Leita í fréttum mbl.is

Er Slóvenía næst í röðinni?

Verður Slóvenía næsta evruríkið sem biður um fjárhagsaðstoð? Hin stóru alþjóðlegu lánshæfismatsfyrirtæki spáðu því á síðasta ári að þetta litla evruríki og fyrrum kommúnistaríki kæmist vart hjá því að biðja um aðstoð.

Frétt Morgunblaðsins ber með sér að ástandið í landinu hafi ekki batnað, enn sé samdráttur og verði enn talsverður í ár.


mbl.is Spáir meiri samdrætti í Slóveníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er það ekki frábært að vera í sambandi ríkja þar sem hægt er að fá aðstoð þegar illa árar?

Aðstoðin felst í lánum á lágum vöxtum og auk þess sem samið er um skuldalækkun ef þörf krefur.

Þannig er komist hjá því að lenda i meðferð hjá Parísarklúbbnum sem er martröð allra sjálfstæðra ríkja sem bera ekki sitt barr eftir það.

Með ónýta krónu er annað hrun óhjákvæmilegt á Íslandi innan tíðar. Spurningin er bara hvenær. 

Með 50% gengisfellingu krónunnar  tvöfaldast erlendar skuldir ríkisins sem þó eru með hæsta móti í heiminum í dag.

Eftir því sem gengi krónunnar lækkar meira versna einnig þau vaxtakjör sem bjóðast. Staðan verður vonlaus.

Þá verður Parísarklúbburinn okkar eina athvarf.

Ásmundur (IP-tala skráð) 2.4.2013 kl. 16:56

2 Smámynd:   Heimssýn

Það er AGS sem er aðal hjálparhellan - ekki ESB. AGS hefur alls staðar komið við sögu og það er ekkert gert án þess að kalla AGS til, hvorki í Grikklandi, Írlandi, Portúgal, Spáni ná á Kýpur. ESB er ekki fært um það sjálft að koma aðildarlöndum til hjálpar nema AGS nyti við.

ESB reyndi hins vegar að koma í veg fyrir það að Ísland næði samningum við AGS á sínum tíma. Forystumenn ESB heimtuðu að fyrst yrði gengið frá samningum um Icesave. Á svipaðan hátt virkar ESB og ECB gagnvart litlu evruríkjunum.

Heimssýn, 2.4.2013 kl. 18:14

3 identicon

Sem betur fer þá missa ESB-ríkin ekki af aðstoð AGS.

En þau fá til viðbótar aðstoð úr eigin björgunarsjóði eftir þörfum. Sú aðstoð getur skipt sköpum eins og Grikkland er gott dæmi um.

Mikilvægust er þó aðstoðin við að semja um skuldalækkun ef lánafyrirgreiðsla er ekki talin nægja. Þannig komast ESB-löndin hjá þeim skelfilegu örlögum sem Parísarklúbburinn er öllum fullvalda ríkjum.

Grikkland væri örugglega gjaldþrota ef ESB-aðildar og evru hefði ekki notið við. Eiginn gjaldmiðill hefði hrunið þegar ljóst varð að getan til að standa í skilum með lán var hverfandi.

50% hrun gjaldmiðilsins hefði þýtt tvöföldun á erlendum skuldum sem voru of miklar fyrir auk þess sem vaxtakjör hefðu hækkað upp úr öllu valdi.

Örlög Grikklands hefðu þá ráðist hjá Parísarklúbbnum, helstu martröð fullvalda ríkja.

Með ESB-aðild og upptöku evru í fyllingu tímans er miklu minni hætta á að lenda í alvarlegum efnahagslegum erfiðleikum einkum vegna þess stöðugleika sem evran veitir.

En ef slíkt gerist er miklu meiri aðstoð að fá innan ESB en utan.

Ásmundur (IP-tala skráð) 2.4.2013 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 391
  • Frá upphafi: 1121182

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 354
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband