Leita í fréttum mbl.is

Evran er ekki stöðugur gjaldmiðill

gengievruHollande Frakklandsforseti telur það ósvinnu að evran hreyfist eftir markaðsaðstæðum, eins og fram kemur í meðfylgjandi frétt. 

Hann og fleiri vilja að gengi evrunnar sé stöðugt gagnvart gengi annarra gjaldmiðla. Eina leiðin til þess er að aðrir gjaldmiðlar verði lagðir niður. Ætli Hollande hafi spurt Obama að því hvort hann vilji ekki bara kasta dalnum og taka upp evru?

Frétt mbl.is um þetta er hér:

Frakklandsforseti segir of hátt gengi evrunnar vera til þess fallið að skaða efnahagslega hagsmuni Evrópusambandsins og vill að gripið verði til alþjóðlegra aðgerða til þess að koma í veg fyrir að höfð séu óeðlileg áhrif á þróun gengis gjaldmiðla. Þetta kom fram í ræðu sem François Hollande flutti í Evrópuþinginu í Strasbourg samkvæmt Financial Times í dag.

„Evran á ekki að sveiflast eftir duttlungum markaðarins,“ sagði forsetinn ennfremur í ræðu sinni. „Myntbandalag verður að búa yfir gengisstefnu. Sé svo ekki stýrist það af gengi sem endurspeglar ekki raunverulega stöðu efnahagslífsins.“

Hollande lagði þó áherslu á að hann væri ekki að kalla eftir því að Evrópski seðlabankinn kæmi sér upp gengisviðmiði en krafðist þess að komið yrði á brýnum umbótum á fyrirkomulagi gjaldmiðlamála í heiminum. Að öðrum kosti væru allar tilraunir evruríkja til þess að auka samkeppnishæfni sína að engu gerðar af evrunni.

Hollande sagði á blaðamannafundi eftir ræðuna að evran ógnaði meðal annars tilraunum Frakka við að auka samkeppnishæfni sína. Sagði hann að forystumenn evrusvæðisins yrðu að koma sér saman um gengi evrunnar til skemmri tíma litið. „Við verðum að grípa til aðgerða á alþjóðlegum vettvangi til þess að vernda hagsmuni okkar,“ sagði hann.

Fram kemur í fréttinni að franskir ráðherra hafi undanfarið kvartað mjög yfir háu gengi evrunnar og sagt að einstök evruríki væru berskjölduð gagnvart úthugsuðum tilraunum ríkja eins og Japans til þess að hafa óeðlileg áhrif á gengi evrunnar. „Evrópusambandið skilur evruna eftir varnarlausa gagnvart órökréttum sveiflum í eina áttina eða aðra,“ sagði Hollande ennfremur.

Frétt Financial Times


mbl.is Hátt gengi evrunnar ógnar ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það forvitnilega er að Evran er að komast í gjaldeyrishöft, en það mun gerast þegar öll löndin í kringum hana verða búin að setja á gjaldeyrishöft. Það gleymist nefinlega stundum að varnarmúrar hafa oftast tvær hliðar og ef evran er ógn þá má búast við að fleiri lönd í kring muni verja sig fyrir henni. Nú þegar hafa Ísland og Sviss gert það.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.2.2013 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 311
  • Sl. viku: 758
  • Frá upphafi: 1119135

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 651
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband