Leita í fréttum mbl.is

Villimannafélagið

A Ukrainian soldier seen on the frontline in Ukraine’s eastern Donbas region of Donetsk on 15 August.

Á meginlandi Evrópu drepa menn nú hverjir aðra af kappi.  Það er ekki í fyrsta sinn og ástæða er til að óttast að það verði ekki heldur í það síðasta.  Stundum er látið eins og að baki standi tveir eða örfáir brjálæðingar sem ráði öllu.  Auðvitað er það ekki þannig.  Fjöldi evrópskra ríkisstjórna dælir viðstöðulaust olíu á eldinn og margt bendir til þess að það sé með dyggum stuðningi almennings í viðkomandi löndum.   

Ekki verður of oft rifjað upp að farsælast er fyrir Íslendinga að gæta þess að binda trúss sitt ekki við svona samfélög.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Rússar undir stjórn Pútíns réðust inn í Úkraínu, sjálfstætt og fullvalda ríki, frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi og lögðu stóran hluta Úkraínu undir sig.

Úkraínumenn náðu hins vegar að hrekja Rússa frá norðurhluta Úkraínu og eru nú byrjaðir á að hrekja þá frá suðurhlutanum, þrátt fyrir að rússneski herinn sé miklu stærri en sá úkraínski.

Það er rétt að Rússar haga sér eins og villimenn í þessu stríði og Úkraína er ekki hluti af Rússlandi, eins og margir Rússar og aftaníossar þeirra hér á Íslandi virðast halda.

Það er því ekki að ástæðulausu að NATO-ríkin, sem eiga landmæri að Rússlandi, Hvíta-Rússlandi og Úkraínu, óttist innrás Rússa í þessi ríki.

Og grundvallarregla NATO er einn fyrir alla og allir fyrir einn.

Finnland og Svíþjóð hafa því sótt um aðild að NATO.

En NATO-ríkin hafa engan áhuga á að ráðast á Rússland og það vita Rússar að sjálfsögðu mætavel.

Og með því að aðstoða Úkraínu við að hrekja rússneska herinn frá landinu eru NATO-ríkin að sjálfsögðu ekki að ráðast á Rússland.

Ísland er eitt af stofnríkjum NATO og mikill meirihluti Íslendinga styður samkvæmt skoðanakönnunum aðild Íslands að þessu bandalagi 30 ríkja í Norður-Ameríku og Evrópu.

Og Vinstri grænir eru eini þingflokkurinn á Alþingi sem ekki styður aðild Íslands að NATO.

Gjörspilltir öfgahægrikarlar stjórna nú Rússlandi og þessi rumpulýður heldur því fram að Úkraínu sé stjórnað af nasistum með gyðing við stjórnvölinn, forseta Úkraínu.

Her Rússa er einnig gjörspilltur, myrðir almenna borgara í Úkraínu í stórum stíl, nauðgar þeim, sprengir íbúðarhús þeirra í tætlur og stelur frá þeim.

Hagar sér því að öllu leyti eins og nasistaher Hitlers.

Allt með mikilli velþóknun mörlenskra öfgahægrikarla og -kerlinga, stuðningsmanna Pútíns.

Þorsteinn Briem, 31.8.2022 kl. 01:20

2 Smámynd: Theódór Norðkvist

Sammála Þorsteini að mestu, nema ég held að Pútín sé frekar vinstri en hægri.

Theódór Norðkvist, 31.8.2022 kl. 19:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 110
  • Sl. sólarhring: 192
  • Sl. viku: 2355
  • Frá upphafi: 1112140

Annað

  • Innlit í dag: 94
  • Innlit sl. viku: 2105
  • Gestir í dag: 92
  • IP-tölur í dag: 90

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband