Leita í fréttum mbl.is

Jóhanna Sigurðardóttir braut gegn skilyrðum ESB

JohannaSigurdardottir

Morgunblaðið vekur athygli á því í dag að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi brotið gegn skilyrðum Evrópusambandsins um sjálfstæði seðlabanka um það leyti sem hún sendi inn umsókn Íslands að sambandinu. Þetta kemur fram í bréfi seðlabankastjóra sem blaðið birtir kafla úr. Þetta gerði hún að sögn með frumvarpinu um kjararáð þar sem lagt var til að laun embættismanna yrðu lækkuð.

Í bréfinu segir:

„Það er grundvallaratriði varðandi sjálfstæði seðlabanka að ekki sé hægt að lækka nafnlaun seðlabankastjóra á ráðningartíma, nema þá kannski með samþykki hans. Ég hef ekki skoðað það í smáatriðum, en það er hugsanlegt að verði umrætt lagafrumvarp óbreytt að lögum myndi það teljast stangast á við skilyrði Evrópusambandsins um sjálfstæði seðlabanka sem er forsenda þess að gerast aðili að evrusvæðinu, en ákveðið fjárhagslegt sjálfstæði er í því efni talið vera mikilvægt.“ (Leturbr. Heimssýn).

Jóhanna Sigurðardóttir var lengi vel fremur efins um aðild að Evrópusambandinu. Þessi gjörningur hennar sýnir líklega að hún hafi látið ýmis skilyrði ESB sér í léttu rúmi liggja. En eins og ýmsir fleiri innan Samfylkingar sem voru fremur efins um ESB-bröltið þurfti hún að fylgja flokkslínunni í þeim efnum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hún hefur e.t.v. hugsað sem svo að það væri ekki ástæða til að fara eftir öllum inntökuskilyrðum ESB á fyrsta degi umsóknar þegar mörg ár eru að mögulegri inngöngu. Sennilega hefur hún fattað það að umsókn er ekki það sama og innganga. Bara að fleiri gerðu þar greinarmun á og hræddust ekki og ræddu umsókn eins og um inngöngu væri að ræða.

Ufsi (IP-tala skráð) 18.3.2014 kl. 22:02

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvað hét allsráðandi, og líklega ofur vel launaði aðstoðarmaðurinn hennar Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra? Var það ekki Hrannar B. Arnarsson, eða eitthvað svoleiðis?

Hvert var hlutverk þess Hrannars, og hver ráðlagði þann aðstoðarmann fyrir Jóhönnu, og hvers vegna var hans ferilsskrá viðurkennd sem flekkfrí hæfni-ferilskrá, fyrir starf aðstoðarmanns forsætisráðherra, strax eftir bankarán og ESB-kosningarnar 2009? Gleymum ekki að Jóhanna Sigurðardóttir ætlaði að hætta í pólitík, þegar einhverjum baktjalda-öflum datt í hug að hvetja hana til að taka við starfi forsætisráðherra 2009!

Hvað er þessi fyrrum valdamikli aðstoðarmaður forsætisráðherra, Hrannar, að starfa við í dag, og fyrir hverja?

Forvitni er nauðsynleg, ef maður vill vita alla söguna, en ekki bara einhvern samhengislausan fjölmiðla-bútasaum frá kúgunar-heimsveldinu USA/ESB í Brussel.

Jóhanna leyndi því aldrei að hún vildi Ísland í ESB, og trúði því að Ísland hefði ESB-aðild sem einustu mögulegu leið út úr íslenskri stjórnsýslu-spillingu, með meðfylgjandi nýafstöðnu bankaráni.

Rétt skal vera rétt. Það er farsælast fyrir alla.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 18.3.2014 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 305
  • Sl. viku: 1036
  • Frá upphafi: 1119479

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 884
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband