Leita í fréttum mbl.is

"Aðildarsamningaviðræðu"þingmaður í framboð fyrir VG?

heimssyn-marshall-jan21

Einn furðulegasti leikþáttur stjórmála liðinna ára voru hinar svokölluðu “samningaviðræður” um innlimun Íslands í Evrópusambandið.  Látið var í veðri vaka að stórkostlegar samningaviðræður væru í gangi þegar ljóst var frá upphafi að aðildarríki Evrópusambandsins gangast refjalaust undir löggjöf sambandsins, eins og hún er, og ekki síður eins og valdamönnum sambandsins þóknast að hafa hana í framtíðinni. Evrópusambandinu sjálfu má segja til hróss að aldrei var nein fjöður dregin yfir það.  Það gerðu hins vegar ástmenn þess á Íslandi.

Einn þeirra sem vildi fyrir alla muni eiga í “samningaviðræðum” við Evrópusambandið er Róbert nokkur Marshall.  Hann er nú sagður vilja verða þingmaður fyrir stjórnmálaflokk sem að jafnaði hefur verið hallur undir fullveldi þjóðarinnar.  Einu sinni bognuðu sumir þingmanna flokksins að vísu í þeirri baráttu, en það gerist vonandi ekki aftur.

Hvaða afstöðu skyldi téður Róbert nú hafa til “samningaviðræðna”.  Vill hann ræða endurskoðun á EES-samstarfinu, eða langar hann kannski undir niðri að afhenda erlendu ríkjasambandi völdin yfir Íslandi? 

Væri ekki heiðarlegt af Róberti að upplýsa um það?

 

https://frettabladid.overcastcdn.com/documents/210126.pdf


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

8.4.2013:

"Stefan Füle stækkunarstjóri Evrópusambandsins kveðst hafa fullan skilning á sérstöðu Íslands um bann við innflutningi á lifandi dýrum og sagði að fullur vilji væri til að taka tillit til hinna sérstöku aðstæðna sem ríktu á Íslandi um dýra- og plöntuheilbrigði." cool

"Á fundinum lýsti stækkunarstjórinn yfir að Evrópusambandið væri nú reiðubúið að hefja viðræður við Íslendinga um kaflann um matvælaöryggi og dýra- og plöntuheilbrigði á grundvelli samningsafstöðu Íslendinga.

Stækkunarstjórinn sagði að Íslendingum hefði tekist vel að koma sérstöðu sinni á framfæri." cool

"Í samningsafstöðu Íslendinga eru settar fram skýrar kröfur um að við myndum viðhalda banni á innflutningi á lifandi dýrum."

"Gangur í viðræðunum hefur verið góður, 27 kaflar hafa verið opnaðir og 11 lokað og einungis er eftir að hefja viðræður um sex kafla." cool

Þorsteinn Briem, 26.1.2021 kl. 13:46

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

18.12.2012:

"
Ég trúi því að það þjóni bæði hagsmunum Íslands og Evrópusambandsins að ljúka þessum samningaviðræðum,"segir Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, um aðildarviðræður Íslands að sambandinu. cool

"Við munum taka mið af ýmsum sérhagsmunum Íslands
... og vonandi felast næstu skref í því að við fáum tækifæri til að kynna endanlegan samning fyrir íslensku þjóðinni, þannig að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun." cool

Þorsteinn Briem, 26.1.2021 kl. 13:47

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis um aðildarumsókn að Evrópusambandinu:

Landbúnaðarmál:


"Meirihlutinn telur eðlilegt að horft verði til þess hvort skynsamlegt geti verið að fara fram á takmarkanir á rétti þeirra sem ekki hafa lögheimili og fasta búsetu á landinu til að eignast fasteignir hér á landi með tilliti til þess að viðhalda búsetu í sveitum.

Bendir meirihlutinn hvað þetta varðar meðal annars á samsvarandi sérreglur Möltu og Danmerkur." cool

Þorsteinn Briem, 26.1.2021 kl. 13:54

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Skýrsla Evrópunefndar lögð fram af Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, í mars 2007, bls. 77-79:

"Varanlegar undanþágur og sérlausnir:" cool


"Komi upp vandamál vegna ákveðinnar sérstöðu eða sérstakra aðstæðna í ríki sem sækir um aðild að Evrópusambandinu er reynt að leysa málið með því að semja um tilteknar afmarkaðar sérlausnir. cool

Eitt þekktasta dæmið um slíka sérlausn er að finna í aðildarsamningi Danmerkur árið 1973 en samkvæmt henni mega Danir viðhalda löggjöf sinni um kaup á sumarhúsum í Danmörku.

Í þeirri löggjöf felst meðal annars að aðeins þeir sem búsettir hafa verið í Danmörku í að minnsta kosti fimm ár mega kaupa sumarhús í Danmörku en þó er hægt að sækja um undanþágu frá því skilyrði til dómsmálaráðherra Danmerkur."

"Ekki er hins vegar um að ræða undanþágu eða frávik frá banni við mismunum á grundvelli þjóðernis og íbúar annarra aðildarríkja sem uppfylla skilyrði um fimm ára búsetu geta því keypt sumarhús í Danmörku."

Í þessu tilviki "er í raun um að ræða frávik frá 56. grein stofnsáttmála Evrópusambandsins, sem bannar takmarkanir á frjálsu flæði fjármagns." cool

"Mikilvægt er að hafa í huga að aðildarsamningar að Evrópusambandinu hafa sömu stöðu og stofnsáttmálar sambandsins og því er ekki hægt að breyta ákvæðum þeirra, þar á meðal undanþágum eða sérákvæðum, sem þar er kveðið á um, nema með samþykki allra aðildarríkjanna [í þessu tilviki einnig Danmerkur]." cool

Þorsteinn Briem, 26.1.2021 kl. 13:57

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Skýrsla Evrópunefndar lögð fram af Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, í mars 2007, bls. 77-79:

"Varanlegar undanþágur og sérlausnir." cool

"Finna má ýmis dæmi um sérlausnir í aðildarsamningum sem taka tillit til sérþarfa einstakra ríkja og héraða hvað varðar landbúnaðarmál. cool

Í aðildarsamningi Finnlands og Svíþjóðar 1994 var fundin sérlausn sem felst í því að samið var um að Finnum og Svíum yrði heimilt að veita sérstaka styrki vegna landbúnaðar á norðurslóðum, þ.e. norðan við 62. breiddargráðu [og allt Ísland er norðan hennar]. cool

Sú lausn felur í sér að þeir mega sjálfir styrkja landbúnað sinn sem nemur 35% umfram önnur aðildarlönd.

Í aðildarsamningi Finnlands er einnig ákvæði um að styrkja megi svæði sem eiga í alvarlegum erfiðleikum með aðlögun að hinni sameiginlegu landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins og Finnar hafa nýtt það ákvæði til að semja við Evrópusambandið um sérstuðning fyrir Suður-Finnland.

Stuðningur við harðbýl svæði (Less Favoured Area, LFA) varð til við inngöngu Bretlands og Írlands í Evrópusambandið en þessi ríki höfðu áhyggjur af hálandalandbúnaði sínum og því var samið um sérstakan harðbýlisstuðning til að tryggja að landbúnaðurinn gæti staðið af sér samkeppni við frjósamari svæði Evrópu.

Finnland
, Svíþjóð og Austurríki sömdu einnig sérstaklega um þannig stuðning í aðildarsamningi sínum og sem dæmi má nefna að 85% Finnlands var skilgreint sem harðbýlt svæði." cool

aðildarsamningi Möltu er ákvæði um að Malta verði skilgreint sem harðbýlt svæði, auk þess sem í sérstakri yfirlýsingu er fjallað um eyjuna Gozo og meðal annars tiltekið að hún verði flokkuð sérstaklega með tilliti til styrkja vegna sérstakra aðstæðna á eyjunni.

Þegar Grikkir gengu inn í Evrópusambandið var sérákvæði um bómullarframleiðslu sett inn í aðildarsamning þeirra en bómullarrækt var mjög mikilvæg fyrir grískt efnahagslíf.

Ljóst þótti að landbúnaðarstefnan gæti að óbreyttu stefnt þessum mikilvæga atvinnuvegi í hættu og tókst Grikkjum því að fá sérstöðu bómullarræktunar viðurkennda í aðildarsamningi sínum.

Hið sama gerðist þegar Spánverjar og Portúgalar gengu í Evrópusambandið og þessi ákvæði hafa nú almennt gildi innan landbúnaðarstefnunnar.

Í aðildarsamningi Finnlands
, Svíþjóðar og Austurríkis er viðurkennt að svæði sem hafa átta eða færri íbúa á hvern ferkílómetra skuli njóta hæstu styrkja uppbyggingarsjóða Evrópusambandsins en í þeim flokki eru að öðru leyti svæði sem verg landsframleiðsla á mann er undir 75% af meðaltali Evrópusambandsins. cool

Malta og Lettland sömdu einnig um
tilteknar sérlausnir í sjávarútvegi í aðildarsamningi sínum sem fela í sér sérstakt stjórnunarsvæði fiskveiða á tilteknum svæðum og þær lausnir byggja á verndunarsjónarmiðum." cool

"Þá er í aðildarsamningi Möltu að finna bókun um að Malta megi viðhalda löggjöf sinni um fóstureyðingar og sambærilegt ákvæði varðandi Írland er að finna í bókun með Maastricht-sáttmálanum 1992.

Einnig gilda sérákvæði um Álandseyjar sem eru undir stjórn Finnlands.

Lagaleg staða undanþágu eða sérlausnar
sem er í aðildarsamningi er sterk því aðildarsamningur hefur sama lagalega gildi og stofnsáttmálar Evrópusambandsins. cool

Hið sama gildir um bókanir en þær eru hluti af aðildarsamningum og hafa því sama gildi og þeir.

Og í 174. gr. aðildarsamnings Austurríkis, Finnlands, Svíþjóðar og Noregs er til dæmis sérstaklega tiltekið að bókanir séu óaðskiljanlegur hluti af samningnum." cool

Þorsteinn Briem, 26.1.2021 kl. 14:11

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Samningarnir" milli ESB og aðildarríkjanna fel ALDREI í sér VARANLEGAR UNDANÞÁGUR heldur eingöngu eru þær til AÐLÖGUNAR.  Þetta ættu INNLIMUNARSINNAR að vera búnir að átta sig á nema náttúrulega að þeir séu bara með skít á milli eyrnanna en það verður þá bara að vera þeirra mál og ekkert sem er hægt að gera fyrir þá.......

Jóhann Elíasson, 26.1.2021 kl. 21:55

7 Smámynd: Grímur Kjartansson

Stærsti stjórnmálflokkurinn í Skotlandi er að reyna selja þá hugmynd að segja skilið við Bretland, ganga í ESB, vera með sterlingspundið áfram sem gjaldmiðil og halda yfirráðum yfir fiskveiðimiðum

Fólk virðist vera tilbúið að éta réttinn ef hann lítur vel út þó svo nærri öruggt sé að menn fái matareitrun

Grímur Kjartansson, 27.1.2021 kl. 14:10

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Áttar sig einhver á því hvað þessi Þorsteinn Briem er að leggja til?

Ég held að bæði Jóhann og Grímur skilji málið rétt. Menn ganga annaðhvort í ESB eða menn ganga ekki í það vegna þess að reglurnar  ganga ekki upp.Sjáið sjávarútvegsmálin í Brexit.Er þetta bara allt klappað og klárt , pundið og fiskimiðin hjá Skotum. Þessi Nicola er ekki alveg að kveikja á öllum..

Halldór Jónsson, 27.1.2021 kl. 17:39

9 Smámynd: Halldór Jónsson

frekar en Robert Marshal

Halldór Jónsson, 27.1.2021 kl. 17:39

10 Smámynd: Halldór Jónsson

eða kommakellingina Rós Björt eða Björk, komin í Samfó úr VG!

Halldór Jónsson, 27.1.2021 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 37
  • Sl. sólarhring: 434
  • Sl. viku: 1894
  • Frá upphafi: 1109182

Annað

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 1640
  • Gestir í dag: 29
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband