Leita í fréttum mbl.is

Evran lifir ekki af við núverandi aðstæður

eurocoffinFramkvæmdastjórar stærsta fjárfestingasjóðs í heimi segja að evrusvæðið muni ekki lifa af við núverandi fyrirkomulag. Eina leiðin fyrir framtíð evrunnar er sú að þau lönd sem nota evruna verði að einu ríki með sameiginlegri stjórn á sköttum og fjármálum ríkisins.

Þetta segja Andrew Bosomworth og Mike Amey sem eru framkvæmdastjórar The Pacific Investment Management Company (PIMCO) í samtali við breska blaðið The Telegraph. Þeir segja að hægagangurinn í efnahagslífinu á evrusvæðinu með litlum eða engum hagvexti að undanförnu og miklu atvinnuleysi, sem hefur verið nálægt 11% að undanförnu að meðaltali og nálægt 23% hjá ungu fólki, hafi fætt af sér öflugar stjórnmálahreyfingar á ystu vængjum stjórnmálanna til hægri og vinstri, svo sem Podemos á Spáni, Syriza í Grikklandi og Front National í Frakklandi.

Framkvæmdastjórarnir segja að sagan sýni að fyrirkomulag á borð við evruna geti ekki staðist til lengdar og vísa meðal annars til gamla norræna myntbandalagsins (1873-1914) í þeim efnum. Miðstýrð peningastefna, eins og hjá Seðlabanka evrunnar, geti ekki lifað af án þess að henni fylgi miðstýrð ríkisfjármálastjórn.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Sennilega væri besta lendingin í þessu máli að frysta ESB-umsóknina fram að næstu forseta-kosningum á Íslandi og láta þá forsetaframbjóðendur tjá sig um málið í framhaldi af sínu framboði.

Jón Þórhallsson, 29.3.2015 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 59
  • Sl. sólarhring: 206
  • Sl. viku: 638
  • Frá upphafi: 1116831

Annað

  • Innlit í dag: 57
  • Innlit sl. viku: 558
  • Gestir í dag: 56
  • IP-tölur í dag: 55

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband