Leita í fréttum mbl.is

Makríll er prófsteinn á ESB-aðlögun

Í grunnlögum Evrópusambandsins, Lissabon-sáttmálanum, segir að ákvarðanir um fiskveiðar á hafsvæði aðildarríkja séu alfarið á forræði Evrópusambandsins. Þetta er ástæðan fyrir því að Evrópusambandið talar máli útgerða á Írlandi í makríldeilunni við Íslendinga - en ekki írsk stjórnvöld sem mest lítið um málið að segja.

Í viðræðum Íslands við Evrópusambandið vegna aðildarumsóknar samfylkingarhluta ríkisvaldsins steytir á skeri vegna fiskveiðihagsmuna.  Evrópusambandið vill beygja Ísland til að samþykkja forræði sambandsins um ráðstöfun fiskveiðiauðlindarinnar. Í því felst að Evrópusambandið ákveður makrílkvóta Íslendinga.

Fiskveiðistefna Evrópusambandsins er endurskoðuð á tíu ára fresti. Endurskoðun stendur núna yfir og samkvæmt greiningu danskra og skoskra vísindamanna eru engar líkur á að breytingar verði á fiskveiðistefnunni svo nokkru nemi.

Af þessu má draga þá ályktun að ef og þegar Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra tilkynnir samninga um makríl við Evrópusambandið þá sé það hluti af aðlögunarferli Íslands inn í sambandið.

 

 


mbl.is Þrír kaflar stranda á makrílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 146
  • Sl. sólarhring: 343
  • Sl. viku: 2555
  • Frá upphafi: 1165929

Annað

  • Innlit í dag: 122
  • Innlit sl. viku: 2213
  • Gestir í dag: 118
  • IP-tölur í dag: 118

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband