Mánudagur, 27. mars 2017
Aðalfundur Heimssýnar á morgun, þriðjudag
Aðalfundur Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, verður haldinn þriðjudaginn 28. mars 2017 klukkan 20:00 í húsakynnum Heimssýnar í Ármúla 6 í Reykjavík. Ræðumaður er Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, og fundarstjóri Haraldur Ólafsson veðurfræðingur.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kosningar og önnur mál.
Allir félagsmenn og stuðningsfólk Heimssýnar er velkomið.
Framkvæmdastjórn Heimssýnar
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 6. mars 2017
Þið eruð vandræðagemsar, segir Uffe Ellemann-Jensen
ESB myndi ekki þola fleiri vandræðagemsa, segir Uffe Ellemann-Jensen, og á við Íslendinga. Þið vitið hvað ESB felur í sér, segir Uffe hér í viðtali við Mogunblaðið. Það er alveg ljóst hvað er í pakkanum, það þarf ekkert að sækja um aðild til að fá að vita það. Annað hvort eru menn með í þessu öllu eða ekki, segir þessi hressilegi, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, léttur í bragði, en samt hálf dapur yfir bágu ástandi í ESB- og evruríkjunum.
![]() |
Þið vitið hvað er í pakkanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 7.3.2017 kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 3. mars 2017
Hvað ætlar hún sér eiginlega að verða - þegur hún verður eldri?
Framkvæmdastjórn ESB veit ekkert hvað hún vill verða. Nú er hún að velta því fyrir sér hvort hún eigi að verða stór eða bara vera lítil áfram og jafnvel enn minni en hún er í dag. Um þetta fjallar heljarinnar skýrsla sem framkvæmdastjórnin hefur gefið út. Meðal möguleika sem þar eru nefndir eru:
- ESB verður lítið - þ.e. án Bretlands.
- ESB verðu mjórra - þ.e. einungis innri markaður.
- ESB gerir meira - þ.e. þéttara samstarf í vinnumarkaðs- og löggæslumálum.
- ESB léttir sig og vinnur hraðar - þ.e. bara í öryggis-, innflytjenda- og varnamálum.
- ESB verður feitara og þyngra - þ.e. eykur miðstýringu, stofnar varnarbandalag og tekur upp eigin skattheimtu.
Hvert skyldi vera val þeirra fáu á Íslandi sem enn vilja að Ísland gerist aðili að ESB?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. mars 2017
Hvaðan í ósköpunum kemur hún - og hvert er hún að fara?
Þegar heimurinn er að gefast upp á evrunni og stórum hluta Evrópusambandsins dúkkar þessi fulltrú Viðreisnar upp í Bandaríkjunum og reynir að telja fólki trú um að það þurfi aðild að ESB til að tryggja fjármálastöðugleika. Hefur þessi þingmaður enga þekkingu á því sem verið hefur að gerast í fjármálum á evrusvæðinu? Les hún ekki fréttir um Grikkland, Ítalíu, Spán að ekki sé talað um Þýskaland - þar sem evran er mesti ógnvaldurinn við fjármálastöðugleika á svæðinu.
Hvar hefur þessi fulltrúi Viðreisnar verið?
![]() |
Segir EES ekki duga lengur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 24. febrúar 2017
AGS segir ESB þjarma að Grikkjum að óþörfu
Stefnan sem Þýskaland heftur rekið gagnvart Grikklandi er pólitískt og efnahagslega óskynsamleg og mun að lokum hrekja Grikki í greiðsluþrot. Þetta segir Hörður Ægisson ritstjóri Markaðarins í leiðara Fréttablaðsins í dag. Þar skrifar hann um ástandið í Grikklandi sem lengi hefur glímt við alvarlegan skuldavanda sem lítið hefur farið fyrir í fjölmiðlum undanfarin misseri. Það breytir þó engu um það að vandinn er enn til staðar og enn mjög alvarlegur. Alls nema skuldir ríkisins 180% af landsframleiðslu en mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er það að ef ekki verði afskrifaðar umtalsverðar upphæðir gæti prósentan farið upp í 300 á næstu árum og áratugum.
Ofangreint hefur Eyjan úr leiðara Harðar Ægissonar, efnahagsritstjóra, í Fréttablaðinu.
Þar segir ennfremur:
Fram undan er erfitt sumar fyrir gríska ríkið. Að sögn Harðar þarf Grikkland sjö milljarða evra í fjárhagsaðstoð í júlí næstkomandi til að geta borgað af skuldum sínum. Slíkir fjármunir eru þó ekki afhentir nema með ströngum skilyrðum og þurfa Grikkir að halda áfram að herða beltið og spara, auk þess sem áfram er gerð krafa um efnahagsumbætur, ,,í því skyni að ná fram auknum afgangi á frumjöfnuði ríkissjóðs segir Hörður.
Það kemur eflaust einhverjum á óvart en AGS er sammála stjórnvöldum í Aþenu um að afskrifa þurfi einhvern hluta skulda ríkisins ef sjóðurinn á að geta haldið áfram að lána Grikkjum. Þetta hefur ekki mælst vel fyrir meðal ráðamanna í Berlín sem hafa sett fótinn niður og hafna því alfarið að farið verði í afskriftir.
Skuldir Grikkja eru nánast einvörðungu við opinbera aðila, einkum sex stærstu Evruríkin með Þýskaland í broddi fylkingar. Afar litlar líkur eru á því að sögn Harðar að stjórnmálamenn í Frakklandi, Hollandi og Þýskalandi bjóði kjósendum sínum upp á það að Grikkir fá eina evru afskrifaða, það er ,,pólitískur ómöguleiki. Þetta þýðir aðeins eitt, Grikkir eru ekki að fara að losna úr skuldasúpunni í bráð.
Hörður segir að sú stefna sem yfirvöld í Þýskalandi hafi rekið gagnvart Grikklandi sé ,,pólitískt og efnahagslega óskynsamleg og mun að lokum hrekja Grikki í greiðsluþrot. Þjóðverjar græði ekkert á því að þurfa að afskrifa skuldir gagnvart Evrópska seðlabankanum ef Grikkir gangi út úr evrusamstarfinu.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 22. febrúar 2017
Landsmenn á móti ESB: Stöðugur og tryggur meirihluti gegn aðild
Andstaðan við aðild að ESB eykst og hún er stöðug. Meirihluti landsmanna hefur verið andvígur inngöngu í Evrópusambandið í öllum könnunum sem birtar hafa verið frá því í ágúst 2009 eða undanfarin sjö og hálft ár. Nú eru 54% á móti en 26 prósent með. Andstæðingar aðildar eru líka mun ákveðnari í sinni afstöðu. Fjörutíu prósent eru mjög andvíg aðild en einungis 13 prósent eru mjög hlynnt.
HENDUM ÞESSARI UMSÓKN ÚT Í HAFSAUGA - SJÁ:
Evrópusambandið heillar ekki Íslendinga
Misheppnaðasta umsókn Íslandssögunnar
![]() |
Tveir þriðju andvígir inngöngu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 19. febrúar 2017
Evruríkin eru læst inni í harmkvælaástandi, segir Jón Baldvin
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var í hressilegu viðtali í Silfrinu hjá Agli Helgasyni í morgun. Þar sagði Jón Baldvin að peningamálasamstarfið, þ.e. evrusamstarfið, í Evrópu vera ónýtt. Hafa ber í huga að þarna talar sá maður sem einna harðast barðist fyrir því á sínum tíma að tekið yrði upp nánara samstarf við ESB. En ekki lengur.
Jón Baldvin sagði að evrusamstarfið væri tæknilega ónýtt. Evrukerfið réði ekki við þau áföll sem dunið hefðu yfir. Öðrum hagkerfum hefði tekist það betur. Sökudólgurinn væri m.a. Maastricht-samkomulagið sem legði ýmsar byrðar á aðildarríki evrusamstarfsins varðandi hagstjórn sem væri óskynsamleg til lengdar. Almenningur í Evrópu væri látinn borga skuldir fjárglæframanna. Bankarnir hefðu ekkert svigrúm til að stuðla að hagvexti og hagsæld. Evrópuríkin væru því læst inni í harmkvælaástandi. Það er búið að eyðileggja Grikkland, sagði Jón Baldvin. Hagkerfið þar væri fjórðungi minna en áður. Evran væri búin að eyðileggja hagkerfi Suður-Evópu; Ítalíu, Spánar, Kýpur og Grikklands. Atvinnuleysi ungs fólks á Spáni væri um 50%. Hvers konar þjóðfélag er þetta?, spurði Jón Baldvin í samtalinu við Egil.
Jón sagði að fjöldaatvinnuleysi væri byggt inn í þetta ónýta fjármálakerfi evrussamstarfsins. Hagkerfið væri læst inni í samdrætti og almenningur væri látinn borga skuldir auðmanna. Þess vegna væri lýðræðið að bresta í þessum löndum.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 9. febrúar 2017
Brexit heldur áfram stig af stigi
Frumvarpið fer nú til efri deildar þingsins en Theresa May, forsætisráðherra Breta, gerir ráð fyrir að hefja viðræður við ESB um úrsögn í marslok.
Nýjustu færslur
- Gulli neglir
- Út fyrir ramma skynsemi og raunsæis
- Óheilindi í stjórnmálum
- Flugbraut handa Von der Leyen
- Árið er ekki 2009!
- Merkimiðapólitík Viðreisnar grefur undan lýðræðislegri umræðu
- Með öðrum orðum: Aðlögun!
- Það er ekki hræðsluáróður að krefjast heiðarleika
- Ursula tekur sér dagskrárvald
- Rétt hjá Guðrúnu enginn þjóðarvilji liggur fyrir Þorgerður
- Vonir utanríkisráðherra
- Íslandsskattur
- Hin æpandi þögn um blákaldan raunveruleika
- Trump, tollar og ótroðnar slóðir
- Þegar spurningunni má svara, en umræðan fær ekki að halda áfram
Eldri færslur
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 178
- Sl. sólarhring: 252
- Sl. viku: 2027
- Frá upphafi: 1240204
Annað
- Innlit í dag: 155
- Innlit sl. viku: 1814
- Gestir í dag: 147
- IP-tölur í dag: 147
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar