Leita í fréttum mbl.is

Ráðherra stendur ekki í lappirnar

jon_bjarnason_1198010Íslendingar þurfa að standa fastar á rétti sínum í samskiptum við ESB að mati Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, en hann fjallar í vefskrifum sínum í dag um það hvernig stjórnvöld og jafnvel hagsmunaaðilar virðast lyppast niður gagnvart skeytasendingum erlendis frá í stað þess að standa á rétti sínum og vinna að því að hér verði öryggi og heilbrigði sem mest þegar kemur að meðferð matvæla.

Pistill Jóns Bjarnasonar er aðgengilegur hér

Meðal þess sem Jón segir er að EES samningurinn hefði aldrei verið samþykktur á Alþingi ef landbúnaður, fiskveiðar og matvæla- og dýraheilbrigði hefði ekki verið þar undanskilinn.

Er fólk gjörsamlega búið að gleyma? 

Ætlar fólk virkilega að láta taka sig með þessari Monnet-spægipylsu-koníaksaðferð?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Það er ekki von, að Þorgerður Katrín geri neitt í málinu, enda hún alltof höll undir ESB til þess. Við skulum vona, að foringjarnir þrír, sem sitja daglega á fundum til að koma saman nýrri ríkisstjórn hafi rætt þetta á einhverjum fundi sínum, og nýr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hvort sem það verður nú Sigurður Ingi eða einhver annar, bregðist snarlega við, þegar hann hefur tekið við lyklavöldunum af Þorgerði. Við verðum að muna það, að þessir þrír flokkar, sem nú eru að reyna að koma saman ríkisstjórn eru nú ekki svo hrifnir af ESB. Ég er ekki viss um, að hvortheldur Bjarni eða Kata, hvað þá Sigurður Ingi, dýralæknirinn, eða Lilja muni kæra sig um að samþykkja þetta athugasemdalaust, þó að þau hafi ekki tjáð sig neitt um þetta enn, svo að við skulum bíða og sjá, hvort eitthvert þeirra bregðast ekki við, þegar þau hafa lokið af að búa til ríkisstjórn. Fyrr heyrist varla hljóð úr horni úr ráðuneytunum, fyrst Guðlaugur Þór segir heldur ekki neitt, því að varla mun hann vera hrifinn af þessu heldur. Ég verð a.m.k. spennt að vita, hvort ný ríkisstjórn bregst ekki við þessu, þegar þau hafa sest í valdastólana. Það ætti a.m.k. að skora á þau að gera það, þar sem allir þessir flokkar eru yfirlýstir andstæðingar ESB-aðildar og eru lítt hrifnir af því, sem kemur úr þeim herbúðum. Bíðum og sjáum, hvað verður eftir nokkrar vikur.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 24.11.2017 kl. 16:14

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Fáir eru jafn ákveðnir og kjarkmiklir sem Jón Bjarnason sem hirti ekki um eigin hag í embætti sjávarútvegs (2011)? Hagur íslensku þjóðarinnar var/er í forgangi.

Helga Kristjánsdóttir, 25.11.2017 kl. 03:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 84
  • Sl. viku: 693
  • Frá upphafi: 1116905

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 611
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband