Leita í fréttum mbl.is

Ósk um viðræður er ósk um aðild - en þjóðin er á móti aðild

Til að viðræður um aðild að ESB geti farið fram þarf að sækja um aðild að ESB. Ósk um aðild felur í sér vilja til að ganga í ESB. Viðræður fela þá það í sér hvernig aðlaga eigi regluverk umsóknarlands að regluverki ESB. Þetta liggur fyrir.

Ísland sótti um aðild að ESB árið 2009. Viðræður um aðild á grundvelli þeirrar umsóknar sigldu fljótlega í strand meðal annars vegna þess að Íslendingar sætta sig ekki við að Brussel nái yfirráðum yfir auðlindum Íslands. Skilyrðin sem Alþingi setti í umsókninni hindruðu frekari viðræður.

Þjóðin vill ekki gerast aðili að ESB. Það er því algjörlega á skjön við eðlilegan framgangsmáta að halda áfram viðræðum um aðild að ESB. 

Ef einhver vilji er til að endurlífga umsóknina og setja viðræður í gang er það jafnframt yfirlýsing um að falla frá þeim skilyrðum sem Alþingi setti í samþykktina um umsókn frá 2009. Það yrði yfirlýsing um að Íslendingar ætluðu að fela embættismönnum í Brussel úrslitavald við stjórn mikilvægra auðlindamála á og í kringum Ísland. Hver vill það?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Herteknu alþingi árið 2009 er hér með fyrirgefið að mörgu leyti, af minni hálfu nú árið 2016.

Eftir að hafa séð hvernig svika-fléttu"listamenn", innan lögfræðinga/lífeyrissjóða/sýslumanna/héraðsdómsstóla/Hæsta-réttardómsstóls Íslands, virkar í raun þvert á allt almennt heimsviðurkennt mannréttindanna viðurkennt og alþjóðasamþykkt siðferði!

"Alla alla", "hallelúja", amen! Í boði ábyrgðarlauss Hæstaréttarforseta Íslands :(.

Eða eitthvað þannig.

Trúarbragðastríðs-valdagræðgistjórar Heimsveldis-Páfanna ALLA-ALLA-HALLELÚANDI OG LJÚGANDI.

Karlrembu-skattpíningar-helvítis-stríðsstjóranna helför heimsbankanna, gengur eins og vel smurð tortímingarvítisvél!

Karlmenn hrokans í heimsins valdastöðum, sem ekki eru mjúkir og mannúðarinnar mildir, vitrir og virðingarverðir höfðingjar, í meðvitaði viturri alheims-smæð sinni, munu ekki skilja það sem ég skrifaði hér að ofan.

Munurinn á stríði og friði er mikill. Það fer enginn veg friðar, sem ætlar raunverulega að fara veg stríðs á einhvern hátt. Þeir tveir vegir ganga óhjákvæmilega í sitt hverja og gjörsamlega andstæðar markmiðs-áttir.

Og í huga hvers barnungs einstaklings er gróðurmoldin ræktanleg fyrir bæði stríði og friði. Í huga hvers sjálfstæðs einstaklings sem fær mannúðlegt atlæti, kærleika og friðarmeðvitund, verður siðmenntuð og friðsamleg framtíð sköpuð.

Grunnskóla-stefnurugl yfirvalda vestræns heims ber ábyrgð á því, að sumir einstaklingar fá of oft kerfisstýrða og stundum næstum ómannúðlega innrætingu. Pólitíska og hættulega skóla-innrætingu sem skaðar stundum hlutlaust og siðmenntað einkaþroskafrelsis barna.

Barnaverndaryfirvöld sumra ríkja, og heilbrigðis/félagsmála-stofnanir (sumar), spila oft glæpsamlegt og falskt blekkingarleikrit. Innan og utan grunnskólakerfisins.

Grunnskólar eiga ekki að vera heilbrigðis-sálfræði-greiningar-heilbrigðisstofnanir, á vegum sveitarstjórnar-barnaverndar-heilsugæslunnar fagvinnu.

Heyrði kennara segja frá því í útvarinu fyrir stuttu síðan að kennarar lærðu ekki að kenna barnaskólanemendum að lesa, á sínu 6 ára Háskólanámi? Hvað er kennurum eiginlega kennt í 6 ára rándýru okurlánakerfis-námi í Háskóla Íslands?

Kosningabært fólk ætti að kynna sér kerfisþróun núgildandi vanþróunarkerfisins á Íslandi. Og ekki síst frambjóðendur til svokallaðs Alþingis Íslands. (Sem er í raun djók-alþingi forseta Hæstaréttar Íslands, og hans Háskóla-Íslands lagaprófessors-frúar).

Verndarlaus börn fara alltaf verst út úr vanrækslu opinbera heilbrigðis/félags-þjónustukerfisins fjölbreytta og skattgreidda.

Árið er 2016!

Og raunveruleg verðmæti/peningar skapast einungis með raunverulegri, nauðsynlegri og hollri framleiðslu. Hvar sem er í heiminum flóða/uppskerubrestandi.

Fólk þarf að vakna til vitundar um raunveruleikann. Hvar í "flokki" sem það telur sig vera flokkabankamafíu-þvingað til að vera. 

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.10.2016 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 17
  • Sl. sólarhring: 188
  • Sl. viku: 982
  • Frá upphafi: 1117905

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 874
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband