Leita í fréttum mbl.is

Orkumál til umræðu hjá Heimssýn á fimmtudag

kathrine-kleveland680Aðalfundur Heimssýnar verður haldinn fimmtudaginn 1. mars næstkomandi á Hótel Sögu við Hagatorg. Hann hefst klukkan 17.15 með hefðbundinni aðalfundardagskrá, en klukkustund síðar, eða klukkan 18.15 hefst svo opinn fundur með Kathrine Kleveland, formanni Nei til Eu í Noregi. 

Kathrine mun einkum fjalla um innleiðingu orkulöggjafar ESB í EES-samninginn.  Fyrirhugað er að setja á stofn orkueftirlit sem lýtur tilskipunum ACER, Orkustofu ESB og ESA, með svipuðum hætti og fjármálaeftirlit lýtur tilskipunum frá Evrópusambandinu. 

Markmið ACER er að þróa sameiginlegan orkumarkað í ESB-ríkjunum þar sem meintir hagsmunir ESB-svæðisins ganga framar hagsmunum einstakra ríkja. Á það meðal annars við um raflínur og orkuflutning milli landa. Hvort tveggja mun lúta stjórn Evrópusambandsins. 

Kathrine mun einnig ræða andstöðu í Noregi við þessa þróun. Umræðan hér á landi er skammt á veg komin og því verður áhugavert að heyra af umræðunni í Noregi um þetta mál.

 

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  1. Fundarsetning og kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla formanns
  3. Reikningar
  4. Umræður um skýrslur og reikninga
  5. Kosning formanns og varaformanns
  6. Kosning aðalstjórnar
  7. Önnur mál
    - EES-samningurinn.
  1. Opinn fundur með Kathrine Kleveland formanni Nei til EU í Noregi.
  2. Fundarslit

Félagar í Heimssýn eru hvattir til að fjölmenna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er frábært að Heimsýn skuli standa fyrir heimsókn Kathrine Kleveland hingað til lands. Þó þessi færsla Heimsýnar um efni það er Katherine mun fjalla um, sé frekar meinleysileg, er vonandi að augu fólks opnist.

Norðmenn hafa fjallað rækilega um ACER og þá skelfingu sem henni fylgir. Skoðanir eru að sjálfsögðu skiptar, en megin þorri Norðmanna þekkir þó málið og getur tjáð sig um það. Hér á landi vita fáir um hvað það snýst og skelfing að vita til þess að Alþingi muni taka ákvörðun um það á næstu vikum!

Það er einlæg von mín að Heimsýn sjái til þess að sem mest umræða um erindi Katherine skapist, að sem flestir fjölmiðlar muni taka það upp og að almenning verði gerð grein fyrir ósköpunum.

Í stuttu máli snýst innleiðing þriðja kafla orkusáttmála ESB um það að stofnun sem fengið hefur skammstöfunina ACER, muni ráða að öllu leyti allri orkuframleiðslu landa ESB og EES, raða hvar er virkjað, hversu mikið, hvert orkan er flutt, hvernig kostnaði við þann flutning verði skipt og hvert verð orkunnar skuli vera í hverju landi fyrir sig. Þetta mun þíða að orkuverð hér á landi mun hækka verulega, frá tíföldun þess sem er í dag og jafnvel allt upp í sextíuföldun!!

Þjóðríkin munu áfram "eiga" orkufyrirtækin en í engu ráða rekstri þeirra!! Þær ákvarðanir munu að öllu leyti færast yfir til ACER. Alþingi Íslendinga mun þar engu ráða, samþykki það innleiðingu þriðja kafla orkusáttmála ESB!!

Gunnar Heiðarsson, 27.2.2018 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 189
  • Sl. viku: 983
  • Frá upphafi: 1117906

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 875
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband