Leita í fréttum mbl.is

Kommissar Oettinger óttast ađ ESB hrynji vegna popúlisma

OettingerFulltrúi Ţjóđverja í framkvćmdastjórn ESB, Günther Hermann Oettinger, óttast ađ ESB hrynji vegna ţess sem hann kallar aukinn „populisma“ í álfunni og vegna „populiskra“ ríkisstjórna. Oettinger útskýrir ekki frekar hvađ hann á viđ eđa hvađa ríkisstjórnir hann hefur í huga.

Ţegar flett er upp orđinu „populism“ í orđabók má finna orđiđ „almúgastjórnmál“. Ţađ á kannski sérstaklega vel viđ í ţessu samhengi ţar sem ESB er stýrt af „elítustjórnmálamönnum“, sem annađ hvort hafa gengiđ í sérstaka skóla sem lokađir eru öllum almenningi, eđa almúganum, eins og á viđ í Frakklandi, eđa ađ forystumenn eru aldir upp af hinni pólitísku elítu sem rćđur ríkjum í mörgum Evrópulöndum.

ESB virđist ţví í mörgum tilvikum fremur vera fyrir elítuna á ýmsum sviđum mannlífs í álfunni en síđur fyrir almúgann - eins og reynslan sýnir m.a. ţegar kemur ađ atvinnumálum og ýmsum félagsmálum. Ţannig hefur evran veriđ ágćt fyrir sum fyrirtćki en aukiđ gífurlega á efnahagsvanda almennings međ auknu atvinnuleysis, skuldafjötrum og fleiru ţess háttar. 

Reyndar eru nafngiftir, eđa uppnefni, eins og ađ ofan greinir ekki óalgeng ađferđ af hálfu forystumanna ESB. Ef einhver er ósammála ţeim hengja ţeir á hann einhver nöfn. Ţau skipta sjálfsagt orđiđ tugum. Einhvern tímann var talađ um einangrunarsinna, ţá ţjóđernissinna og nú er reynt ađ klína orđinu popúlisti á ţá sem ekki kyngja öllu ótuggđu sem frá ESB kemur.

Ţetta síđasta uppnefni endurspeglar hins vegar líklega ágćtlega ţankaganginn hjá ESB-forystunni: Ţađ má ekki vera vilji almúgans, ţ.e. fólksins í viđkomandi löndum, sem rćđur ferđinni, heldur verđur ţađ ađ vera elítan sem samankomin er í Brussel sem á ađ deila og drottna yfir álfunni.

Ţađ er heldur ekkert fjarri lagi ađ álykta ađ ef almúginn í löndunum sćttir sig ekki viđ ESB eins og ţađ er ţá sé sambandiđ í bráđri hćttu.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ţađ er ekki popúlismi sem kemur velferđarkerfi ESB fyrir kattarnef, ţađ verđa flóttamenn og hćlisleitendur sem sjá um ţađ hlutverk.

Kominn tími til ađ koma sérhagsmunaklíku ESB fyrir kattarnef, fólk sem greiđir ekki skatta, hefur sér skóla fyrir afkvćmi sín og fćr frítt húsnćđi fyrir utan alskonar önnur fríđindi sem sérhagsmunaklíkan fćr á sér enga framtíđ.

Ţegar ég les um ESB sérhagsmunaklíkuna, dettur mér í hug hirđfíflinn (sérhagsmunaklíkuna) hjá frökkum á dögum Lúđvíka kóngana.

Kveđja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 5.1.2016 kl. 01:20

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 829
  • Frá upphafi: 1117721

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 731
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband