Leita í fréttum mbl.is

Varaborgarfulltrúi lýsir vaxandi félagslegri fátækt í ESB

thorleifurÞað ríkir félagslegt neyðarástand víða um Evrópu, fátækum hefur fjölgað gífurlega og ójöfnuður hefur verið að aukast, sem er afleiðing af aðgerðum Evrópusambandsins.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein Þorleifs Gunnlaugssonar varaborgarfulltrúa í Morgunblaðinu í dag. Þorleifur greinir þar meðal annars frá ferð sinni til Brussel og viðræðum við embættismenn og forystumenn á ýmsum sviðum.

Þorleifur segir í grein sinni: 

Að öðrum ólöstuðum hafði Sarah nokkur King mest áhrif á mig í þessari ferð. Sarah er ráðgjafi á sviði vinnumarkaðsmála hjá Samtökum evrópskra verkalýðsfélaga, ung kona, full af eldmóði og óþrjótandi viskubrunnur um stöðuna í Evrópusambandinu. Sarah var ómyrk í máli um félagslega stöðu almennings og gríðarlegan niðurskurð sem verst kemur niður á þeim sem síst skyldi.

Tólf prósent fólks á evrusvæðinu eru án atvinnu og hafa aldrei verið fleiri. Atvinnuleysi meðal ungs fólks heldur áfram að aukast og í febrúar voru 23,5 prósent fólks undir 25 ára án vinnu. Auk þessa sagði Sarah að um væri að ræða mikið dulið atvinnuleysi sem kæmi til dæmis fram í því að fólki sem væri að koma úr námi væri víða meinað að fara á atvinnuleysiskrá og hún bætti við að það væru meiri líkur á því að atvinnuleysi muni halda áfram að aukast frekar en að minnka.

Félagslegt neyðarástand innan ESB

Sarah tók svo djúpt í árinni að segja að það væri varla hægt að tala lengur um kreppu innan ESB. Það væri nær sanni að segja að þar ríkti félagslegt neyðarástand og hún bætti því við að um alla Evrópu hefði orðið sprenging í fjölgun fátækra og ójöfnuður væri að aukast. Sarah telur að aðgerðir Evrópusambandsins muni leiða til versnandi ástands í Evrópu hvað þessi mál varðar.

Vandinn er mestur í suðurhluta Evrópu og skráð atvinnuleysi meðal ungs fólks nálgast 60% í Grikklandi, er yfir 55% á Spáni og sjálf framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sagt tölurnar vera harmleik fyrir Evrópu. Haft var eftir Martin Schulz, forseta Evrópuþingsins, nýlega: „Evrópa hefur sett mörg hundruð milljarða evra í að bjarga bankakerfi álfunnar, en gæti tapað heilli kynslóð ungs fólks í kjölfarið.“ Schulz bætti við að úr því að hægt hefði verið að setja 700 milljarða í bankakerfið, þá ætti að vera hægt að setja jafn mikla fjármuni í að koma kynslóð ungs fólks, sem hefur jafnvel aldrei fengið tækifæri til að vinna, til aðstoðar.

En vandans gætir líka norðar og Söruh var tíðrætt um niðurskurð á velferðarkerfinu á Bretlandseyjum en samkvæmt nýlegri skýrslu hefur sá niðurskurður sem fylgir evrópsku fjármálakreppunni komið verst niður á fötluðum einstaklingum sem eru háðir ríkisstyrkjum og félagslegri aðstoð frá sveitarfélögunum.

ASÍ

Alþýðusamband Íslands hefur leynt og ljóst unnið að inngöngu Íslands í Evrópusambandið og forystan talað ákaft í þá veru. Stefna ASÍ í alþjóðamálum snýst nær eingöngu um Evrópusamvinnu og þar segir: „Það er skoðun ASÍ að yfirlýsing um að sótt verði um aðild Íslands að ESB og upptöku evru sé eina færa leiðin fyrir þjóðina. Í stefnunni segir ennfremur: ...að mati ASÍ snýst Evrópusamstarfið um nær allt okkar þjóðlíf. Þar má nefna málaflokka eins og félags- og vinnumarkaðsmál, neytendamál, menntamál, rannsóknir og þróun auk umhverfismála ... ASÍ á aðild að Samtökum evrópskra verkalýðsfélaga ef marka má þá góðu konu, Söruh King. Það eru því hæg heimatök fyrir forystumenn Alþýðusambandsins að leggja þá spurningu fyrir þennan ágæta ráðgjafa á sviði vinnumarkaðsmála innan ESB, hvort hún telji það eftirsóknarvert fyrir íslenskt lágtekjufólk, að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu, miðað við þær aðstæður sem þar ríkja í dag.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sannleikurinn er að brjótast fram undan sauðagærum Samfylkingarinnar, sennilega farin að frussast óþægilega mikið fram, rétt eins og sannleikurinn um "Aðildarviðræðurnar" svokölluðu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.4.2013 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 20
  • Sl. sólarhring: 274
  • Sl. viku: 1047
  • Frá upphafi: 1119490

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 894
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband