Leita í fréttum mbl.is

Una ekki lýðræðislegri niðurstöðu

Það er athyglisvert að ýmsir Bretar una ekki þeirri lýðræðislegri niðurstöðu sem fengin var í gær með Brexit. Nú krefjast þeir að það verði kosið aftur og að ekki sé hægt að samþykkja úrsögn nema með þröngum skilyrðum. Þetta leiðir hugann að því háttalagi ESB-sinnaðra ríkisstjórna á fyrri árum að láta kjósa aftur og aftur um samninga og mál þar til sú niðurstaða fæst sem er ESB þóknanleg. 

Þessar kosningar í Bretlandi í gær eru verulega athyglisverðar. Bretar gengu í forvera ESB árið 1973 með samþykkt ríkisstjórnar Íhaldsflokksins. Tveimur árum síðar fékk breska þjóðin að segja sitt um þetta ESB-light sem þá var fremur lítil reynsla komin á.

Þá vildu átta milljónir Breta ekki vera í því sambandi.

Nú þegar ríflega fjörutíu ára reynsla er komin á aðildina sögðu ríflega 17 milljónir Breta að þeir vildu ekki vera í þessu ESB-regular sem stefnir að því að verða ESB-extra. Andstaðan er misjafnlega mikil eftir svæðum, aldri og ýmsum hópum. Svo er alltaf.

En þetta er niðurstaða í lýðræðislegri þjóðaratkvæðagreiðslu sem er það form sem þjóðir hafa valið til að leysa úr ágreiningi um stór mál.


mbl.is „Látum ekki taka Evrópu frá okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Þýskaland hefur talað, "Látum ekki taka Evrópu frá okkur" þá vitum við það hver það er sem telur sig eiga Evrópu.

Hrossabrestur, 25.6.2016 kl. 16:07

2 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

En bretar fengu þó a.m.k. að halda lýðræðislega aðkvæðagreiðslu um þetta stóra mál eins og þeim hafði verið lofað, enda er það "það form sem þjóðir hafa valið til að leysa úr ágreiningi um stór mál."

Við hljótum að taka Breta okkur til fyrirmyndar hvað þetta varðar, er það ekki?

Haraldur Rafn Ingvason, 25.6.2016 kl. 18:29

3 Smámynd: Aztec

Jú, Haraldur, það er einmitt það sem vinstristjórnin neitaði þjóðinni um 2009/2010.

Aztec, 25.6.2016 kl. 22:08

4 Smámynd: Aztec

"Þýskaland hefur talað, "Látum ekki taka Evrópu frá okkur" þá vitum við það hver það er sem telur sig eiga Evrópu."

Þetta eru orð að sönnu, Hrossabrestur.

Aztec, 25.6.2016 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 209
  • Sl. sólarhring: 275
  • Sl. viku: 2578
  • Frá upphafi: 1165206

Annað

  • Innlit í dag: 183
  • Innlit sl. viku: 2206
  • Gestir í dag: 172
  • IP-tölur í dag: 170

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband