Leita í fréttum mbl.is

Allt stopp í ESB í næstu viku: Stórverkfall hjá starfsmönnum ESB!

strikeeuÞrjú verkalýðssambönd tugþúsunda starfsmanna Evrópusambandsins hafa boðað til verkfalls í næstu viku eins og meðfylgjandi frétt EUObserver segir frá. Þetta er aðeins fáum dögum fyrir leiðtogafund í Brussel þar sem ræða á um sparnað í rekstri ESB, en áform eru um að skera stjórnsýsluútgjöld niður um 15 milljarða evra, en við það er óttast um uppsagnir og atvinnuleysi meðal starfsmanna ESB.

EUBusiness segir líka frá þessu. Gera má ráð fyrir að ESB-báknið stöðvist við þessi verkföll, um stund að minnsta kosti.

Heildarútgjöld ESB eru þarna sögð vera um „trilljón“ evrur. Það eru einkum Bretar sem vilja draga úr útgjöldum ESB. Útgjöld ESB eru reyndar annars staðar sögð 130-150 milljarðar evra eftir því hvernig reiknað er, eða um 24 þúsund milljarðar króna.

Í fréttinni er minnst á þá alkunnu staðreynd hversu feitir bitar störfin í ESB eru. En þau kosta sem sagt skattborgarana allt of mikið eins og sparnaðaráformin benda til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér má svo bæta við þeirri alkunnu staðreynd (nema ESB blinduðu fólki) að ESB hefur ekki tekist að koma saman efnahagsreikningi sínum s.l. 18 ár. Endurskoðendur þess hafa brjálast og eru reknir í stórum stíl. Um þetta hafa verið skrifaðað nokkrar bækur og mun ég fljótlega benda á eina þeirra, sem er eftir konu sem ráðin var sem endurskoðandi sambandsins. Þegar hún var að komast að stórfeldri spillingu þar um borð var hún umsvifalaust rekin.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 30.1.2013 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 9
  • Sl. sólarhring: 93
  • Sl. viku: 664
  • Frá upphafi: 1133184

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 601
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband