Leita í fréttum mbl.is

70% Norðmanna hafna ESB og aukin umræða um EES-samninginn

norski_faninnÞessi frétt á mbl.is sýnir hve gífurlega mikil andstaða er gegn inngöngu Noregs í ESB. Jafnframt sýnir hún að umræðan um kosti og galla EES-samningsins er vaxandi í Noregi. Þannig hafa þrjú stétt­ar­fé­lög þegar tekið upp þá stefnu að tengsl Nor­egs við innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins verði ekki byggð á EES-samn­ingn­um. Hér á landi er andstaðan við inngöngu í ESB álíka mikil. Fólk er líka smátt og smátt að gera sér grein fyrir "ómöguleika" þess að halda áfram viðræum á grunni umsóknar með margháttaða galla. Þá eru flestir nú sammála um að hið gallaða regluverk fyrir fjármálafyrirtæki á EES-svæðinu hafi ekki dregið úr skaðanum sem bankabólunni fylgdi fyrir 2008 - síður en svo. 

Fréttin á mbl.is er hér: 

Sjö af hverj­um tiu Norðmönn­um vilja ekki ganga í Evr­ópu­sam­bandið sam­kvæmt niður­stöðum nýrr­ar skoðana­könn­un­ar. Um 20% vilja hins veg­ar ganga í sam­bandið en aðrir eru óákveðnir. Könn­un­in var gerð af fyr­ir­tæk­inu Sentio fyr­ir norsku dag­blöðin Nati­on­en og Klassekam­pen.

Fram kem­ur í frétt Nati­on­en að skoðanakann­an­ir hafi sýnt stöðugan meiri­hluta gegn inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið und­an­far­inn ára­tug. Fyr­ir vikið leggi sam­tök and­stæðinga inn­göngu í sam­bandið, Nei til EU, meiri áherslu í dag á and­stöðu við aðild Norðmanna að samn­ingn­um um Evr­ópska efna­hags­svæðið (EES) og vinni að því að fá stétt­ar­fé­lög til þess að taka af­stöðu gegn hon­um. Þrjú stétt­ar­fé­lög hafi þegar tekið upp þá stefnu að tengsl Nor­egs við innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins verði ekki byggð á EES-samn­ingn­um.

Greint er frá því að Jon­as Gahr Støre, formaður norska Verka­manna­flokks­ins, hafi ritað langa grein í Klassekam­pen ný­verið þar sem hann hafi varað við því að segja EES-samn­ingn­um upp. Haft er eft­ir Kat­hrine Kleve­land, for­manni Nei til EU, að grein­ina hefði hann ekki skrifað nema hann hafi talið sig til­neydd­an. Hins veg­ar kem­ur fram í frétt­inni að meiri­hluti Norðmanna vilji sam­kvæmt skoðana­könn­un­um halda í EES-samn­ing­inn.


mbl.is 70% Norðmanna vilja ekki í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Andstaðan hér hefur verið mjög svipuð þessu frá 2009. Menn hafa komið sér framhjá dómi þjóðarinnar fram að þessu með að halda forsetanum utan við efnið og telja folki trú um að aðeins sé um "könnunarviðræður" að ræða og að það sé pakki að kíkja í með hugsanlegum undanþágum í boði.

Þær undanþágur, sem voru gefnar áður en umsóknarreglur voru hertar 2005 voru tímabundnar hliðranir eins og tollfrelsi áfengis á Álandseyjum og skorður á stærð skipa sem máttu fiska innan 4ra mílna við Möltu. Slíkt er ekki í boði lengur eftir breytingar, enda skipta þessar tímabundnu undanþágur engu í stóra samhenginu.

Pakkinn er búinn að vera opinn fyrir allra augum frá upphafi og það er ekkert í honum. Allt eða ekkert er díllinn. Þar með er t.d. Leyfð sala á sjávarútvegsfyrirtækjum úr landi sem leiðir til að arðurinn af greininni fer úr landi, auk þess sem 200 mílurnar okkar verða aftur opnar Fyrir bretum, þjóðverjum, spánverjum og Portúgölum m.a. Striðin öll til einskis unnin.

Þetta vita flestir og þessvegna má ekki spyrja þjóðina fyrr en aðlögun er lokið og þá er því þannig fyrir komið að þjoðaratkvæðin verða aðeins "leiðbeinandi".

Ef þessi valdníðsla er ekki tilefni til að rífa upp gangstéttarhellur á Austurvelli, þá veit ég ekki hvað það er. 

Jón Steinar Ragnarsson, 28.3.2015 kl. 13:06

2 Smámynd: Friðrik Friðriksson

Jón en ertu með linkinn á pakkann sem hefur verið opinn fyrir allra augum?

Friðrik Friðriksson, 28.3.2015 kl. 16:25

3 Smámynd: Elle_

Allt eða ekkert er díllinn.  Lastu ekki það sem hann skrifaði og var skrifað líkl. nokkur þúsund sinnum?  Kannski með öðrum orðum. 

Elle_, 28.3.2015 kl. 21:28

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það er að vísu ekki hægt að bera saman aðild Íslands og Noregs að ESB.

=Noregur er með það stórt hagkerfi/mikinn íbúafjölda  á bak við sig; þannig að þeir þurfa ekki á öðrum að halda frekar en þeir vilja.

Það er annað með litla Ísland sem er með minnsta hagkerfi í heimi; bara 360.000 hræður á bak við sig.

=Hálfgert Matadors-hagkerfi.

Jón Þórhallsson, 29.3.2015 kl. 08:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 83
  • Sl. sólarhring: 91
  • Sl. viku: 908
  • Frá upphafi: 1117800

Annað

  • Innlit í dag: 78
  • Innlit sl. viku: 805
  • Gestir í dag: 77
  • IP-tölur í dag: 77

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband