Leita í fréttum mbl.is

Hvar eru lýðræðis- og fullveldissinnar stjórnmálaflokkanna?

arnar-thor-jonsson-myndStór og vaxandi hópur fólks innan Sjálfstæðisflokksins hefur áhyggjur af útvötnun fullveldis Íslands og þróun lýðræðisins.  Víst er að eins er í öðrum flokkum.  Þar skortir ekki hugmyndir um hvað megi betur fara í stjórn landsins.  Varla telja liðsmenn þeirra flokka sem telja sig til vinstri að hagsmunum íslenskrar alþýðu sé best borgið með því að landinu sé stjórnað með tilskipunum sem sniðnar eru að hagsmunum hins evrópska stórauðvalds, eða hvað?  Hvað með þá sem leggja áherslu á framsækni í upplýsingatækni og lýðræði? Hvort telja þeir vænlegra að vinna að framgangi mála sinna með því að bera þau fram á Alþingi sem hefur alvöru löggjafarvald, eða með því að senda bænaskjal til erlendrar stofnunar?

Er ekki tímabært að fullveldissinnar í fleiri stjórnmálaflokkum láti rödd sína heyrast, þótt ekki væri nema með því að bjóða Arnari Þór Jónssyni á fund?

https://www.youtube.com/watch?v=SKFiIR0NmR4

https://thjodmal.is/2020/11/23/sjalfstaedisbarattan-nyja/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Enginn stjórnmálaflokkur sem á sæti á Alþingi vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES), ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn. cool

"Fjórfrelsið gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og það felur í sér frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga og sameiginlegan vinnumarkað.

Að auki kveður samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið á um samvinnu ríkjanna á svæðinu í til dæmis félagsmálum, jafnréttis-, neytenda-, umhverfis-, mennta-, vísinda- og tæknimálum."

En þeir sem vilja segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu geta að sjálfsögðu gengið í Íslensku þjóðfylkinguna sem fékk 0,2% atkvæða í alþingiskosningunum í október 2016. cool

Þorsteinn Briem, 13.12.2020 kl. 13:41

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Er þá ekki orðið tímabært að trommma upp stemmningu fyrir Íslenzku þjóðfylkinguna og Frelsisflokkinn? Þetta eru raddir sem verða að heyrast inná þingi, orðið löngu tímabært.

Margt verður gert til að gera Bretum lífið leitt, en þeir eru í þeirri öfundsverðu aðstöðu að vera frjálsari en flestir aðrir eftir þetta. Það er ekki meðmæli með Evrópusambandinu að þar vill fólk að þeir iðrist og snúi aftur í móðurfaðm Merkel, sem minnir á Borg drottninguna í Star Trek Voyager, allir áttu að lúta sömu lögum og vilja einnar drottningar.

Veröldin var betri og frjálsari þegar lönd Evrópu voru með eigin gjaldmiðla og stjórn á sínum málum, þá naut sérstök menning hvers lands sín betur. Margur verður af aurum api, og gróðahyggjan á bakvið ESB er ekki allt sem eftirsóknarvert er.

Flestir flokkar á Alþingi eru meðvirkir. Ef Jónas Hallgrímsson væri á meðal okkar myndi hann ábyggilega benda á þetta.

Fjórfrelsið er bara nafn á hlekkjum, fjórhelsið ætti það að heita, því það merkir líka að fara eftir erlendu regluverki.

Ég skora á ungt fólk að kjósa Íslenzku þjóðfylkinguna og Frelsisflokkinn. Þetta er framtíðin þeirra, sem hagnast meira á fullu sjálfstæði.

Ingólfur Sigurðsson, 14.12.2020 kl. 07:25

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef ég á að láta rödd mína heyrast

og verja sjálfstæði landsins

að þá þyrfti mogga-bloggið að 

OPNA FYRIR MITT TJÁNINGARFRELSI 

þannig að ég geti haldið úti mínu eigin moggabloggi;

sem að virðist ennþá vera lokað fyfir: 

https://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/#entry-2235376

Jón Þórhallsson, 14.12.2020 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 251
  • Sl. sólarhring: 394
  • Sl. viku: 2608
  • Frá upphafi: 1165525

Annað

  • Innlit í dag: 223
  • Innlit sl. viku: 2249
  • Gestir í dag: 218
  • IP-tölur í dag: 214

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband