Leita í fréttum mbl.is

Framtíð Íslands utan ESB

birgirornsteingrims
Birgir Örn Steingrímsson skrifaði meðfylgjandi grein í Morgunblaðið í vikunni. Þar rekur hann ýmsar slæmar afleiðingar sem aðlögun Íslands að Evrópusambandinu hefur fyrir almenning hér á landi. 

 

Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands staðfesti að Íslendingar fá engar varanlegar undanþágur varðandi sjávarútveg eða landbúnað. Þetta hefur að vísu alltaf komið skýrt fram þegar rætt hefur verið við talsmenn ESB og þeir hafa ekki verið að stunda blekkingarleikinn sem stuðningsmenn sambandsins hér á landi hafa verið að gera. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu hrikaleg áhrif það hefði á lífskjör komandi kynslóða á Íslandi ef forráð yfir helstu auðlindum landsins yrðu afhent einhverjum embættismönnum í Brussel. Um þær afleiðingar eru flestir sammála. Aðlögun Íslands að Evrópusambandinu hefur þó fleiri slæmar afleiðingar í för með sér eins og almenningi hefur orðið æ ljósara undanfarið. Í ljósi þessa er eina rétta ákvörðunin, sem núverandi ríkisstjórn getur tekið varðandi umsókn Íslands, að draga hana til baka. Við það myndu margir möguleikar opnast. Sá möguleiki sem liggur ljósast fyrir er aukin viðskipti og samstarf við Bandaríkin, sem hafa dregist mikið saman vegna aðlögunarferlis Íslands að Evrópusambandinu. Þetta aðlögunarferli er hægt að stöðva og vinda ofan af, enda eru margar reglugerðir sem samþykktar eru í gegnum EES-samninginn afturkræfar ef vilji er fyrir hendi. Það er ljóst að það væri stjórnarskrárbrot ef Brussel hefði meiri löggjafarvald á Íslandi en Alþingi Íslendinga. Í lengri tíma hafa íslenskir embættismenn beitt Alþingi miklum þrýstingi til að samþykkja reglugerðir frá Brussel sem hafa í sumum tilfellum verið hreint og beint skaðlegar íslenskum hagsmunum. Þar nægir að geta tæknilegra viðskiptahindrana á innflutningi bíla, barnastóla og annarra vara frá Bandaríkjunum og þjóðum utan Evrópusambandsins. Dæmi um skaðlegar reglugerðir eru þó margfalt fleiri og í mörgum tilfellum mikil höft á athafnafrelsi einstaklingsins og meira í ætt við hugmyndir frá tímum kommúnismans en reglugerðir settar á 21. öldinni. Þessar reglugerðir eru þess valdandi að samkeppnishæfni Íslands versnar og lífskjör dragast saman og löngu orðið tímabært að endurskoða þær.

Ef ríkisstjórnin afturkallaði aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu yrðu það skýr skilaboð um að Ísland hefði áhuga á meiri samstarfi við nágrannaþjóðir okkar í vestri. Sú stefnubreyting yrði sem eitur í beinum margra ESB-sinna, sem sjá enga framtíð nema í faðmi ESB, en aukin samskipti við Bandaríkin eru örugglega í samræmi við þjóðarvilja. Það væri alls ekki óraunhæft að gera ráð fyrir að Bandaríkin vildu gera fríverslunarsamning við Ísland ef sú stefna yrði tekin að hætta við frekari innlimun í Evrópusambandið. Þar yrði hægt að taka meira tillit til hagsmuna Íslands en væntanlegur fríverslunarsamningur á milli ESB og Bandaríkjanna, sem er að vísu búið að leggja á ís í bili vegna andstöðu Frakka. Fríverslunarsamningur við Bandaríkin yrði mikil lyftistöng fyrir íslenskt atvinnulíf og aukinn innflutningur frá Bandaríkjunum, þegar tæknilegum viðskiptahindrunum yrði rutt úr vegi, myndi auka kaupmátt almennings, enda eru frjáls viðskipti og aukin samkeppni á jafnréttisgrunni ávallt til góðs.

Evrópusambandið er í grunninn tollabandalag, sem myndar varnarmúra utan um hagsmuni stórfyrirtækja í Evrópu og í eðli sínu berst það gegn frjálsum viðskiptum milli þjóða. Það má leiða rök að því að lífskjör almennings í sumum ríkjum Evrópu hafa versnað m.a. vegna aukinna hafta og minna viðskiptafrelsis Evrópuþjóða við þjóðir utan Evrópu. Það eru alls ekki hagsmunir Íslands að festast inni í tollabandalagi sem hefur allt aðra hagsmuni en íslenskt atvinnulíf. Viðskiptafrelsi við þjóðir heims á verulega undir högg að sækja á Íslandi vegna margvíslegra reglugerða sem teknar eru inn í gegnum EES-samninginn. Reglugerðir sem engin ástæða hefur verið til að taka upp í mörgum tilfellum. Það er erfitt að ímynda sér að flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur ávallt barist fyrir frelsi í viðskiptum og minni afskiptum ríkisvaldsins af lífi einstaklingsins, geti stutt frekari aðlögun að ESB, þegar afleiðingarnar eru sífellt að verða ljósari.

Afturköllun umsóknar Íslands að Evrópusambandinu myndi draga úr áhrifum Evrópusambandsins á Íslandi, sem eru orðin allt of mikil. Ekki er gott fyrir land eins og Ísland, sem getur þakkað velmegun sína að miklu leyti viðskiptum við aðrar þjóðir, að leggja öll eggin í sömu körfuna. Það er orðið löngu tímabært að hlúa að samskiptum Íslands við Bandaríkin. Samskiptum sem hafa verið látið sitja á hakanum vegna þess hversu áfjáðir margir íslenskir embættismenn eru í að ganga í ESB. Nú er mál að linni. Stöðva verður frekari aðlögun að ESB, enda hefur mikill meirihluti þjóðarinnar engan áhuga á að ganga í Evrópusambandið. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvers vegna ætti Ísland ekki að ganga úr EES?

Var það ekki frjálst flæði bankaræningja, frá eftirlitslausu regluverki EES, sem komu Ísland í núverandi stöðu?

Það góða í dag er kannski, að Ísland verður áfram staðsett á jörðinni. Það verða líka öll önnur lönd jarðar.

Samskiptin í heiminum verða að snúast um velferð almennings, í sátt og samvinnu við viðurkennda nútíma-mannúð og siðferði, en ekki í samvinnu við dómsstólavarða frjálsa bankaræningja, þvert á landamæri.

Fornaldarstríð, hernaður og siðlaus græðgi heimsvelda, er ekki á óskalista neinna siðferðisþroskaðra einstaklinga jarðarinnar. Enda skapar slíkt ástand með tíð og tíma, einungis tortímingu alls lífs á jörðinni.

Hver vill slíkt tortímingar-siðleysi?

Og hver sjúkdómsgreinir siðblinda og helsjúka heimveldis-bankaræningja-valdagræðgi-sjúklinga?

Heimsvaldafíknar-sjúklingarnir, sjúkdómsgreina sjálfa sig aldrei!

Hver gerir það þá? Dómsstólar?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.3.2014 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 387
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 350
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband