Leita í fréttum mbl.is

Hugvekja til Íslendinga árið 2020

 

heimssyn-thingvellir

Árið 1848 ritaði Jón Sigurðsson hugvekju til Íslendinga.  Hún fjallaði um að farsælast væri að Íslendingar réðu málum sínum sjálfir.  Ólíkt því sem sumir halda var hugvekja Jóns ekki rómantískur vafningur, hnýttur saman með Danahatri, heldur færði hann skynsamleg rök fyrir því að það væri hagstæðast og skynsamlegast að haga málum þannig að lög um íslensk málefni væru sett af Íslendingum sjálfum.  Þau rök eiga svo sannarlega við í dag, en svo virðist sem margir hafi gleymt því. 

Nú, árið 2020 ritar Arnar Þór Jónsson merka grein um hina nýju sjálfstæðisbaráttu Íslendinga.  Greinin er að hluta endurómur af málflutningi Jóns Sigurðssonar og er vel ígrunduð og skýr og hana mætti gjarnan lesa upphátt við setningu Alþingis næstu árin.  Arnar Þór kemur víða við og um EES-samninginn segir hann m.a.

Með hliðsjón af öllu framanrituðu ber að beina sjónum íslensks almennings að þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er, þ.e. að ytri mörk heimilaðs framsals íslensks ríkisvalds eru næsta óljós og að viðamikið framsal valdheimilda íslenska ríkisins til stofnana EES byggir á veikum stjórnskipulegum grunni sem íslenskri þjóð ber að hafa vakandi auga með. 

Og Arnar Þór hvetur þjóðina og fulltrúa hennar til að horfast í augu við vandamálin og velta fyrir sér valkostum í samskiptum við útönd, öðrum en EES-samningnum.

„Hverra lög eru þetta?“ Undirritaður, sem unnið hefur drengskaparheit að stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, telur sér bæði rétt og skylt að bera þessa spurningu fram hér, jafnframt því að kalla eftir því að kjörnir embættismenn leiði upplýsta umræðu um þátttöku Íslands í EES-samstarfinu og aðra valkosti.

Það er svo sannarlega tímabært.

https://thjodmal.is/2020/11/23/sjalfstaedisbarattan-nyja/

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Enginn stjórnmálaflokkur sem á sæti á Alþingi vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES), ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn. cool

"Fjórfrelsið gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og það felur í sér frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga og sameiginlegan vinnumarkað.

Að auki kveður samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið á um samvinnu ríkjanna á svæðinu í til dæmis félagsmálum, jafnréttis-, neytenda-, umhverfis-, mennta-, vísinda- og tæknimálum."

En þeir sem vilja segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu geta að sjálfsögðu gengið í Íslensku þjóðfylkinguna sem fékk 0,2% atkvæða í alþingiskosningunum í október 2016. cool

Þorsteinn Briem, 24.11.2020 kl. 23:10

2 identicon

Þorsteinn, ef þú gefur þér tíma til að lesa greinina muntu sjá hlutina í víðara samhengi, en ekki því þrönga ljósi sem orð þín bera vott um. Ef þú hefur t.d. fylgst með nýafstöðnum kosningnum í Bandaríkjunum sérðu að þrátt fyrir málefnaágreining um margt eru flokkarnir þar, Repúblikanar (lýðveldissinnar) og demókratar (lýðræðissinnar) sammála um að landsstjórnin á að lúta lýðræðislegum lögmálum. Hið sama má segja um alla stjórnmálaflokka hérlendis. Varla styður þú annars konar stjórnarfar. Kveðja, Arnar Þór Jónsson. 

Arnar Þór Jónsson (IP-tala skráð) 25.11.2020 kl. 10:57

3 identicon

Hvað sem segja má um EES samninginn að öðru leyti, þá er hann ekki þess eðlis að skírskotun til hans eins megni að lesa upp alla hefðbundna lagalega, lögfræðilega eða breiða pólitíska umræðu um lýðræði, sjálfsákvörðunarrétt manna / þjóða og um nauðsyn þess að valdhafar svari til ábyrgðar gagnvart borgurunum. 

Arnar Þór Jónsson (IP-tala skráð) 25.11.2020 kl. 14:38

4 identicon

... megni að leysa upp ...

Arnar Þór Jónsson (IP-tala skráð) 25.11.2020 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 724
  • Frá upphafi: 1224093

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 625
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband