Leita í fréttum mbl.is

Þeim svipar saman, hjörtum á Íslandi og í Kína

heimssyn-ole

Í Kínaveldi býr gömul, nægjusöm og þakklát kona.  Hún á tengdason sem býr í Vesturheimi.  Tengdasonurinn hefur efasemdir um að allt gott í Kína sé kommúnistaflokknum að þakka, en það skilur sú gamla illa.  Hún spyr: “Hvernig dettur þér í hug að efast um ágæti flokksins sem hefur útvegað mér ómælda vinnu, húsaskjól og nægar núðlur alla ævi?”.     

Á Íslandi er maður sem öðru hverju skrifar um dásemdir Evrópusambandsins og hvernig allt gott er því að þakka.  Hann heitir Ole Anton Bieltvedt.  Þeim svipar dæmalaust saman, hjörtum Ole Antons og þeirrar kínversku.  

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Björn Bjarnason lætur sem Bjarni Benediktsson

hafi aldrei verið hluti af Belti og Braut.

En af hverju er Bjarni Benediktsson samt

bankaráðsmaður í kínverska innviðabankanum? 

Banka Beltis og Brautar.

Kannski þeim svipi saman,þeim Ole og Bjarne?

Alla vega hvað 

innleiðingu reglugerða og laga ESB varðar.

Jú, þeim svipar barasta heilmikið saman,

þeim Ole og Bjarne.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.8.2021 kl. 12:34

2 identicon

Komið þið sæl; Heimssýnarfólk, líka sem og aðrir gestir ykkar !

Fyrir það fyrsta; ættu Íslendingar að hafa það frumkvæði Vesturlandabúa, að slíta öllum samskiptum við Peking stjórnina.

Ættu þess í stað; að auka tengzlin við Taíwan (sem illu heilli voru rofin stjórnmálalega, árið 19729, þó ekki væri nema í ljósi vaxandi drottnunarstefnu Peking stjórnarinnar, hin seinustu misseri, t.d.

Símon Pétur; bendir rjettilega á óviðurkvæmileg samskipti Bjarna Benediktssonar og brask, þar eystra:: sem eru algjörlega í óþökk almennings, hjerlendis.

Jú jú; margt má út á Ole Anton Bieltvedt setja, en jeg virði umhyggju hans fyrir Hreindýrastofninum, auk annarra innlendra dýrategunda - það, verður ekki af pilti skafið, a.m.k.

Með beztu kveðjum; sem endranær, af Suðurlandi /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.8.2021 kl. 14:09

3 identicon

Og sé "Belti og braut í molum"

-líkt og Björn Bjarnason segir í pistli sínum-

hvernig stendur þá á því að hann minnist

ekki einu aukateknu orði á hinn íslenska

bankaráðsmann Beltis og brautar,

alnafna föður hans og son afabróður hans?

Svipar þeim e.t.v. saman Engey og Beijing?

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.8.2021 kl. 14:22

4 identicon

Það vantar ekki rangfærslunar og bullið frá Heimssýn. Ætli Heimssýn sé styrkt af einráðunum í Tyrklandi og Ungverjalandi í þessu bulli og andstöðu þeirra gagnvart Evrópusambandinu.

Það eru þekkt tengsl milli andstæðinga ESB og annara hægri öfgahópa í Evrópu. Þeir eru nú þegar búnir að leggja Bretland í rút með lygaherferð sem var vandlega styrkt af Pútin og hans undirmönnum sem eru milljarðamæringar og starfa innan Bretlands og hafa gert í mörg ár.

Ég legg til að Heimssýn leggi sig niður. Annars er ljóst á meðal aldrinum í Heimssýn að öll starfsemin verður fljótlega rekin af einhverju elliheimilinu í Reykjavík.

Annars getur Heimssýn skroppið til Kína, þar getur Heimssýn fengið að upplífa Kína. Fangelsi, þrældómur og allt saman innifalið. Frelsi fjölmiðla ekki til og Heimssýn getur kannski fengið vinnu í áróðursmáladeild Kínverska kommúnistaflokksins við að semja tóma þvælu og bull. Það nefnnilega vantar ekki reynsluna á slíku hjá Heimssýn miðað við bullið sem hefur komið frá Heimssýn síðustu áratugi.

Jón Frímann (IP-tala skráð) 3.8.2021 kl. 03:33

5 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Jón Frímann; er við sama heygarðshornið / að venju.

Piltur; hver styður áframhaldandi heimsvaldastefnu Evrópu-   sambandsins í kapphlaupinu við Peking stjórnina í Kína, að ekki sje nú minnst á viðvarandi samgróning Pentagon-NATÓ tvíeykisins:: sbr. áhyggjur þeirra af Talibana genginu í Afghanistan, sem og áframhaldandi brölti Vesturlanda (ýmissa þeirra) í Mið- Austurlöndum og víðar, ekki síður.

Segja má; að Fjórða ríkið (Evrópusambandið) eigi sjer mjög dyggan fylgjara, þar sem Jón Frímann Jónsson er annarrs vegar, meira að segja Björn Bjarnason (fyrrum ráðherra) og Varðbergs vinir hans:: nánast blikni, við hlið Jóns Frímanns, að nokkru.

Með sömu kveðjum; sem hinum fyrri - og áður /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.8.2021 kl. 21:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 330
  • Sl. sólarhring: 408
  • Sl. viku: 2739
  • Frá upphafi: 1166113

Annað

  • Innlit í dag: 270
  • Innlit sl. viku: 2361
  • Gestir í dag: 255
  • IP-tölur í dag: 251

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband