Leita í fréttum mbl.is

Musteri upplýsingaóreiðunnar

 heimssyn-oreida-mai22

Frést hefur að Evrópusambandið kaupi rannsóknir á upplýsingaóreiðu og lyðræði.  Það fer vel á því.  Óreiða af því tagi og aðför að lýðræði náði nefnilega sögulegu hámarki í nafni baráttu fyrir innlimun Íslendinga í  Evrópusambandið á sínum tíma. 

Kenndi þar margra grasa.  Trúboðar æptu í sífellu að fullveldi ríkisins yrði í engu skert en raunveruleikinn er vitaskuld að með aðild hverfur æðsta ríkisvald úr landi til vandalausra manna, manna sem engu sleppa baráttulaust.  Spurðu menn á þeim tíma hvort Danmörk væri ekki fullvalda ríki.  Evrópusambandið svaraði sjálft með því að tilkynna Dönum að Færeysk skip mættu ekki lengur landa í Danmörku. 

Sífellt var talað um samninga og undanþágur, þrátt fyrir að ávallt væri ljóst að undanþágur frá gildandi reglum og ekki síður reglum um ókomna framtíð væri ekki að fá.   Embættismenn Evrópusambandsins viðurkenndu það fúslega hvenær sem þeir voru spurðir, og jafnvel óspurðir.

Söngurinn um að mikil auðæfi fengjust með því að skipta um lit á peningaseðlunum ómaði um alla sali.  Hámarki í falsi var náð þegar leiðtogum safnaðarins tókst að sannfæra fjöldamarga fjölmiðlamenn og stjórnmálamen um að leyfilegt væri að skipta raunvöxtum út fyrir nafnvexti til að bera saman leiguverð á peningum.  Það heitir að reikna skakkt og er fölsun. 

Þá sóru boðberar Evrópusambandsins á Íslandi að sambandið hefði ekkert með vígvæðingu og hernað að gera.  Allt var það á skjön við Lissabonsáttmálann eins og hann var og er sem og raunveruleikann í A-Evrópu síðastliðnar vikur og mánuði.  

Öll þessi upplýsingaóreiða, falsið og rangfærslurnar höfðu að markmiði að breyta stjórn Íslands úr hefðbundnu fulltrúalýðræði í evrópskt skrifræði ókjörinna fulltrúa.   Það verða hæg heimatökin hjá háskólamönnum á Íslandi að rannsaka upplýsingaóreiðu og lýðræði.   Heimildirnar eru í kippum á timarit.is og eitthvað er líklega enn í skúffunum á þeirra eigin skrifstofum. 

https://www.ruv.is/frett/2022/05/05/fengu-420-milljonir-til-ad-rannsaka-upplysingaoreidu?itm_source=parsely-api


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

9.3.2022:

Um helmingur Íslendinga hlynntur aðild að Evrópusambandinu og einungis þriðjungur mótfallinn cool

4.10.2018:

"F
leiri landsmenn eru fylgjandi því að taka upp evru eða 46% á móti ríflega 36% sem eru því á móti." cool

Vaxandi stuðningur við aðild að Evrópusambandinu

Vextir eru og hafa verið miklu lægri á evrusvæðinu en hér á Íslandi og það á sem sagt að vorkenna þeim sem vilja halda í mörlensku krónuna. cool

28.8.2020:

"Varaseðlabankastjóri segir mikilvægt að fólk sem tekur óverðtryggð lán geri sér grein fyrir að 1% stýrivextir Seðlabanka Íslands séu ekki komnir til að vera.

Afborganir lána gætu hækkað verulega þegar stýrivextir Seðlabankans hækka á ný."

"Greiðslubyrði af 35 milljóna króna láni til 40 ára við fyrstu kaup á húsnæði gæti farið úr ríflega 140 þúsund krónum á mánuði í rétt yfir 210 þúsund ef vextir hækkuðu í það sem telja má eðlilegt ástand hér á landi." cool

Greiðslubyrði af 35 milljóna króna láni gæti hækkað úr 140 þúsund krónum á mánuði í 210 þúsund


28.8.2020:

"Greiðslur af óverðtryggðum hús­næðislán­um gætu hækkað veru­lega ef stýri­vext­ir Seðlabank­ans þokast aft­ur upp á við.

Á þetta bend­ir Rann­veig Sig­urðardótt­ir vara­seðlabanka­stjóri í sam­tali í Morg­un­blaðinu í dag.

Sí­fellt fleiri taka óverðtryggð lán með breyti­leg­um vöxt­um, bæði þeir sem standa í hús­næðis­kaup­um og þeir sem end­ur­fjármagna eldri skuld­ir.

Rann­veig seg­ir ánægju­efni að fólk nýti sér lækk­andi vaxta­stig en ít­rek­ar að fólk þurfi að gera ráð fyr­ir því að greiðslur geti hækkað um­tals­vert. cool

Þannig hafi til dæmis komið fram að "hlut­laus­ir" stýri­vext­ir [Seðlabanka Íslands] væru um 4,5%, eða 3,5% hærri en nú­ver­andi meg­in­vext­ir bank­ans.

Í út­reikn­ing­um, sem Morg­un­blaðið hef­ur látið taka sam­an og birt­ir eru í blaðinu í dag, gætu greiðslur af meðal­hús­næðisláni hæg­lega hækkað um 50% ef vaxta­stig myndi hækka með fyrr­greind­um hætti." cool

Afborganir gætu hækkað um 50%

Þorsteinn Briem, 6.5.2022 kl. 01:27

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

19.8.2018:

"Dómsmálaráðherra birti á dögunum svar við fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar, þingmanns Flokks fólksins. cool

Þar kemur fram að á tíu árum var árangurslaust fjárnám gert 117 þúsund sinnum hjá einstaklingum.

Um þrjú þúsund voru lýstir gjaldþrota og 8.800 eignir einstaklinga voru seldar á nauðungaruppboði.

Þar bætast reyndar við um 400 fasteignir sem seldar voru á nauðungarsölu eða sölu vegna greiðsluaðlögunar skuldara, eins og kom fram í fyrra svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ólafs.

"Ég er nýkominn frá Færeyjum. Þar fjármagna menn íbúðarhúsnæði með föstum vöxtum, 1,7% til 20 ára," segir Ólafur Ísleifsson." cool

Færeyska krónan er jafngild dönsku krónunni.

Gengisbinding dönsku krónunnar við evruna nær því einnig til Færeyja - og Grænlands. cool

Þorsteinn Briem, 6.5.2022 kl. 01:29

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ísland gæti fengið aðild að gengissamstarfi Evrópu, ERM II, þegar landið fengi aðild að Evrópusambandinu. cool

"The currency of Denmark, the krone (DKK), is pegged at approximately 7.46 kroner per euro through the ERM.

Although a September 2000 referendum rejected adopting the euro, the country in practice follows the policies set forth in the Economic and Monetary Union of the European Union and meets the economic convergence criteria needed to adopt the euro."

10.2.2015:

"Í Danmörku hafa lágir vextir á húsnæðislánum einnig styrkt efnahagslífið og komið því enn betur í gang.

Nú er hægt að fá lán til 30 ára með föstum 1,5% vöxtum en aldrei hefur verið boðið upp á lægri fasta vexti.

Þessi lán eru óverðtryggð." cool

Þorsteinn Briem, 6.5.2022 kl. 01:30

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Á evrusvæðinu búa 342 milljónir manna, fleiri en í Bandaríkjunum, og evran er alþjóðlegur gjaldmiðill. cool

Mörlenska krónan og rússneska rúblan eru hins vegar ekki alþjóðlegir gjaldmiðlar, enda hrundi gengi rúblunnar við innrás Rússlands í Úkraínu núna í febrúar, rétt eins og gengi mörlensku krónunnar hrundi í Hruninu hér á Klakanum haustið 2008.

Á því ári hækkaði gengi evru gagnvart mörlensku krónunni um 86% og stýrivextir Seðlabanka Íslands og Hádegismóra voru komnir í 13,3% í júní 2007, 15,5% í maí 2008 og 18% í október 2008. cool

Stýrivextir hér á Íslandi og evrusvæðinu 2002-2007

8.1.2015:


Ríflega þrír fjórðu Grikkja vilja áfram tilheyra evrusvæðinu

Rússar þurfa alþjóðlega gjaldmiðla eins og evrur og Bandaríkjadali til að geta keypt erlendar vörur og þjónustu, rétt eins og við Mörlendingar.


28.2.2022:

Stýrivextir í Rússlandi hækkaðir úr 9,5% í 20%

Gríðarlegar sveiflur hafa verið á gengi mörlensku krónunnar og til að mynda hrundi gengið enn og aftur vegna Covid-19.


Og ekkert ríki vill miklar sveiflur á sínum gjaldmiðli. cool

Við Mörlendingar kaupum erlendar vörur fyrir alþjóðlega gjaldmiðla eins og evrur og Bandaríkjadali sem við fáum fyrir útflutning okkar á vörum og þjónustu.

Evrópusambandsríkin og Bandaríkin eru okkar langstærstu markaðir í útflutningi á bæði vörum og þjónustu.

Og við höfum enga góða ástæðu til að skipta evrum í mörlenskar krónur til að greiða laun og kaupa vörur og þjónustu hér á Íslandi með tilheyrandi gríðarlegum kostnaði. cool

Ferðaþjónusta og sjávarútvegur eru stærstu útflutningsgreinar okkar Íslendinga og þær hafa enga þörf fyrir gengislækkanir íslensku krónunnar.

Matvælaverð fer hækkandi í heiminum og þar með verð á íslenskum sjávarafurðum.

Og hér á Íslandi dvöldu flestir erlendir ferðamenn á árunum 2016-2019, þegar gengi íslensku krónunnar var hátt, einmitt vegna þess að þá dvöldu hér flestir erlendir ferðamenn. cool

Sjávarútvegur og ferðaþjónusta eru einnig stærstu útflutningsgreinar Færeyinga og færeyska krónan er jafngild dönsku krónunni.

Gengisbinding dönsku krónunnar við evruna nær því einnig til Færeyja - og Grænlands. cool

Þorsteinn Briem, 6.5.2022 kl. 01:56

5 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ef fleiri Íslendingar vilja nú hlekki ESB um ökkla og úlnliði er það vegna stöðugs áróðurs næstum allra fjölmiðla landsins, sem eru ESB-fjölmiðlar, og RÚV þar verst, Þorsteinn Briem.

 

Eftir að Donald Trump var bolað úr embætti með rógi og hatursáróðri hefur gríðarlegu magni af verðmætum upplýsingum verið eytt af netinu, og kallað falsfréttir eða hatursáróður. Örlítið af slíku kann að vera innanum, en margt af þessu eru sannanir fyrir samsærum og misyndisverkum glóbalistanna og þeirra elítu sem hefur völd í flestum löndum.

 

Ég tek 100% með þeim sem hér skrifa, ESB er musteri upplýsingaóreiðunnar. Kerfisbundið er óreiðubundnu rugli komið í umferð þegar gagnrýni kemur fram á Joe Biden, eða stóra leikendur í þessum elítustjórnmálum.

 

Stærsti hlutinn af því sem Evrópusambandið vill banna af Facebook og öðrum samfélagsmiðlum á erindi við fólk og vekur það til umhugsunar. Elon Musk er verndari frjálsrar fjölmiðlunar í dag, greinilega, og vantar fleiri slíka.

 

Það er rétt að höftin í Rússlandi eru ömurleg. En hvernig stendur á því að þeir sem trúa á Evrópusambandið sem frelsandi engil viðurkenna ekki höftin þar og þöggunina, kúgunartilburðina?

 

Ég hef oft viðurkennt ákveðna kosti við að ganga í ESB, en það er bara of dýru verði keypt, þegar það samband er fasískt, eða brennandi hús eins og Jón Baldvin sagði, og útrýmir hér öllu frelsi.

Ingólfur Sigurðsson, 6.5.2022 kl. 22:03

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Tek undir með þér Ingólfur,um leið og ég undirstrika að þeir sem svo greinilega lifa á blekkingum til frama og hvort sem það eru einstaklingar eða flokkar/sambönd og nýta þær til að ná völdum eru fjendur í mínum huga; sérstaklega þegar ættjörð mín er í húfi.  

Helga Kristjánsdóttir, 7.5.2022 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 59
  • Sl. viku: 698
  • Frá upphafi: 1116910

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 616
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband