Leita í fréttum mbl.is

Hindrar samningur um frjálsa verslun frjálsa verslun?

heimssyn-capitol

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar í Morgunblaðið í dag um hvernig EES-samningurinn leggur stein í götu frjálsrar verslunar við útlönd. 

Margt bendir til að Íslendingum farnist best þegar verslun er frjáls.  Hér verður því ekki hjá því komist að staldra við og hugsa sinn gang.

Það gerir Hjörtur og bendir á leið:

 Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum, víðtækur fríverzlunarsamningur við Evrópusambandið. Leið sem ríki heimsins fara allajafna þegar samið er um milliríkjaviðskipti og felur, ólíkt EES-samningnum, ekki í sér vaxandi framsal valds yfir eigin málum og vaxandi hindranir í vegi viðskipta við aðra heimshluta.

http://fullveldi.is/?p=1531


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Enginn stjórnmálaflokkur á Alþingi vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES), ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn.

Á Evrópska efnahagssvæðinu eru Evrópusambandsríkin, Ísland, Noregur og Liechtenstein og í EFTA eru Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein.

"Fjórfrelsið gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu en það felur í sér frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga og sameiginlegan vinnumarkað.

Að auki kveður samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið á um samvinnu ríkjanna á svæðinu í til dæmis félagsmálum, jafnréttismálum, neytendamálum, umhverfismálum, menntamálum og vísinda- og tæknimálum."

Við Íslendingar eigum langmest viðskipti við Evrópska efnahagssvæðið, ferðumst aðallega þangað og flestir Íslendingar í námi eða vinnu erlendis stunda þar nám eða vinnu.

Við seljum til að mynda ál sem notað er í bifreiðar í Evrópusambandsríkjunum og þau greiða hæsta verðið fyrir íslenskar sjávarafurðir.

Og hér á Íslandi dvelja fjölmargir ferðamenn frá Bandaríkjunum og Bretlandi, enda þótt Ísland sé á Evrópska efnahagssvæðinu, eins og fleiri vinsæl ferðamannalönd, til að mynda Spánn og Frakkland.

Þorsteinn Briem, 11.10.2022 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 260
  • Sl. viku: 2542
  • Frá upphafi: 1227497

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 2376
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband