Leita í fréttum mbl.is

Tveir góðir um Steingrím J.

Steingrímur J. Sigfússon var á dögunum í breskum spjallþætti á BBC. Fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna hafi í frammi málflutning um ESB og Icesave sem tveir bloggarar gera að umtalsefni.

Hans Haraldsson skrifar

Í öllum spurningum gekk spyrillinn út frá því að það væri stefna ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og VG að ganga í ESB. Þegar Steingrímur reynir að útskýra að stefna stjórnarinnar sé að sækja um aðild að sambandinu en ekki ganga í það - þá ákvörðun eigi að taka eftir aðildarferlið - virðist spyrillinn eiga mjög erfitt með að ná utan um það sem Steingrímur er að segja.

Er sú stefna enda án fordæma og alls ekki í samræmi við uppbyggingu inngönguferlisins.

Og Jón Baldur L'Orange

Nýlegt viðtal við Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í HardTalk í BBC ætti enginn að láta framhjá sér fara. Það sýnir í hnotskurð bæði fáránleika Icesave málsins hér í umræðunni hér á landi en ekki síður hve fáránleg umsókn Íslands að ESB í raun. Steingrímur er settur í hjákátlega og erfiða stöðu í viðtalinu í augum okkar Íslendinga sem þekkjum forsögu málsins. Steingrímur er í ríkisstjórn sem hefur barist hatrammlega fyrir samþykki Icesave á forsendum ESB og sömuleiðis er hann í ríkisstjórn sem sér enga aðra leið fyrir framtíð Íslands en að gerast aðili að ESB


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 139
  • Sl. sólarhring: 328
  • Sl. viku: 2496
  • Frá upphafi: 1165413

Annað

  • Innlit í dag: 121
  • Innlit sl. viku: 2147
  • Gestir í dag: 121
  • IP-tölur í dag: 119

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband