Leita í fréttum mbl.is

Fjör á fundi Heimssýnar með Pírötum

JonBogAstaGÁsta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, hafði framsögu um ESB-málin á opnum stjórnarfundi Heimssýnar sem haldinn var í Iðnó í fyrrakvöld. Ásta Guðrún svaraði svo spurningum fundarmanna og tók þátt í líflegum umræðum um ýmsa þætti ESB-málanna. Meðal þess sem kom fram hjá Ástu var að Píratar vilja að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort halda skuli áfram viðræðum um aðild Íslands að ESB eða ekki.

Ásta nefndi ýmsa kosti þess að vera hluti af ESB, og nefndi sérstaklega jafnréttismál í því samhengi og einnig friðarmál, en tiltók einnig neikvæð atriði sem því fylgdi eins og aukið skrifræði.

Ásta fullyrti að umsókn Íslands að ESB væri í raun í fullu gildi og að með bréfi utanríkisráðherra til ESB hefði verið gengið framhjá þinginu. Hún sagði jafnframt að ef hætta ætti viðræðum þyrfti að semja sérstaklega um það við ESB. Þegar talið barst að undanþágum frá ákvæðum sem hingað til hafa gilt hjá ESB, t.d. varðandi fiskveiðimál, var á Ástu að skilja að hún teldi ESB væri þess eðlis að það gæti ekki veitt neinar varanlegar undanþágur frá regluverki um slíka hluti. Hins vegar sagði hún það skoðun sína að það yrði að halda áfram samningaviðræðum til þess að sjá hvað út úr þeim kæmi.

Almennt var gerður góður rómur að málflutningi Ástu þótt fundarmenn hefðu margir hverjir aðrar skoðanir og í sumu annan skilning á stöðu mála og var ljóst að umræðan var hvergi nærri tæmd á þeim tíma sem til umráða var. Því er þess vænst að við fáum að eiga orðastað við þingmenn Pírata aftur áður en langt um líður.

Heimssýn hefur fengið fulltrúa ýmissa stjórnmálaflokka á fund með sér til að ræða um Evrópumálin. Meðal þeirra sem hafa nýverið komið á fundi hjá Heimssýn eru Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar og Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður utanríkismálanefndar. Von er á fleiri fundum af þessu tagi.

Á myndinni eru Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, og Jón Bjarnason, formaður Heimssýnar og fyrrverandi ráðherra, við upphaf fundarins í fyrrakvöld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

ÉG ætla bara ekki að kokgleypa þá fullyrðingu Ástu að umsóknin sé enn fullgild.Ég tel þetta hræðsluáróður og í anda ESb,sinna að segja bréf utanríkisráðherra sé ekki gilt vegna þess að það fór framhjá þinginu.Vil ég minna á að umsókn fyrrverandi utanríkisráðherra,var aðeins þingsályktunartillaga.,og ekki undirrituð af forseta Íslands.

Helga Kristjánsdóttir, 30.1.2016 kl. 02:55

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það er rétt hjá þér, Helga, að þessi þingsályktunartillaga var ekki undirrituð af forseta Íslands, eins og þó var skylt að reyna að fá, ef hún ætti að öðlast eiginlegt gildi samkvæmt stjórnarskránni, þ.e.a.s. ákvæðum hennar í 16.-19. gr. 

Hvers vegna er ég eini maðurinn sem lætur sér annt um að stjórnarskráin sé virt í þessu máli og um lögmæti mikilvægra stjórnarráðstafana? En ég hef skrifað ítrekað um málið á eigin bloggum og Fullveldisvaktarinnar, en hefði sennilega þurft að berjast enn meira í þessu, vekja athygli allra á augljósum stjórnarskrárbrotum Össurar Skarphéðinsonar og brýnni nauðsyn þess, að Alþingi leiðétti þessa ósvinnu.

Það gæti þá orðið meðal síðustu og beztu verka herra Ólafs Ragnars að fá að skrifa undir þá þingsályktunartillögu, að hætt sé við áformin um Ísland sem umsóknarland um aðild að Evrópusambandinu.

Jón Valur Jensson, 31.1.2016 kl. 01:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 234
  • Sl. sólarhring: 279
  • Sl. viku: 2603
  • Frá upphafi: 1165231

Annað

  • Innlit í dag: 207
  • Innlit sl. viku: 2230
  • Gestir í dag: 193
  • IP-tölur í dag: 189

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband