Leita í fréttum mbl.is

Undirgefni í von um þægilega innivinnu

Víða um lönd, ekki síst í Noregi er áberandi að viðhorf almennings og stjórnmálastéttarinnar eru ekki alltaf þau sömu, þótt um lýðræðisríki sé að ræða.  Þannig er stjórnmálastéttin oft hallari undir vald Evrópusambandsins en almenningur.  Kannski er það vegna þess að almenningur sér bara fleiri reikninga þar sem stjórnmálastéttin sér atvinnutækifæri.  Sums staðar þykir dónalegt að tala á þessum nótum, óháð því hvað sé satt eða rétt í málinu. Arnar Þór Jónsson er á hinn bóginn ekki þjakaður af sjálfsritskoðun, eins og menn heyra á 44. mínútu í þessu annars ágæta viðtali. 

https://share.transistor.fm/s/70bd9c4b


Ætli Baldur viti það?

Smám saman skýrast línur í framboði til embættis forseta Íslands.  Að öðrum frambjóðendum ólöstuðum virðast þrír hafa mest fylgi, Arnar Þór, Baldur og Halla.  Arnar Þór er einarður lyðræðis- og fullveldissinni, en Baldur og Halla hafa mikinn skilning á því að það sé best að afhenda stjórnvaldið til vanda- og umboðslausra í Evrópusambandinu. 

Viðbúið er að frambjóðendur sem stundum eru kallaðir Evrópusinnar muni reyna að þvo af sér þann stimpil eða gera lítið úr fyrri baráttu fyrir innlimun Íslands í stórríki gömlu nýlenduveldanna.  Í svoleiðis hreingerningu gerist oft eitthvað spaugilegt.  Það hefur nú þegar gerst að Baldur hefur talað um að vísa skerðingu á tjáningarfrelsi til þjóðaratkvæðis, fái hann að verða forseti.  Nú vill svo til að Evrópusambandið vinnur einmitt að því hörðum höndum að þagga niður í þeim sem því finnst leiðinlegir.  Fjölmiðlar sem evrópskum yfirvöldum finnst vondir eru bannaðir og ný evrópsk löggjöf um eftirlit með dreifingu á vondu efni tók gildi í fyrra.  Það er með öðrum orðum hrópandi mótsögn í því að vilja vernda fjölmiðla- og tjáningarfrelsi og að ganga í Evrópusambandið.

Þjóðaratkvæði um tjáningarfrelsi í landi þar sem Evrópulög gilda skiptir engu máli.  Það sem skiptir máli er að sjá til þess að Evrópulögin gildi ekki, heldur lög sem íbúarnir sjálfir setja sér.  Það heitir lýðræði.   

Menn geta svo velt því fyrir sér hvort sé verra, að Baldur viti þetta og láti eins og hann viti það ekki eða viti það bara ekki.


Alvörumál

Þegar ljóst var að hvorki Noregur né Ísland væru á leið inn í Evrópusambandið eftir hefðbundinni leið kom mikill kraftur í að koma þessum þjóðum inn sambandið bakdyramegin.  Sú leið felst í skapandi túlkun á EES-samningnum, sem öll miðar að tilfærslu á valdi frá kjörnum fulltrúm í þjóðlöndunum til embættiskerfis Evrópusambandsins. 

Arnar Þór Jónsson ræðir þessi mál í þarfri ádrepu.  Hann segir m.a.:

Hvað þýðir þetta fyrir Íslendinga? Svar: Samhliða því að stöðugt fleiri málaflokkar eru felldir undir EES samninginn mun ákvörðunarvald í stórum málaflokkum flytjast frá Alþingi til ESB, eins og þegar liggur fyrir á sviði orkumála. Þetta mun hafa þau áhrif að við missum ekki aðeins frá okkur lögin, heldur einnig völdin. Í framkvæmd mun þetta auka hættu á að Íslendingar missi úr sínum höndum eignarhald og yfirráð yfir landinu, vatninu, rafmagninu og sjávarútveginum. Í stuttu máli þýðir þetta að við munum missa frá okkur frelsið og sjálfsákvörðunarréttinn.

 

Ádrepa Arnars Þórs er hér:

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2300544/

 

Þeir sem vilja mæla með Arnari Þór til að stíga í stærsta ræðustól landsins eiga erindi hingað: 

https://island.is/umsoknir/maela-med-frambodi/?candidate=1000007

 


Það fjarar undan

EES-samningnum.  Þeir Norðmenn sem kynna sér málin virðast komast að því að víðtækur fríverslunarsamningur sé rétta leiðin til til framhaldssamlífs með löndum Evrópusambandsins.

Og eins og Hjörtur bendir skilmerkilega á er það leið sem farin var í samskiptum við Breta, og ekki er að sjá annað en að hún gefist vel. 

https://www.fullveldi.is/?p=39192


Áheyrilegt

viðtal er við Arnar Þór Jónsson, forsetaframbjóðanda á Útvarpi sögu.  Arnar Þór fer um víðan völl eins og von er, en öll er sú vallarreið innihaldsrík og umhugsunarverð.  

Á 11. mínútu segir hann frá manni sem trúað hafði þjóðsögunni um að fullveldissinnar væru sjálfkrafa einangrunarsinnar, en það er líklega eitt mesta afrek þeirra sem leiðir eru á lýðræðinu að ná að telja fólki trú um að fullveldis- og lýðræðissinnar séu á móti samskiptum við aðrar þjóðir. 

Á 23. mínútu er rætt um að forsetinn þurfi að standa vörð um stjórnarskrá, lýðræði og lýðveldið.  En það er ekki nóg að ætla sér það.  Forsetinn þarf að geta við vissar aðstæður viðhaft fumlaus vinnubrögð.  Til þess að geta það þarf djúpstæða þekkingu og skynsemi, til viðbótar við þann einlæga ásetning að standa fyrrnefnda varðstöðu.  Arnar Þór er, að öðrum ólöstuðum, líklegri en flestir ef ekki allir aðrir til að sýna einmitt þannig fumleysi.

https://share.transistor.fm/s/70bd9c4b


Barátta að hefjast - forvitnileg "netkönnun"

Smám saman fjölgar í hópi frambjóðenda til embættis forseta Íslands.

Af þeim fjórum sem flesta smelli fá í neðangreindum kosningaleik DV (sjá tengil hér að neðan) er einn sem gerir sér mjög skýra grein fyrir mikilvægi þess að standa vörð um fullveldið.  Það er Arnar Þór Jónsson. Þeir tveir, sem flest "atkvæði" hafa fengið, hafa barist fyrir því að fullveldinu verði fargað. Það er vægast sagt umhugsunarvert. 

Enn geta menn smellt við það nafn sem menn vilja helst sjá á dyrabjöllunni á Bessastöðum.

https://www.dv.is/eyjan/2024/3/17/thridja-forsetakonnunin-hvern-vilt-thu-sja-bessastodum/


Lítill fiskur flakaður og steiktur

Á íslenskan mælikvarða eru hvorki Danir né Írar smáþjóðir, en á mælikvarða Evrópusambandins eru þar litlir fiskar í stórri tjörn.  Stóru fiskarnir ráða í þeirri tjörn.  Þegar hagsmunir hinna stóru fara saman við hagsmuni hinna litlu fá allir brauðmola að maula.  Þegar hagsmunirnir fara ekki saman fá þeir litlu súrt epli að japla á. 

Þannig var það þegar Dönum var skipað að framfylgja refsiaðgerðum Evrópusambandsins gagnvart Færeyjum, sem þó voru enn undir danskri krúnu.  Það þótti mörgum skondin staða. Á endanum voru málin svo leyst til samræmis við hagsmuni stórríkjanna. Þá fengu Írar epli sem þeim fannst súrt.

Hjörtur rifjar þetta upp í hugvekju um goðsögnina um að það skipti sköpum að hafa sæti við misvel skilgreint borð. 

https://www.fullveldi.is/?p=11975

 


Dýrar viðskiptahindranir

Fræg eru orð Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, um að viðskiptafrelsi EES snerist að mestu um að koma í veg fyrir tæknilegar viðskiptahindranir.  Tollar væru hvort eð er lágir eða engir í viðskiptum innan Evrópu.

Að sama skapi bauð EES-samningurinn upp á tækifæri til að skapa tæknilegar hindranir gagnvart viðskiptum út fyrir Evrópusambandið, en það vill svo til að utan þess sambands er allur þorri mannkyns.    

Þessar tæknilegu hindranir koma niður á utanríkisviðskiptum Íslendinga með ýmsum hætti, sem Hjörtur J. Guðmundsson ræðir með greinargóðum hætti, eins og hann er vanur.  Hjörtur lýkur pistli sínum á þessum vel völdu orðum:

Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum sem ríki heimsins kjósa allajafna að fara þegar þau semja um viðskipti sín á milli. Ekki sízt stærstu efnahagsveldin með sína miklu viðskiptahagsmuni. Þar með talið Evrópusambandið. Víðtækur fríverzlunarsamningur. Leið sem, ólíkt EES-samningnum, felur ekki í sér hindranir í viðskiptum við önnur ríki, upptöku íþyngjandi regluverks eða vaxandi framsal valds yfir eigin málum.

https://www.fullveldi.is/?p=38926


« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 137
  • Sl. sólarhring: 237
  • Sl. viku: 1051
  • Frá upphafi: 1118768

Annað

  • Innlit í dag: 124
  • Innlit sl. viku: 945
  • Gestir í dag: 122
  • IP-tölur í dag: 122

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband