Leita í fréttum mbl.is

Neyðin í Evrópu er ekki í rénun

Nadja Lundholm Olsen, sérfræðingur í félags- og vinnumarkaðsmálum Evrópu segir verulega hættu á að æ fleiri Evrópubúar lendi í langtímaatvinnuleysi og muni þurfa á neyðarhjálp að halda. Nú þegar deilir Rauði krossinn út meiri neyðarhjálp í Evrópu en í Afríku samkvæmt erlendum fréttum.

Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga. 

  • Um 26 milljónir Evrópubúa á vinnumarkaði eru án atvinnu. 
  • Um 23 prósent ungs fólks á vinnumarkaði eru án atvinnu.
  • Langtímaatvinnuleysi er nokkru meira í evrulöndunum en öðrum ESB-löndum.
  • Tiltölulega fáir atvinnulausir flytjast á milli landa í atvinnuleit.
 
Um þessi mál var fjallað á nýlegri ráðstefnu í Árósum.
 
Sjá umfjöllun um þetta hér  og hér.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú þegar deilir Íslenski Rauði krossinn út tvöfalt meiri neyðarhjálp á Íslandi en erlendis. Auk þess sem mikið er að gera hjá öðrum innlendum hjálparsamtökum.

Jakop16 (IP-tala skráð) 14.3.2014 kl. 12:58

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Í Evrópu og eins í Bandaríkjunum fækkar þeim sem tilheyra hinni svokallaðri millistétt, en fátækum fjölgar gríðarlega.  Fátækt er að verða stórkostlegt vandamál beggja vegna atlantsála.

Opinberar tölur um atvinnuleysi í BNA gefa til kynna að um rúm 7% atvinnuleysi sé að ræða þar vestra, en þeir veigra sér við að fjalla um hversu stór eða öllu heldur lítill hluti af þjóðinni telst vil vinnuafls, þ.e. þeir sem hafa vinnu eða eru í atvinnuleit.  Þeim sem eru á vinnumarkaði hefur fækkað um tugi prósenta s.l. tíu ár eða svo. 

Þá eru ótaldir þeir fjölmörgu sem hafa þurft að minnka við sig vinnu, úr 100% niður í t.d. 70%, en af þeim völdum hefur fjöldi millistéttafólks lent í fátæktargildru.

Því miður er ekki útlit fyrir því að úr rætist í fyrirsjáanlegri framtíð.  Efnahagskerfi þjóðanna er úr sér gengið og komið að því að kollvarpast, stjórnvöld beggja vegna Atlantshafs og þó víðar væri leitað, gera í því að grafa undan efnahag heimilanna og þar með þjóðríkjanna.  Leynt og ljóst er verið að útrýma millistéttinni.  Þá standa aðeins eftir hinir ríku og hinir fátæku.

Við munum innan skamms tíma sjá kreppu af þeirri stærðargráðu sem ekki hefur þekkst, hvorki fyrr né síðar.  Munu þeir erfiðleikar sem þá snúa að fólki kalla fram bæði það besta og eins hið versta sem til er í manninum. 

Á slíkum tímum skiptir máli fyrir íslensku þjóðina að vera sjálfstæð og geta brauðfætt sig og þurfa ekki að vera upp á aðra komin.

Ég bið þess að góður Guð verði okkur náðugur á þeim tímum, ekki mun veita af.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.3.2014 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 388
  • Frá upphafi: 1121179

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 351
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband