einhliða
Eins og fram kemur í meðfylgjandi frétt sleit framkvæmdastjórn ESB viðræðum við utanríkisráðuneytið um IPA-styrkina einhliða. Eðlilegt næsta skref er að Ísland slíti formlega viðræðum um aðild að ESB.
Fram kemur í meðfylgjandi frétt mbl.is:
Margrét (aðstoðarmaður utanríkisráðherra) segir aðspurð að ekkert í viðræðunum hafi gefið til kynna að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins myndi skyndilega ákveða að hætta viðræðunum og taka einhliða þá ákvörðun að hætta að styrkja þau verkefni sem samningar hefðu verið undirritaðir um. Sú ákvörðun hafi fyrir vikið komið utanríkisráðuneytinu í opna skjöldu enda verið fyrirvaralaus.
![]() |
Hættu skyndilega viðræðunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 19. desember 2013
Lestrarkunnátta ESB-sinna
ESB-aðildarsinnar hafa oft óskað eftir upplýstri umræðu um ESB-mál. Umræðan og kynningin um ESB hefur verið talsverð í mörg ár. Aðildarsinnum hefur samt heldur fækkað. Skýringin er kannski sú að meðal-Íslendingurinn er læsari en meðal-ESB-aðildarsinninn.
Þetta sést m.a. á meðfylgjandi frétt á mbl.is. ESB-aðildarsinnar virðast ólæsir á texta um félagslega fátækt sem breiðist út um Evrópusambandið, um efnahagslegt ójafnvægi og óstöðugleika í Evrópusambandinu.
ESB-aðildarsinnarnir eru líka illa læsir á stefnuskrár stjórnarflokkanna og samþykktir æðstu samkoma flokkanna sem segja að Íslandi sé betur borgið utan ESB og að flokkarnir vilji ekki að Ísland fari í ESB.
ESB-aðildarsinnar eru enn fremur illa læsir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin hefur stöðvað aðildarviðræðurnar.
Það er ekkert sem knýr á að þær verði teknar upp að nýju. Þjóðin er á móti aðild, ríkisstjórnin er á móti aðild og þingið er á móti aðild.
Ef svo ólíklega færi, þrátt fyrir þessa augljósu stöðu, að taka ætti upp viðræður, þá fela samþykktir stjórnarflokkanna það í sér að viðræður yrðu ekki teknar upp undir neinum kringumstæðum nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.
En þar sem aðldin hefur ekkert fylgi er engin ástæða til að huga að slíku.
Í staðinn fyrir að ESB-aðildarsinnar óski eftir frekari umræðu um ESB væri kannski nær að þeir hugi aðeins betur að lestrarkunnáttu sinni. Eða eru þetta kannski bara látalæti í þeim?
![]() |
Undrast stöðu viðræðna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 18. desember 2013
Er íslensk stjórnsýsla að koma okkur í IPA-ógöngurnar?
Umræðan um IPA-styrkina einkennist annars vegar af mismunandi afstöðu til ESB-aðildar og hins vegar af samblandi af hefðbundinni íslenskri löghyggju sem enn glittir í þrátt fyrir allt - og hreinræktaðri tækifærismennsku.
Þeirri kenningu hefur heyrst fleygt að ástæðan fyrir þeim ógöngum sem IPA-styrkirnir eru komnir í sé stjórnlítil sókn sumra forystumanna stofnana og í stjórnsýslunni í það fé sem hægt er að fá í gegnum styrkveitingarnar. Þess vegna hafi verið tekið af skarið og efnt til útgjalda út á væntanlega styrki án þess að þeir hafi verið í hendi. Enn fremur hafi aðrir treyst á að þeir samningar sem búið var að undirrita myndu halda.
Ef fyrri hluti kenningarinnar er réttur hefur styrkja- og aðlögunarferlið að ESB aðeins orðið til óþurftar fyrir íslenskt stjórnkerfi og heldur gert vinnubrögðin í íslenskri stjórnsýslu verri ef eitthvað er.
Hvar liggur ábyrgðin ef stjórnsýslan hefur hagað sér með svo óábyrgum hætti? Því heyrist fleygt að hún liggi fyrst og fremst í utanríkisráðuneytinu sem sérfræðiráðuneyti í þessum efnum - og þá hjá fyrrverandi utanríkisráðherra.
Slæmt er ef rjómi íslenskrar stjórnsýslu hefur þannig kolfallið á meintum ESB-prófum í fyrirmyndar stjórnsýslu.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. desember 2013
Nú er kominn tími til að tala skýrt
Menn eiga ekkert að vera að fara undan í flæmingi með með stöðu ESB-málsins. Það er kominn tími til að tala skýrt. Umsóknarferlið hefur verið stöðvað. Stjórnin vill ekki gerast aðili að ESB og ekki þjóðin heldur. Því er rétt að slíta þessum viðræðum formlega.
Stjórnin vildi bíða eftir skýrslu um ESB-málið. Allar skýrslur til þessa hafa aðeins bent á ýmsa galla og ýmsa kosti við aðild. Heildardæmið verður hver að gera upp við sjálfan sig. Skýrslan getur ekki komið með neitt nýtt sem einhverju máli skiptir sem ekki er vitað nú þegar. Þess vegna er rétt að undirbúa að þessum viðræðum verði slitið formlega strax og skýrslan hefur komið út.
![]() |
Utanríkismál ofviða Íslendingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 12. desember 2013
Hvað gerist í evrulandinu Slóveníu?
Evrulandið Slóvenía hefur átt í talsverðum efnahagserfiðleikum. Í vikunni kemur í ljós hvort stjórnvöld þar hafi nægilegt fé til að bjarga bönkum landsins eða hvort þau þurfi að leita til AGS.
RUV.is greinir frá þessu. Þar segir enn fremur:
Stjórnvöld hafa til reiðu 4,7 milljara evra, jafnvirði um 760 milljarða króna, en fjölmiðlar í Slóveníu telja að það þurfi á bilinu 4-5 milljarða evra til að bjarga bönkunum.
Fréttastofan AFP hefur eftir Davorin Kracun, prófessor í hagfræði við Maribor-háskóla, að ekki sé nóg að treysta stöðu bankanna, ryðja verði úr vegi ýmsum hindrunum sem torveldi árangur í efnahagsmálum, meðal annars vegna skuldabyrði fyrirtækja og skorts á erlendum fjárfestingum.
Alenka Bratusek, forsætisráðherra Slóveníu, hefur á undanförnum vikum heimsótt nokkur Evrópuríki í leit að kaupendum á 15 ríkisfyrirtækjum sem til stendur að einkavæða.
Miðvikudagur, 11. desember 2013
78 prósent Svía andvíg evrunni
78% Svía vilja ekki taka upp evruna í Svíþjóð í stað sænsku krónunnar samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar. Tæplega 13% eru hins vegar hlynnt því að landið verði hluti evrusvæðisins.
Einnig var spurt um afstöðu til veru Svíþjóðar í Evrópusambandinu. 45% eru hlynnt verunni í sambandinu samkvæmt könnuninni en 22,7% eru andvíg. Hins vegar sögðust 33,3% ekki vera viss um afstöðu sína í þeim efnum.
Frá þessu er sagt á fréttavefnum Thelocal.se en skoðanakönnunin var gerð af sænsku hagstofunni.
Mbl.is greinir frá þessu.
![]() |
78% Svía andvíg evrunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Misvægi og misskipting í Evrópusambandinu
- Lítil vinna fyrir ungdóminn á evrusvæðinu
- Aðeins meira um veikleika Evrópusambandsins
- Veikleikar Evrópusambandsins
- Kári sveiflar sverði
- Svaraði Markús ekki?
- Einföld lausn
- Gleðilega þjóðhátíð
- Nagli Hjartar og nokkrar einfaldar staðreyndir
- Horft í gegnum þokuna í bókunarmálinu
- Landráð?
- Öskrandi stríðsvagn fyrir Íslendinga
- Hann þrengir að öndunarveginum
- Það er ekki smæðin
- Bréfið
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 14
- Sl. sólarhring: 84
- Sl. viku: 898
- Frá upphafi: 1232333
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 799
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar