Leita í fréttum mbl.is

Færeyingar gáfu eftir vegna viðskiptaþvingana ESB

Staða Færeyinga í makrílmálin var mjög þröng vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins. Þeir gátu ekki selt vörur til ESB og hvorki veitt í lögsögu ESB né Noregs.

Þetta kemur fram í meðfylgjandi frétt mbl.is. Þar segir: 

 

Þótt þungt hafi verið yfir þessum samskiptum lítum við svo á að aðdragandi þriggja ríkja makrílsamkomulagsins hafi verið einstakt tilfelli og muni ekki gerast aftur,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um fund sinn með Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja í morgun.

Ráðherrarnir funduðu í Þórshöfn síðdegis í gær og í morgun og var megin fundarefnið árlegur fiskveiðisamningur Íslands og Færeyja. Á fundinum var þátttaka Færeyinga í aðdraganda þríhliða samkomulags ESB, Noregs og Færeyja um skiptingu makrílaflans rædd. Ísland var ekki aðili að viðræðum sem leiddu til þríhliða samkomulags og hefur það valdið spennu í samskiptum milli Íslands og Færeyja.

„Það var auðvitað nokkuð þungt yfir fundinum þegar við fórum yfir síðustu lotu makrílsamninganna. Að menn væru að gera þetta bak við luktar dyr og forðast að upplýsa okkur. Ég fór yfir það og lagði áherslu á ónánægju okkar með þá framkomu.

Við höfðum skilning á svörum þeirra. Sjávarútvegur er mikilvægur á Íslandi en hann er auðvitað enn þá mikilvægari hér í Færeyjum. Staða Færeyinga var mjög þröng vegna viðskiptaþvinganna Evrópusambandsins og tvíhliða samninga við ESB annars vegar og Noreg hins vegar sem ekki höfðu verið endurnýjaðir. Þær gerðu það að verkum að þeir gátu hvorki selt vörur til ESB né veitt eins og áður í lögsögum ESB og Noregs,“ segir Sigurður Ingi og vísar til viðskiptaþvinganna ESB á hendur Færeyingum vegna veiða á síld og makríl.

Áttu enga aðra útgönguleið

„Færeyingarnir upplifðu sig upp við vegg og að þeir hafi ekki átt neina útgönguleið aðra en að gera það sem í þeirra mögulega valdi stóð, að komast út úr þessari klemmu sem þvinganirnar valda. Við höfum vissan skilning á þeirri stöðu en hefðum hins vegar talið fullkomulega eðlilegt að við værum upplýst um það ferli sem þá fór af stað. Við komum þeim sjónarmiðum okkar mjög skýrt á framfæri. 


mbl.is ESB stillti Færeyjum upp við vegg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það eitt, að ESB-elítu-toppstjórnun stilli Færeyjum (friðsömustu og siðmenntuðustu þjóðinni), upp við vegg, lýsir vel hvernig lýðræði og kjararéttindi minnimáttar og láglaunaðs almennings/þjóða innan EES/ESB eru hiklaust hundsuð. Hundsuð af yfirvaldi EES/ESB-jafnréttisfriðarklúbbnum í toppnum á ESB-fjármálapíramídanum.

Afhjúpandi svikabrask og spilling í stjórnsýslu EES/ESB er augljós og vandræðaleg.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.4.2014 kl. 16:38

2 identicon

Það að ESB stilli Færeyjum upp við vegg sýnir vel að ESB ver hagsmuni meðlima sinna.

Það eitt að ESB andstæðingar skuli hneykslast á baráttu ESB fyrir hagsmunum sinna meðlima á kostnað þeirra sem standa utan EES/ESB lýsir best þeirra örvinglun og skorti á rökhugsun.

Hvort sem menn vilja í ESB eða ekki, hvort sem menn eru sáttir við vinnubrögð ESB eða ekki þá hlýtur öllum sem einhverja hugsun hafa að sjá að hlutverk ESB er fyrst og fremst að berjast fyrir og verja hagsmuni meðlima sinna frekar en þeirra sem standa utan við sambandið.

Ufsi (IP-tala skráð) 1.4.2014 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 834
  • Frá upphafi: 1117726

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 736
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband