Leita í fréttum mbl.is

Byggingargallar Efnahags- og myntbandalags Evrópu

Það er innri gerð Efnahags- og myntbandalags Evrópu sem er ein meginástæða skuldavanda jaðarríkjanna í bandalaginu. Sjálf hugmyndafræði bandalagsins byggir auk þess á mjög ótraustum fræðilegum grunni.

Þetta er álit finnska stjórnmálafræðiprófessorsins Heikki Patomäki en það kemur fram í bókinni Evrusvæðishörmungin mikla (The Great Eurozone Disaster). Í bókinni segir höfundur frá því að grunnmeinsemd evrusamstarfsins sé hið mikla misræmi sem sé á viðskiptum innan svæðisins og sýni sig í því að mikill og uppsafnaður viðskiptahalli valdi skuldabasli í Grikklandi, Portúgal, á Spáni, Írlandi og Ítalíu. Á sama  tíma búi lönd eins og Belgía, Austurríki, Finnland, Þýskaland, Holland og Lúxemborg við mikinn og uppsafnaðan viðskiptaafgang og meðfylgjandi eignamyndun. Aðeins viðskiptaafgangur Þýskalands sé á við landsframleiðslu minni evruríkjanna.

Evrusamstarfið gerir Þjóðverja ríkari en Grikki fátækari

Ástæðan fyrir þessu misvægi er meðal annars sú að verðþróun hefur verið mismunandi á evrusvæðinu. Verðhækkanir hafa almennt verið meiri á jaðarsvæðunum en í kjarnaríkjunum. Þannig hefur Þjóðverjum tekist að semja um laun á hógværari nótum en öðrum. Fyrir vikið hefur framleiðslukostnaður í Þýskalandi hækkað minna en víðast annars staðar og samkeppnisstaða útflutningsiðnaðar þeirra batnað sem því nemur.  Þeir flytja því meira út fyrir vikið. Það er aðeins eitt ríki, Frakkland, sem hefur haldið sig við það viðmið að laun hækki ekki um meira en sem nemur verðbólgumarkmiði að viðbættri aukningu í framleiðni vinnuafls. Samt á Frakkland nú í vaxandi vanda.

Þetta misvægi virkar kannski ekki stórt á hverju ári og í fyrstu var lítið um það rætt, en safnast þegar saman kemur. Með árunum hefur þetta orðið að verulegu vandamáli sem ekki aðlagast í gegnum gengisbreytingar á mörkuðum eins og hefði gerst ef löndin væru með sinn eigin gjaldmiðil. Það hefur heldur ekki verið hægt að laga þetta ójafnvægi í gegnum opinber fjármál ESB, því byggðastyrkir þess eru svo litlir í þjóðhagslegu samhengi að þeir skipta þar engu máli. Ef ESB hefði verið ríki með eigin skatta og útgjaldaákvarðanir hefði verið hægt að milda áhrifin á þann hátt.

Fjármálakreppan árin 2007-2008 og síðar jók á þennan vanda, því hin skuldugu jaðarríki stóðu þá frammi fyrir því að vextir hækkuðu samtímis því sem efnahagsumsvif og skatttekjur hins opinbera minnkuðu. Skuldirnar urðu því illa viðráðanlegar hjá nokkrum ríkjanna. Aðgerðir að kröfu ESB, sem oft eru hluti af svokölluðum björgunaraðgerðum sem innihalda miklar aðhaldsaðgerðir, hafa aukið samdráttinn og atvinnuleysið á Grikklandi og víðar með því að draga stórkostlega úr almennri eftirspurn í viðkomandi löndum.  Á það hefur margoft verið bent að skilvirkasta og fljótvirkasta aðferð fyrir evrusvæðið út úr kreppunni væri að ýta undir eftirspurn og verðbólgu í Þýskalandi og öðrum kjarnaríkjum, en Þjóðverjar taka slíkt ekki í mál.

Vafasöm kenning Mundells um myntsvæði

Patomäki minnir á að hugmyndafræði Efnahags- og myntbandalags Evrópu byggi á kenningum bandaríska hagfræðingsins Roberts Mundells um hagkvæm myntsvæði. Patomäki minnir á að kenningar Mundells hafi ekki byggst á miklum rannsóknum heldur verið hugsmíð hans sem byggð var á ákveðnum pólitískum forsendum.  Margir hagfræðingar hafa á undanförnum gagnrýnt kenningu Mudells út frá ýmsum forsendum, m.a. þeirri að ekki sé hægt að nota hana sem mælikvarða á það hvort ríki eigi að ganga í myntsamstarf eða ekki. Þannig hafa fylgjendur ESB- og evrusamstarfs svarað því til að kenning Mundells ein og sér sé ekki algildur mælikvarði á ágæti myntsamstarfs þegar bent hefur verið á að evrusvæðið uppfylli alls ekki skilyrðin fyrir hagkvæmu myntsvæði, s.s. um hreyfanleika vinnuafls, en sem kunnugt er hreyfist atvinnulaust vinnuafl ekki auðveldlega á milli svæða í Evrópu, þvert á það sem eitt af aðalatriðum kenningarinnar. Þessi kenning var samt ein af meginforsendum fyrir upptöku evrunnar og Mundell var sjálfur svo bjartsýnn í upphafi evrusamstarfsins að hann spáði því árið 2000 að árið 2010 hefðu fimmtíu ríki tekið upp evruna, auk þess sem flest ríki í Suður-Ameríku væru komin með Bandaríkjadal og mörg ríki í Asíu með japanskt jen.

Byggingarsteinar evrunnar eru feysknir. Seðlabanki Evrópu reynir að fara í kringum lagaákvæði um bankann með því að kaupa upp evruskuldabréf aðildarríkjanna og lina þannig skuldaþjáningar þeirra um stund. Það má segja að þar brjóti nauðsyn lög. Vandamál evrusvæðisins eru þó síður en svo leyst, eins og hræringarnar í kringum bankakreppuna á Kýpur sýna. Ýmsir telja að lausnir ESB-ríkjanna dugi ekki til lengdar. Patomäki er þeirrar skoðunar. Nánar um það síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vandamál EU landanna Grikklands og Kýpur er hið sama og vandamál Íslands fyrir Davíðshrunið; SPILLINGIN.

Fyrir neðan má finna link í blaðagrein með fyrirsögninni;

„Schwere Vorwürfe gegen Zyperns Staatspräsident.

Die Familie des zypriotischen Staatspräsidenten Nikos Anastadiadis soll, drei Tage bevor die Entscheidung zur Zwangsabgabe fiel, Geld aus dem Land geshafft haben.“

Ættinngjar forsetans eiga að hafa flutt rúmlega 21 milljón Evra frá Kýpur til Englands þremur dögum fyrir lagasetninguna um skattinn.

Ekki ósvipað því sem hér var í gangi allt frá 2006, þegar innmúraðir og innvígðir vissu hvert stefndi.

http://bazonline.ch/ausland/europa/Schwere-Vorwuerfe-gegen-Zyperns-Staatspraesident-/story/10521421

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 1.4.2013 kl. 16:13

2 Smámynd:   Heimssýn

Spilling fylgir oft kreppum en eru yfirleitt ekki ástæða þeirra. Algeng ástæða þess að farið er yfir mörk hins leyfilega þegar kreppa steðjar að er að aðilar nota ýmsar leiðir, líka óleyfilegar, til þess að bjarga sér og sínu fjármagni,samanber lýsinguna hér að ofan. Slík hegðun er afleiðing kreppunnar en ekki orsök.

Heimssýn, 1.4.2013 kl. 19:22

3 identicon

Spilling er afleiðing kreppunnar, ekki orsök, skrifar Heimssýn. Dæmalaus fáfræði! Spilling er einn mesti hnignunarvaldi sem hugsast getur og er búin að lifa góðu lífi í Grikklandi og Kýpur í áratugi. 

Spilling hefur einnig alltaf verið til á klakanum, en náði nýjum hæðum með einkavinavæðingu bankanna og síðan útrássinni sem henni fylgdi.

Skrif Heimssýnar minna mig á grein eftir Hermann Guðmundsson, N1 forstjóra, sem taldi eðlilegt að Baldur Guðlaugsson notaði innherjaupplýsingar til að bjarga "sparnaði fjölskyldunnar".

Svona mórall er lágkúrulegur og merki um veikan karakter.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 1.4.2013 kl. 19:57

4 Smámynd:   Heimssýn

Það þarf kannski að lesa betur textann, en til nánari skýringar er almennt talað um kreppu þegar framleiðsla dregst saman í ákveðinn tíma. Efnahagskerfið gengur í gegnum hæðir og lægðir og við tölum um þessar lægðir sem kreppur. Það er ekki hægt að tala almennt um það að spilling valdi kreppum, þótt spilling geti verið til staðar bæði í góðæri og hallæri. Þegar sagt er hér að ofan að spilling fylgi oft kreppum en sé að jafnaði ekki ástæða þeirra er bara verið að vitna til margs konar skýrslna - og gott ef þetta kemur ekki fram í rannsóknarskýrslu Alþingis - að þegar niðursveiflan hefst þá grípa ýmsir til alls kyns ráða til að bjarga sér og sínum. Með þessu er ekki verið að segja að einhver spilling kunni ekki að hafa verið á Kýpur eða Grikklandi á góðæristímum fyrir núverandi kreppu. En það er ekki hægt að halda því fram að það sé spilling einhverra hópa í fáeinum löndum sem valdi evrukreppunni. Sá áróður er hins vegar ekki óalgengur úr herbúðum þeirra sem enn trúa á að evrusvæðið sé fyrirheitna landið.

Heimssýn, 1.4.2013 kl. 22:39

5 identicon

Flestum evruríkjum hefur gengið prýðilega með evru. Þau sem hafa lent í vandræðum geta sjálfum sér um kennt. Þau munu læra af reynslunni enda vilja þau umfram allt halda áfram með evru.

Til að njóta kosta þess að hafa evru þarf að gæta þess að semja ekki um launahækkanir umfram það sem efnahagslífið þolir og að uppræta spillingu sem mergsýgur almenning í þessum löndum.

Einnig þarf að gæta þess að safna ekki of miklum skuldum svo að skuldir verði ekki óviðráðanlegar þegar samdráttur skellur á.

Allt eru þetta mikilvæg atriði fyrir þjóðir hvort sem þær eru í ESB eða ekki. Í löndum sem hafa eigin gjaldmiðil er hins vegar hægt að stokka upp á nýtt með gengislækkun.

Almenningur tekur þá afleiðingunum með kjaraskerðingu og eignaupptöku meðan sérhagsmunaöflin hagnast. Eiginn gjaldmiðill veldur því spillingu sem evran upprætir.

Lönd Norður- og Vesturevrópu eru yfirleitt mun óspilltari en lönd Suðurevrópu. Upptaka evru er því mikil áskorun fyrir síðarnefndu ríkin.

Ávinningurinn með evru er gífurlegur og því meiri eftir því sem þjóðirnar eru minni, en því aðeins að þær fylgi leikreglunum. Þær eiga ekki annarra kosta völ en að gera það því að þær vilja ekki kasta evrunni.

Evra hentar öllum löndum sem gæta þess að skuldsetja sig ekki um of og fylgja einföldum hagfræðilögmálum. Mismunandi efnahagssveiflur skipta ekki máli því að í uppsveiflu þarf alltaf að vera undir samdrátt búinn.

Lykillinn að velgengni margra evruríkja er einmitt evran. Með henni fæst mikilvægur stöðugleiki. Þó að gengislækkun geti stundum aukið samkeppnishæfnina er það aðeins til skamms tíma.

Mikilvægara er að hafa stöðugleika til langs tíma svo að fyrirtæki geti gert áætlanir sem standast. Gengisbreyting getur lagt rekstur í rúst. Gengisbreytingar valda gjaldþroti fyrirtækja og koma í veg fyrir stofnun annarra.

Þau fimm lönd ESB þar sem atvinnuleysið er minnst eru öll með evru. Þetta eru lönd af öllum stærðum og gerðum; Austurríki, Lúxemborg, Holland, Þýskaland og Malta. Þau hafa öll góða reynslu af evru.

Ef reglum er fylgt tryggir evran góðan ríkisrekstur, jöfnuð og betri lífskjör. Eigin gjaldmiðill er hins vegar leið fyrir skussa til að komast upp með að varpa afleiðingum gjörða sinna á almenning. 

Ég er þó ekki að segja að gengisfellingar krónunnar hafi verið stjórnmálamönnum að kenna. Þær hafa að mestu verið óhjákvæmilegar vegna þess að krónan er ónýt vegna smæðar.

Ásmundur (IP-tala skráð) 2.4.2013 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 384
  • Sl. sólarhring: 402
  • Sl. viku: 1411
  • Frá upphafi: 1119854

Annað

  • Innlit í dag: 313
  • Innlit sl. viku: 1190
  • Gestir í dag: 292
  • IP-tölur í dag: 287

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband