Miðvikudagur, 5. apríl 2017
Frekar sterlingspund en evru
Seðlabankar eru í vaxandi mæli að losa sig við evrur og kaupa sterlingspund í staðinn. Þetta kemur fram í frétt breska viðskiptablaðsins Financial Times. Ástæðan er sögð vera pólitískur óstöðugleiki innan Evrópusambandsins, lítill hagvöxtur á evrusvæðinu og vaxtastefna seðlabanka evrunnar. Þess í stað líta þeir á sterlingspundið sem stöðugan valkost til langs tíma segir í fréttinni.
![]() |
Vilja pundið frekar en evruna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 5. apríl 2017
Benedikt yrði á bekknum hjá Lars
Það má segja að Lars Christensen, nafntogaður danskur hagfræðingur sem skrifar reglulega í Fréttablaðið, hafi gefið fjármála- og efnahagsráðherra falleinkunn við stjórn efnahagsmála.Í blaðinu í dag segir Lars:
Í viðtali við Financial Times um helgina gaf Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra í skyn að það gæti verið góð hugmynd að festa krónuna við evru. ...Ef Ísland hefði verið með fastgengi 2008 hefði uppsveiflan verið stærri en kreppan hefði orðið mun dýpri. Ísland hefði endað eins og Grikkland ef gengið hefði ekki verið sveigjanlegt. Og að lokum: Gagnstætt því sem Benedikt Jóhannesson heldur fram þá er það þannig að ef festa ætti gengi krónunnar ætti ekki að festa hana við evru heldur við gjaldmiðil eða myntkörfu sem verður gjarnan fyrir sömu útflutningshnykkjum og Ísland. Bestu kostirnir hérna væru aðrir auðlindagjaldmiðlar eins og kanadíski dollarinn, norska krónan eða nýsjálenski dollarinn.
Mánudagur, 3. apríl 2017
Bensi Jó tekur heljarstökk afturábak í gjaldmiðilsmálinu
Þetta er nú meira upphlaupið með hann Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra sem í viðtölum við útlensk blöð ræðir ýmsa möguleika í gjaldmiðilsmálum en hér heima segir að menn hafi verið að draga fullvíðtækar ályktanir af því sem haft var eftir honum. Á meðan slær Bjarni Ben því föstu að krónan sé framtíðargjaldmiðill.
![]() |
Benedikt: Fullvíðtækar ályktanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 3. apríl 2017
Bjarni Ben: Krónan er framtíðargjaldmiðill Íslendinga
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði í ræðu á ársfundi Seðlabankans í síðustu viku að í vinnu þriggja manna verkefnisstjórnar sem á að endurmeta forsendur peninga- og gjaldmiðilsstefnu Íslands sé gengið út frá því að krónan verði í næstu framtíð gjaldmiðill Íslendinga.
Enn fremur sagði Bjarni í ræðunni:
Krónan hefur því leikið stórt hlutverk í þjóðarbúskapnum. Styrkur hennar hefur átt stóran þátt í að skapa stöðugt verðlag í þrjú ár og betri kaupmátt almennings en dæmi eru um. Kaupmáttur Íslendinga hvort sem er í innlendri eða erlendri mynt hefur ekki áður verið meiri. Þegar meðallaun Íslendinga eru flutt yfir í evrur og borin saman við nálægar þjóðar á þeim grundvelli sést sterk staða Íslands glöggt.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 2. apríl 2017
Goldman Sachs hjálpuðu Grikkjum að svindla sér inn á evrusvæðið
Þau voru athyglisverð ummælin hjá Ögmundi Jónassyni, fyrrum þingmanni og ráðherra, í þættinum Silfrið í Sjónvarpinu um að hinn stóri alþjóðlegi fjárfestingabanki Goldman Sachs hefði hjálpað Grikkjum að svindla sér inn á evrusvæðið. Það er jú vitað að hagskýrslur sögðu ekki rétta sögu um grískan efnahag þegar Grikkir sóttust eftir að fá að taka upp evru. Síðustu 10 árin eða svo hefur evran verið Grikkjum vaxandi fjötur um fót.
Hlutur hins alþjóðlega stórbanka, Goldman Sachs, er forvitnilegur og við stutta leit á alnetinu kom upp frétt í breska fjölmiðlinum Independent þar sem segir frá því hvernig Grikklandi tókst að halda sig innan svokallaðra Maastricht-viðmiða, sem var forsenda fyrir evruupptöku, með flóknum fjármálagjörningum þessa stóra alþjóðlega fjárfestingabanka sem áttu að láta opinberar skuldir Grikkja líta betur út.
Þau eru mörg vítin sem ber að varast.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 1. apríl 2017
70% Breta vilja úr ESB og fremur engan samning en slæman
Það er vaxandi sátt í Bretlandi um útgönguna úr ESB eftir að hún var samþykkt með naumum meirihluta síðasta sumar. Alls telja 69% Breta rétt að fara þá leið sem bresk stjórnvöld feta út úr ESB. Það er einnig áhugavert að ef ESB ætlar að sýna þá óbilgirni sem glittir í nú í byrjun samningaviðræðna um útgönguna þá vill góður meirihluti Breta fremur engan samning við ESB en slæman. Það er því ljóst að Bretar eru að sættast á þessa leið stjórnvalda í Bretlandi út úr ESB og gætu jafnvel hugsað sér að álíka samskiptamódel við ESB og fjarlægari og óþekktari ríki eða svæði. ESB skiptir Breta ekki lengur það miklu máli.
Í mbl.is um þetta segir:
Mikill meirihluti Breta styður þau áform ríkisstjórnar Bretlands að segja skilið við Evrópusambandið samkvæmt niðurstöðum nýrrar víðtækrar skoðanakönnunar fyrirtækisins YouGov. Þar kemur fram að 69% telja bresk stjórnvöld gera rétt með því að ganga úr sambandinu. Einungis 21% er andvígt því og telja að koma þurfi í veg fyrir þau áform.
........
Forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, hefur sagt að hún sé reiðubúin að ganga frá samningaborðinu ef ekki verði í boði nægjanlega góður samningur. Enginn samningur sé betri en slæmur samningur. Meirihluti Breta er sammála þessu samkvæmt skoðanakönnuninni eða 55%. Tæpur fjórðungur telur rétt að fallast á þann samning sem verði í boði.
![]() |
Telja rétt að ganga úr ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 29. mars 2017
Ný stjórn Heimssýnar
Á aðalfundi Heimssýnar í gærkvöld var ný stjórn kjörin. Erna Bjarnadóttir (sjá mynd) var kjörin formaður í stað Jóns Bjarnasonar og Halldóra Hjaltadóttir var kjörin varaformaður í stað Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur.
Eftirtaldir aðrir voru kjörnir í stjórn:
Anna Ólafsdóttir Björnsson Ásdís Helga Jóhannesdóttir Ásgeir Geirsson Ásmundur Einar Daðason Birgir Örn Steiingrímsson Bjarni Harðarson Bjarni Jónsson Elísabet Svava Kristjánsdóttir Eyþór Arnalds Frosti Sigurjónsson Guðjón Ebbi Guðjónsson Guðni Ágústsson Gunnar Guttormsson Gunnlaugur Ingvarsson Haraldur Líndal Haraldur Hansson Haraldur Ólafsson Hörður Gunnarsson Ívar Pálsson Jakob Kristinsson Jóhanna María Sigmundsdóttir Jón Bjarnason Jón Árni Bragason Jón Ríkharðsson Jón Torfason Kristinn Dagur Gissurarson Lilja Björg Ágústsdóttir Óðinn Sigþórsson Ólafur Egill Jónsson Ólafur Hannesson Páll Marís Pálsson Páll Vilhjálmsson Ragnar Arnalds Ragnar Stefán Rögnvaldsson Ragnar Stefánsson Sif Cortes Sigurbjörn Svavarsson Sigurður Þórðarson Stefán Jóhann Stefánsson Styrmir Gunnarsson Vésteinn Valgarðsson Viðar Guðjonshen Vigdís Hauksdóttir Þollý Rósmundsóttir Þorvaldur Örn Árnason Þorvaldur Þorvaldsson Þorvarður B. Kjartansson Þóra Sverrisdóttir Ögmundur Jónasson
Evrópumál | Breytt 31.3.2017 kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 27. mars 2017
Aðalfundur Heimssýnar á morgun, þriðjudag
Aðalfundur Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, verður haldinn þriðjudaginn 28. mars 2017 klukkan 20:00 í húsakynnum Heimssýnar í Ármúla 6 í Reykjavík. Ræðumaður er Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, og fundarstjóri Haraldur Ólafsson veðurfræðingur.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, kosningar og önnur mál.
Allir félagsmenn og stuðningsfólk Heimssýnar er velkomið.
Framkvæmdastjórn Heimssýnar
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Út fyrir ramma skynsemi og raunsæis
- Óheilindi í stjórnmálum
- Flugbraut handa Von der Leyen
- Árið er ekki 2009!
- Merkimiðapólitík Viðreisnar grefur undan lýðræðislegri umræðu
- Með öðrum orðum: Aðlögun!
- Það er ekki hræðsluáróður að krefjast heiðarleika
- Ursula tekur sér dagskrárvald
- Rétt hjá Guðrúnu enginn þjóðarvilji liggur fyrir Þorgerður
- Vonir utanríkisráðherra
- Íslandsskattur
- Hin æpandi þögn um blákaldan raunveruleika
- Trump, tollar og ótroðnar slóðir
- Þegar spurningunni má svara, en umræðan fær ekki að halda áfram
- Þjóðaratkvæði um draugaviðræður með texta frá Brussel
Eldri færslur
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 25
- Sl. sólarhring: 204
- Sl. viku: 1874
- Frá upphafi: 1240051
Annað
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 1676
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar