Leita í fréttum mbl.is

Ráðherrar evruríkjanna reyna að koma í veg fyrir krísu

Evran stuðlaði að vandræðum Grikkja. Nú reyna fjármálaráðherrar evruríkjanna að koma í veg fyrir enn eina krísuna á svæðinu.

Í meðfylgjandi frétt mbl.is segir: Á mánu­dag munu fjár­málaráðherr­ar evru­ríkj­anna funda í Brus­sel til að leita leiða til að koma í veg fyr­ir nýja krísu á svæðinu.

Sjá nánar í meðfylgjandi frétt.


mbl.is Samþykktu umdeildar aðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi L. Skjaldarson

Er það ekki fullmikil einföldun að kenna Evrunni um? Svona eins og alkólisti sem kennir flöskunni um.

Tryggvi L. Skjaldarson, 9.5.2016 kl. 08:33

2 Smámynd:   Heimssýn

Það er ekki verið að kenna evrunni alfarið um heldur sagt að hún hafi stuðlað að þessum vandræðum ásamt öðrum þáttum. Svo hlutur evrunnar sé útskýrður þá gerði hún það meðal annars að verkum að fjámálamarkaðir urðu fyrir barðinu á alþekktri fjármálaglýju - eða markaðsmistökum sem fólust í því að eftir upptöku evrunnar fengu Grikkir lánað traust frá Þýskalandi og erlend lán þar af leiðandi á lægri vöxtum. Þetta stuðlaði að allt of mikilli skuldasöfnun. Hliðstæð vandamál hafa átt sér stað í fleiri löndum. Ofsatrúarmenn um ágæti evrunnar hafa aldrei skilið þetta heldur hafa gengið með þá grillu í kollinum að með sameiginlegri mynt myndu allar aðstæður smella í sama farveg og því myndi verðbólga og vextir verða hinir sömu í viðkomandi löndum. Þrátt fyrir langvarandi evrukreppu virðast margir ekki enn skilja þær einföldu staðreyndir að þetta hefur alls ekki gengið eftir heldur þvert á móti hefur evran ýtt undir misvægi á mörkuðum, aukið atvinnuleysi á ýmsum svæðum, skuldasöfnun, vandræði ríkissjóða og verri félagslega þjónustu. En svo eru auðvitað fleiri þættir sem hafa haft áhrif í Grikklandi eins og ófullburða upplýsingamiðlun um staðreyndir efnahagslífsins (logið með tölum) og vangeta stjórnmálaaflanna til að halda ríkisfjármálum á réttu róli.

Heimssýn, 9.5.2016 kl. 08:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.11.): 18
  • Sl. sólarhring: 455
  • Sl. viku: 1773
  • Frá upphafi: 1162225

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 1587
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband